Fréttablaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 28
Við indíanar erum mjög
þolinmótt fólk
– það eru bara
liðin 50 ár!
Ég veit bara að ég bý
ekki yfir reiði, hatri eða
illvilja gagnvart nein-
um, þar með töldum
akademíunni og John
Wayne-um þessa
heims.
Leikkonan og aktívistinn
Sacheen Littlefeather lést í
síðustu viku, aðeins rúmum
mánuði eftir að Óskarsverð-
launaakademían bað hana
afsökunar á uppákomu á
athöfninni árið 1973 sem
hafði afdrifarík áhrif á feril
hennar og líf.
Það var við Óskarsverð-
launaathöfnina árið 1973
sem Sacheen Littlefeat-
her kom fram fyrir hönd
leikarans Marlon Brando
og af þakkaði Óskarsverðlaunin
fyrir hans hönd. Þegar tilkynnt var
að Marlon Brando hlyti verðlaunin
fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni
Guðföðurnum í leikstjórn Francis
Ford Coppola, var það Sacheen
Littlefeather sem steig á svið í hans
stað.
Hin 26 ára leikkona af indíána-
ættum stóð þar frammi fyrir
stærstu stjörnum Hollywood og
hélt áhrifamikla ræðu þar sem hún
fordæmdi slælega framsetningu
kvikmyndaiðnaðarins á indíán-
um. Ræðunni var jafnframt ætlað
að varpa ljósi á atburðina sem áttu
sér stað í Wounded Knee í Suður-
Dakóta fylki þar sem fjöldamorð
var framið á indíánum árið 1890.
Mótmæli voru yfirstandandi á
svæðinu og höfðu fjölmiðlar lítið
sem ekkert fjallað um þau.
Einhverjir klöppuðu fyrir ræð-
unni en fjölmargir leikarar og aðrir
gestir púuðu á ungu leikkonuna.
Þar einna fremstur var stórstjarna
vestranna, John Wayne, sem var
ósáttur við að athöfnin væri nýtt
undir pólitísk skilaboð.
Áttatíu og fimm milljónir horfðu
Sjálfur lét Marlon Brando hafa það
eftir sér í viðtali við Dick Cavett að
fengi hann tækifæri til að endur-
upplifa þetta örlagaríka kvöld,
myndi hann engu breyta. Hann
sagðist líta svo á að um frábært
tækifæri hafi verið að ræða fyrir
indíana til að ná eyrum fjöldans,
en talið er að um 85 milljónir hafi
horft á útsendinguna. Honum
þótti þó leitt að fólk hefði ekki
hlustað betur á það sem Sacheen
hafði að segja. Eins sagði hann hinn
almenna áhorfanda ekki átta sig á
hvað kvikmyndaiðnaðurinn hefði
gert indíánum og öðrum kynþátt-
um mikinn óleik með einsleitri og
neikvæðri framsetningu sinni.
Það var aftur á móti ekki Marlon
Brando sem lenti á svörtum lista í
Hollywood, heldur var það unga
leikkonan sem stóð í hans stað
á sviðinu við Óskarsverðlauna-
athöfnina. Hún hafði áður leikið
í kvikmyndunum The Laughing
Policeman, The Trial of Billy Jack og
Johnny Firecloud, en eftir ræðuna
frægu hættu tilboðin að streyma
inn.
Gerði þetta fyrir alla frumbyggja
Í viðtali við miðilinn Variety í síð-
asta mánuði sagði hún þó að hún
myndi gera þetta allt aftur.
„Undir eins. Ég gerði þetta ekki
einungis fyrir Marlon. Ég gerði
þetta ekki fyrir sjálfa mig. Ég gerði
þetta fyrir alla frumbyggja alls
staðar, sem þolað hafa kynþátta-
fordóma og mismunun.“
Þessi sögulegi atburður komst
aftur í fréttir í ágúst síðastliðnum
þegar Sacheen fékk afsökunarbeiðni
frá Óskarsverðlauna akademíunni,
hartnær fimm áratugum síðar.
Ástæðulaust og óréttlætanlegt
Afsökunarbeiðnin var jafnframt
birt á heimasíðu Óskarsverð-
Fékk afsökunarbeiðni stuttu fyrir andlátið
Óskarsverðlaunaakademían bauð Sacheen í opið spjall undir yfirskriftinni An Evening with Sac-
heen Littlefeather í safni akademíunnar í Los Angeles, í september síðastliðnum. MYND/GETTY
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
launanna, þar sem forseti akademí-
unnar, David Rubin, viðurkenndi
of beldið sem hún þurfti að þola
vegna yfirlýsingarinnar og sagði
meðferð Hollywood á leikkonunni
bæði ástæðulausa og óréttlætan-
lega.
Í yfirlýsingunni segir jafn-
framt:
„Hin tilfinningalega byrði
sem þú hefur þurft að lifa með
og fórnin sem þú færðir á eigin
starfsferli í iðnaði okkar, er
óbætanlegt. Allt of lengi hefur
kjarkurinn sem þú sýndir
verið án viðurkenningar. Á
þessu biðjumst við
innilega afsök-
unar og lýsum
y f ir einlægri
aðdáun.“
Mánuði síðar, í september síðast-
liðnum, birti Variety viðtal við Sac-
heen, þá 75 ára gamla, þar sem hún
ræddi uppákomuna og afleiðingar
hennar.
Aðspurð hvernig henni hafi liðið
þegar hún lauk við ræðuna, svaraði
Sacheen að þótt hún hefði margoft
horft á athöfnina í sjónvarpi hafi
þetta verið í fyrsta sinn sem hún
var viðstödd.
„Ég komst í gegnum fyrstu hindr-
unina, að snerta ekki Óskarinn eins
og ég hafði lofað Marlon. En þegar
ég gekk af sviðinu gerði ég það með
hugrekki, heiðri, reisn, virðingu og
sannleika. Ég gerði það með leiðum
forfeðra minna og leiðum frum-
byggjakvenna.“
Hún sagði frá því hvernig stereó-
týpísk viðbrögð hafi mætt henni,
fólk hafi hrópað að henni en hún
leitt það hjá sér. Hún hafi gengið
með höfuðið hátt og vopnaða verði
sér við hlið, stolt af því að vera fyrsta
frumbyggjakonan í sögu Óskars-
verðlaunanna til að stíga fram með
þessa pólitísku yfirlýsingu.
Ræðan hafði áhrif
Fjölmiðlar höfðu ekkert fjallað
um atburðina í Wounded Knee en
Baráttusamtök indíana í Ameríku,
American Indian Movement, höfðu
hertekið svæðið. Sacheen sagði Mar-
lon hafa haft samband við þau fyrir
fram og sagt þeim að fylgjast með
athöfninni.
„Eftir að ég hafði afþakkað Ósk-
arsverðlaunin vegna stereótýpa í
kvikmyndaiðnaðinum og minnst á
Wounded Knee í Suður-Dakóta, var
farið að fjalla um málið. Allir vildu
vita sannleikann um hvað væri að
gerast þar,“ sagði Sacheen og benti á
að algengt væri að skjóta sendiboða
slæmra tíðinda.
„FBI ætlaði sér að færa alla þessa
meðlimi Baráttusamtakanna, eins
og Dennis Banks og bræður mína
Russell Means og Oren Lyons, á stað
eins og Guantanamo Bay. Það hefði
aldrei heyrst í þeim aftur, en úr því
varð ekki vegna ræðu minnar.“
Sex verðir héldu John Wayne
Sacheen sagði í viðtalinu frá því að
þegar hún stóð á sviðinu að halda
ræðuna hafi hún heyrt einhvern
óróa fyrir aftan sig.
„Ég heyrði svo að sex öryggisverð-
ir hefðu þurft að halda John Wayne
svo hann réðist ekki á mig þar sem
ég stóð á sviðinu. Það var ofbeldis-
fyllsta augnablik Óskarverðlauna-
hátíðarinnar.“
Sacheen sagðist hafa heyrt þetta
frá öryggisverði en það hafi aldrei
verið gert opinbert. „Fjölmiðlar
fengu ekki að heyra af þessu.“
„Ég var sniðgengin af FBI eftir
þetta. Þeir fóru um Hollywood og
sögðu fólki að ráða mig ekki. Ef það
yrði gert, myndi FBI binda enda á
framleiðsluna. Öðru fólki var boðið
í vinsæla spjallþætti eins og hjá
Johnny Carson og Merv Griffin þar
sem það gat talað um mig, en sjálf
mátti ég aldrei fara í slíka þætti og
tala mínu máli.“
Afsökunarbeiðnin óvænt
Sextíu sekúndna löng upptakan var
lengi vel falin og ekki aðgengileg
almenningi fyrr en tveimur kyn-
slóðum síðar.
„Þá fór fólk að spyrja um hvað
þetta hefði snúist og þannig kom
hún aftur upp á yfirborðið. Þegar
akademían svo bauð indíánum að
sitja í stjórn sinni komst hreyfing
á hlutina. Nú, 50 árum síðar, fæ ég
þessa afsökunarbeiðni – það er eitt-
hvað sem ég bjóst aldrei við að upp-
lifa og var virkilega óvænt.“
Þrátt fyrir ævilangt mótlæti sagð-
ist Sacheen ekki hafa neikvæðar til-
finningar gagnvart hlutaðeigandi.
„Ég veit bara að ég bý ekki yfir
reiði, hatri eða illvilja gagnvart
neinum, þar með töldum aka-
demíunni og John Wayne-um þessa
heims,“ sagði hún í viðtalinu.
„Ég er ekki rík, ég er fátæk. Ég á
ekki mikið, en ég geri það sem ég
get. Ég reyni að dæma ekki aðra. Svo
að fólk verður bara að fá að gera það
sem það langar að gera og það sem
það finnur í hjarta sér.“
Sacheen lést 2. október síðast-
liðinn, 75 ára að aldri. Nokkrum
vikum eftir að hún tók við afsök-
unarbeiðninni sem hún lýsti við
það tilefni sem draumi sem hefði
ræst.
„Við indíanar erum mjög þolin-
mótt fólk – það eru bara liðin 50 ár!“
sagði hún og lagði áherslu á mikil-
vægi þess að halda í húmorinn, sem
leið til að lifa af. n
Sacheen var ekki nema 26 ára
þegar hún hélt ræðuna sem batt
enda á feril hennar sem leikkonu.
28 Helgin 8. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ