Fréttablaðið - 08.10.2022, Side 25
Ég held að mikið af
þessu fólki sem við
vorum að skrifast á við
hafi ekki haft hug-
mynd um að þau hafi
verið að skrifast á við
unglinga í Breiðholti.
Vörðum leiðina saman
Innviðaráðuneytið býður, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga,
íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október
undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman.
Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum
í málaflokkum ráðuneytisins. Meginviðfangsefni þeirra verða umræður
um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og
skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.
Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum, sem flestir eru haldnir milli
kl. 15:00-17:00 á auglýstum fundardögum. Fundirnir verða haldnir í gegnum
fjarfundarbúnaðinn Teams. Hægt er að skrá sig á vef Stjórnarráðsins —
www.stjornarrad.is/vordumleidinasaman. Skráningu lýkur daginn fyrir
hvern fund. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina.
Fundardagar:
10. október – Höfuðborgarsvæðið
11. október – Suðurland
18. október – Austurland
19. október – Norðurland eystra
20. október – Norðurland vestra
24. október – Vestfirðir
26. október – Vesturland
27. október – Suðurnes
Stjórnarráð Íslands
Innviðaráðuneytið
Samráð með íbúum um stefnumótun
í samgöngum, sveitarstjórnarmálum
og húsnæðis- og skipulagsmálum.
Bókmenntir og glæpir
Þarna býrðu þér til rithöfundar-
nafnið Sjón, sem er stytting á þínu
eiginnafni Sigurjón og hefur fylgt
þér alla tíð. Af hverju ákvaðstu að
gera það?
„Ég held að ég hafi verið innblás-
inn af tvennu, annars vegar þessari
hefð sem er á Íslandi fyrir því að
fólk taki sér listamannanöfn; Kjar-
val, Flóki, Steinn Steinarr. Þannig að
það er svona hefð fyrir því að vera
með listamannanöfn og stundum
einmitt eitthvað svona einnefni.
Svo var ég nú auðvitað líka undir
áhrifum frá rokkinu og pönkinu þar
sem fólk eins og David Bowie, Iggy
Pop, Johnny Rotten og fleiri bjuggu
sér til nöfn.“
Sjón segir þetta vera birtingar-
mynd þeirrar neðanjarðarmenn-
ingar og grasrótarstarfsemi sem
blómstraði um það leyti sem hann
var að taka sín fyrstu skref í menn-
ingarlífinu.
„Dulnefni eru til á tveimur stöð-
um í samfélaginu; í ólöglegri neðan-
jarðarstarfsemi, hvort sem hún er
pólitísk eða glæpsamleg og oft er
það skilgreiningaratriði, og í listum.
Það er nefnilega svolítið áhugavert
að þegar ég er að byrja þá er ennþá
til það sem við getum kallað neðan-
jarðarmenning. Ég hef verið svolítið
hugsi yfir því á síðari árum að þetta
fyrirbæri neðanjarðarmenning, það
er eiginlega horfið.“
Í því samhengi vísar hann til
franska rithöfundarins og handrits-
höfundarins Jean-Claude Carrière
sem sagði að það væru í raun bara
tvær starfsgreinar í mannlegu sam-
félagi sem krefjast engrar mennt-
unar, annars vegar bókmenntir og
hins vegar glæpir.
Unglingar í Breiðholtinu
Ekki er hægt að ræða neðanjarðar-
menningu án þess að minnast á
súrrealistahópinn Medúsu sem
Sjón stofnaði árið 1979 ásamt félög-
um sínum í Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti, þeim Einari Melax,
Jóhamari, Matthíasi Magnússyni,
Ólafi Jóhanni Engilbertssyni og Þór
Eldon. Hópurinn varð til í gegnum
sameiginlegan áhuga þeirra á evr-
ópskri framúrstefnu og súrrealisma
en blómaskeið þeirrar stefnu var í
kringum 1920-1950.
„Þarna er í raun bara búið að
afgreiða súrrealismann sem sögu-
lega hreyfingu sem átti sinn tíma og
átti ekkert erindi lengur. Ég man að
maður stóð í miklum deilum hér á
kaffihúsum og veitingastöðum um
erindi Medúsu og hvað þetta væri.
Fólk var bara fussandi og sveiandi
yfir þessu og fannst þetta gamal-
dags og hallærislegt,“ segir Sjón.
Medúsa hélt myndlistarsýningar
og ýmsar uppákomur, gaf út kasett-
ur með tónlist og tímarit á árunum
1979-1986. Hópurinn var í miklum
samskiptum við súrrealista erlendis
en myndlistarmaðurinn Alfreð
Flóki var milligöngumaður þess.
Flóki var einn helsti lærimeistari
Sjóns og kynnti hann fyrir súrreal-
ismanum með því að lána honum
ýmsar bækur og tímarit, í hverjum
mátti finna nöfn og heimilisföng
annarra slíkra tímarita og súrreal-
istahópa.
„Það myndast tengsl við súrreal-
istahópa í Bandaríkjunum, Frakk-
landi, Portúgal, Japan, Argentínu,
Kanada og úti um allt. Eitthvað af
þessu fólki sýndi síðan í galleríinu
okkar í Skruggubúð. Við gáfum út
eitt tölublað af tímariti þar sem birt-
ust þýðingar á textum eftir suma af
þessum aðilum og það birtust ljóð
eftir okkur í tímaritum erlendis og
við tókum þátt í útgáfu samnorræns
súrrealistatímarits sem leiddi til
þess að við stóðum fyrir norrænni
súrrealistasýningu í Gerðubergi.
Þetta erum við allt að gera á aldrin-
um 17-22 ára. Ég hef oft skemmt mér
yfir því að ég held að mikið af þessu
fólki sem við vorum að skrifast á
við hafi ekki haft hugmynd um að
þau voru að skrifast á við unglinga
í Breiðholti,“ segir Sjón.
Fékk sterka mannréttindasýn
Sjón hefur um árabil verið mikill
stuðningsmaður erlendra rithöf-
unda á Íslandi og hefur verið í for-
svari fyrir PEN, alþjóðleg samtök
rithöfunda, þýðenda og ritstjóra,
hér á landi.
„Ég fæ mjög sterka mannréttinda-
sýn tiltölulega snemma og það á við
allt sem lýtur að mannréttindum. Ég
átta mig fljótlega á að það hljóti að
koma að því í íslenskum bókmennt-
um, íslensku menningar lífi, þjóðlífi
og samfélagi að það breytist við að
hingað komi fólk frá öðrum upp-
runa og setjist hér að,“ segir hann.
Sjón segir það hafa opnað augu
sín að búa ásamt eiginkonu sinni,
Ásgerði Júníusdóttur, í London
1995-97. Þá hafi hann upplifað hve
mikilvægt það er fyrir rithöfunda
af erlendum uppruna að fá stuðning
og hjálp við að komast inn í bók-
Heildarsafn
ritverka Sjóns
inniheldur allar
skáldskögur
og ljóðabækur
skáldsins í níu
bókum sem
hver er með
eftirmála eftir
þekkta aðila úr
alþjóðlega bók-
menntaheim-
inum.
HÖNNUN/
ALEXANDRA BUHL
Helgin 25
LAUGARDAGUR 8. október 2022 FRÉTTABLAÐIÐ