Fréttablaðið - 08.10.2022, Side 24

Fréttablaðið - 08.10.2022, Side 24
Sjón rifjar upp skáldaferilinn í tilefni af afmælisútgáfu heildarsafns ritverka hans. Hann kveðst alla tíð hafa verið maður færri orða heldur en fleiri. Sjón er búinn að eiga við- burðaríkt ár. Í mars sendi skáldið frá sér sína þret- tándu ljóðabók, Næturverk, í apríl var kvikmyndin The Northman frumsýnd, sem hann skrifaði ásamt bandaríska leikstjór- anum Robert Eggers og í september hlaut kvikmyndin Dýrið, sem hann skrifaði ásamt Valdimar Jóhanns- syni, tólf Edduverðlaun. Sjón átti auk þess sextugsafmæli þann 27. ágúst og í tilefni þess gefur Forlagið út heildarsafn ritverka hans í við- hafnarútgáfu. Blaðamaður settist niður með Sjóni á hverfiskaffihúsi hans, Kaffi- húsi Vesturbæjar, til að ræða þessi tímamót. Spurður um hvernig honum líði með þetta allt saman segir hann árið hafa verið fínt og fagnar því að fá tækifæri til að gefa út ljóðabók, enda voru sjö ár liðin frá því hann sendi síðast frá sér slíka. „Þar sem ég byrjaði nú sem ljóð- skáld þá skiptir ljóðið mig alltaf mjög miklu máli. Þarna eru kannski þrjú, fjögur ljóð sem eru með því sem mér finnst vera það sem ég hef skrifað best á mínum ferli. Þannig að ég tek ljóðlistina mjög alvarlega og kannski of alvarlega því ég gef svo sjaldan út ljóðabækur.“ Spurður um hvernig ljóðin verði til segist hann stundum skrifa ljóð fyrir ákveðin tilefni eða verkefni en stundum komi þau hreinlega eins og þruma úr heiðskíru lofti. „Það er svo geggjað finnst mér þegar ljóð verða til, af því að fyrir mér er hvert ljóð eins og smíðis- gripur. Þetta er eins og gullsmíði og það er svo merkilegt þegar maður er kannski búinn að sitja við í tvo, þrjá klukkutíma að vinna í einu ljóði að horfa á það og átta sig á því að þessi smíð, þessi gripur var ekki til í heim- inum fyrir tveimur klukkutímum. Ljóðið er alltaf einhvern veginn stað- festing á sköpunarkrafti mannsins,“ segir hann. Rambaði á dularfulla bók Sjón heitir fullu nafni Sigurjón Birgir Sigurðsson, fæddur 27. ágúst 1962 og alinn upp í Breiðholtinu. Fyrstu kynni hans af ljóðlist, eins og hjá svo mörgum af hans kynslóð, var í gegn- um bókina Skólaljóð sem kennd var í grunnskólum landsins í áratugi. En það var þó önnur lítt þekktari bók sem smitaði Sjón af skáldabakterí- unni svo ekki varð aftur snúið. „Svo gerist það þegar ég er fimm- tán ára að það lendir í höndunum á mér bók sem var gefin út af Náms- bókaútgáfunni sem átti að vera framhald af Skólaljóðunum og hét Nútímaljóð. Þessi bók hún var í geymslu í kjallaranum í Hóla- brekkuskóla þar sem nemendafélag- ið var með aðstöðu og ég ramba bara á þessa bók. Hún var aldrei kennd, ég hef aldrei hitt neinn sem hefur lesið þessa bók eða bara séð hana og ég held að ég sé ekki að ímynda mér hana,“ segir hann. Sjón minnist þess sérstaklega að hafa lesið ljóðið Dymbilvöku eftir Hannes Sigfússon, eitt lykilverk íslenskrar atómljóðlistar, í bókinni. „Ég man bara að fimmtán ára gömlum þótti mér þetta gersam- lega geggjað og ótrúlegt að það mætti skrifa svona á íslensku. Þetta var bara þruma og líktist engu nema textum David Bowie og annarra slíkra,“ segir hann. Fimmtán ára með fyrstu bók Fljótlega eftir að Sjón kynntist nútímaljóðlist í gegnum Nútíma- ljóð gerðist annar atburður sem átti eftir að reynast örlagavaldur í lífi hans. Um svipað leyti hafði hann nefnilega tekið að sér að ritstýra skólablaði Hólabrekkuskóla og til þess fékk hann að taka ritvél heim með sér í láni. Skrifar ekki nema hjá því verði ekki komist Skáldið Sjón stendur á tíma- mótum á ferl- inum. Hann varð nýlega sextugur og af því tilefni gefur Forlagið út heildarsafn ritverka hans í sérstakri af- mælisútgáfu. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR „Það þurfti að vélrita upp allt blaðið og svo fannst mér að það þyrfti að vera einhver ljóðlist í þessu blaði. Ég birti nú eitt ljóð eftir Stein Steinarr án þess að spyrja kóng né prest og það var myndskreytt. Svo minnir mig að það hafi birst eitt eða tvö ljóð eftir Þór Eldon sem var með mér í nem- endaráði og var eitthvað byrjaður að spá í þessu líka. Þannig að ég var kominn með ritvél með mér heim til þess að vinna í skólablaðinu og byrjaði í rauninni að skrifa ljóðlist á ritvélina.“ Að sögn Sjón var skólablaðið prentað hjá ódýrasta prentara bæjar- ins sem þá var Sigurjón Þorbergsson í Letri. Letur var vinsæl prentsmiðja hjá ljóðskáldum sem gáfu út bækur sínar sjálf á borð við Dag Sigurðar- son, Geirlaug Magnússon og Ólaf Hauk Símonarson. Þetta varð Sjóni innblástur og leiddi til þess að hann gaf út sína fyrstu ljóðabók Sýnir árið 1978, þá á sextánda aldursári. „Þetta kemur bara óvænt saman, að unglingurinn uppgötvar ljóðið, finnur leið til að koma því á blað og kynnist á sama tíma því hvern- ig er hægt að gefa út sjálfur. Ef ég hefði ekki vitað af Letri þá hefði ég örugglega ekki gefið út fyrr en mörgum árum síðar, ef ég hefði bara yfirleitt haldið þessu áfram,“ segir hann. Þorvaldur S. Helgason tsh @frettabladid.is 24 Helgin 8. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.