Fréttablaðið - 08.10.2022, Side 26

Fréttablaðið - 08.10.2022, Side 26
Sjón á að baki langan og fjölbreyttan feril sem samanstendur meðal annars af þrettán ljóða- bókum og tíu skáldsögum. Hann kveðst þó aðeins skrifa nema ekki sé hjá því komist. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Ég sendi bara bók þegar það hentar og það hefur alltaf verið fyrir mér hluti af því verkefni að vera rithöf- undur að skrifa ekki nema það sé ekki hjá því komist. Ég fann fyrir því að vera í öðru landi með mitt tungu- mál og að hafa aftengst bók- mennta- samfélag- inu í heima- landinu. menntasamfélög annarra landa. „Þá lendi ég sjálfur í þeirri stöðu að vera rithöfundur af erlendum uppruna þar sem ég á í daglegum samskiptum við fólk sem jú veit að ég er rithöfundur en ég hef í sjálfu sér ekkert til þess að sýna og er ekki veittur neinn aðgangur að bók- menntasamfélaginu þar. Ekki það að ég hafi verið að leita eitthvað sér- staklega eftir því á þessum tíma en ég fann fyrir þessu. Ég fann fyrir því að vera í öðru landi með mitt tungu- mál og að hafa aftengst bókmennta- samfélaginu í heimalandinu.“ Samspil bókar og samfélags Skáldsaga Sjóns Mánasteinn verður tíu ára á næsta ári en hún vakti mikla athygli þegar hún kom út 2013 og hlaut Sjón meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin. Mánasteinn hefur gengið í endur- nýjun lífdaga undanfarið, mikið hefur verið f jallað um bókina og nýlega voru gerðar tvær leik- gerðir eftir skáldsögunni, sú fyrri eftir tékkneska leikhópinn Studio Hrdinu sem sýnd var í Tjarnarbíói og sú seinni eftir írska leikhópinn Brokentalkers sem er sýnd um þessar mundir í Írlandi. Af hverju heldurðu að Mána- steinn sé að eignast framhaldslíf núna? „Þetta er ein af þessum furðu- legu bókum sem örlögin skapa framhaldslíf því augljóslega gerist hún á tímum heimsfaraldurs en hún gerist í spænsku veikinni 1918. Ekki bara það að hún gerist á tímum heimsfaraldurs heldur fjallar hún um hinsegin strák sem er að reyna að lifa sjálfstæðu lífi með sinn hinseginleika á jaðrinum, á sama tíma og er að koma fram nýtt list- og tjáningarform sem er kvikmyndin, heldur á sér líka stað eldgos á þessum tíma. Allt í einu 2020 þá siglum við inn í tíma þar sem öll þessi atriði birtast okkur upp á nýtt í veruleikanum.“ Sjón segir að allt fram til vorsins 2020 hafi Mánasteinn verið lesin af f lestum sem ekki eru hinsegin sem eins konar dæmisaga en það hafi allt breyst með tilkomu heimsfar- aldurs Covid-19, eldgosinu í Fagra- dalsfjalli og bakslaginu í réttindum hinseginfólks. „Það sem er sorglegt er að á sama tíma er hinseginþemað í bókinni aftur orðið brýnt með öllum þeim árásum sem eru að eiga sér stað á hinseginsamfélagið á síðustu mán- uðum en eiga sér langan aðdrag- anda. Ég er að upplifa það sem mjög fáir höfundar upplifa, það er að erindi bókar og samspil bókar og samfélags, gerbreytist á líftíma þeirra. Þetta er búinn að vera mjög merkilegur tími og öll merki þess að þessi bók lifi eitthvað áfram,“ segir hann. Eitt af þessum litlu kraftaverkum Í apríl var kvikmyndin The North- man heimsfrumsýnd en Sjón skrif- aði myndina ásamt einum fram- sæknasta leikstjóra Bandaríkjanna um þessar mundir, Robert Eggerts, höfundi The Wytch og The Light- house. „Samstarfið við Robert hefur verið mjög gefandi, ég get nú bara sagt það. Það er eitt af þessum litlu kraftaverkum sem maður upplifir í lífinu að Björk skyldi kynna okkur. Það var bara eitthvað hugboð sem hún fékk,“ segir Sjón. Robert Eggers kom í heimsókn til Íslands 2016 ásamt eiginkonu sinni Alexandra Shaker í kjölfar þess að hann gerði The Wytch. Þau þekktu Björk Guðmundsdóttur í gegnum sameiginlegan vin í New York og bauð Björk þeim í mat ásamt Sjón og eiginkonu hans Ásgerði. „Við byrjum að tala saman og þá kemur í ljós að Robert er nýbúinn að frumsýna The Wytch sem gerist á tímum galdrafársins í Nýja-Eng- landi í lok 17. aldar. Ég get sagt honum að ég hafi skrifað skáld- söguna Rökkurbýsnir sem gerist á Íslandi í upphafi 17. aldar og fjallar um mann sem verður fyrir ofsókn- um vegna galdra. Við byrjum að tala saman og síðan sendir hann mér hlekk á myndina og ég sendi honum bókina og við áttum okkur bara á því að það er margt í því hvernig við vinnum sem við eigum sameigin- legt. Einmitt það að innri veruleiki persónanna, hvort sem það er hug- myndaheimur eða trúarveruleiki, raungerist í umhverfi þeirra.“ Maður fárra orða Eins og áður sagði gefur Forlagið nú út heildarsafn ritverka Sjóns í sér- stakri afmælisútgáfu. Hverri bók fylgir ítarlegur eftirmáli sem rit- aður er af þekktum rithöfundum og fræðimönnum úr bókmennta- heiminum á borð við Anne Carson, Alberto Manguel, Ástu Kristínu Benediktsdóttur, Sverri Norland og Ástráð Eysteinsson. Það hlýt ur að vera svolít ið skemmtilegt að fá svona afmælis- gjöf? „Það er auðvitað mjög magnað að fá allar útgefnar bækur sínar endurútgefnar í svona of boðslega fallegum búningi og með þessum skemmtilegu, óvæntu og jafnvel ósvífnu eftirmálum. Það er spenn- andi og gaman að sjá bækurnar sínar fá framhaldslífs með þessum hætti en það er auðvitað líka ákveð- in ögrun. Því nú er þetta allt saman komið og ég bara stend andspænis því að þetta er það sem ég hef látið frá mér. Svo er það spurningin hvert framhaldið verður.“ Þótt Sjón eigi langan og fjöl- breyttan feril að baki sem saman- stendur meðal annars af þrettán ljóðabókum, tíu skáldsögum, þremur barnabókum, leikritum, kvikmyndahandritum og söng- textum hefur hann þó aldrei verið einn af þeim höfundum sem sendir frá sér bók á hverju ári. „Eitt af því sem ég áttaði mig á og kemur mér ekkert á óvart er hvað ég hef staðið við það að ætla ekki að skrifa of mikið. Ég sendi bara bók þegar það hentar og það hefur alltaf verið fyrir mér hluti af því verkefni að vera rithöfundur að skrifa ekki nema það sé ekki hjá því komist. Það er auðvitað líka snemma sem mínar fyrirmyndir í bókmennt- unum verða höfundar sem skrifa minna en meira, eins og Jorge Luis Borges, Karen Blixen, Italo Calvino og Mikhail Búlgakov.“ Spurður um hvað sé næst á döfinni nefnir Sjón meðal annars spennandi kvikmyndaverkefni sem er aðlögun á Hamlet Shakespeares fyrir danskan framleiðanda með Noomi Rapace í aðalhlutverki. Þá kveðst hann einnig vera byrjaður að vinna að næstu skáldsögu. „Ég er kominn með hugmyndina og er byrjaður að vinna rannsókn- arvinnuna. Það tók mig fimmtán ár að átta mig á því hvað ég vildi gera við efnið í Mánasteini. Núna er ég í fyrsta skipti, fyrir utan þriðja bindið í CoDex 1962, að vinna með tíma sem er nær okkur og sem ég lifði sem unglingur. Núna í vor þá fann ég allt í einu leið inn í það efni sem kom mér mjög á óvart. Ég er að byrja að vinna það en þekkjandi sjálfan mig þá mun sú bók skrifast alveg á sama hraða og aðrar þannig ég ætla ekkert að lofa henni strax.“ n  26 Helgin 8. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.