Fréttablaðið - 08.10.2022, Qupperneq 88
Í fantasíubúningi er oft
auðveldara að koma
ýmsum boðskap á
framfæri en í bókum
sem gerast í raun-
heimum.
Bryndís Guð-
jónsdóttir, Silja
Elísabet Brynj-
arsdóttir, Eva
Þyrí Hilmars-
dóttir, Ástríður
Alda Sigurðar-
dóttir, Gissur
Páll Gissurarson
og Oddur Arn-
þór Jónsson
ásamt Jónasi
Ingimundarsyni.
MYND/
JÓN KRISTINN
CORTEZ
TÓNLIST
Ár íslenska
einsöngslagsins
Flytjendur: Bryndís
Guðjónsdóttir, Gissur Páll
Gissurarson, Oddur Arnþór
Jónsson, Silja Elísabet
Brynjarsdóttir, Ástríður Alda
Sigurðardóttir og Eva Þyrí
Hilmarsdóttir
Salurinn í Kópavogi
sunnudaginn 2. október
Jónas Sen
Ef ég reyndi að svæfa 21 mánaða
dótturson minn með því að syngja
vögguvísu Jóns Leifs fyrir hann, þá
er hætt við að hann yrði viti sínu
fjær af skelfingu og myndi bara ekk-
ert sofna. Svo myndi hann neyðast
til að ganga til sálfræðings síðar á
ævinni.
Vögguvísan er mjög drungaleg,
jafnvel óhugnanleg. Af íslenskum
vögguvísum er hún líklega sú
dekksta, og eru þær þó velf lestar
afar dapurlegar. Engu að síður er
tónlistin mjög áhrifarík, hún er
dáleiðandi í einfaldleika sínum og
kom einstaklega vel út á tónleikum
í Salnum í Kópavogi á sunnudaginn.
Stór lungu
Oddur Arnþór Jónsson baríton söng
og gerði það af sannfærandi inn-
lifun og tæknilegum yfirburðum.
Síðustu tveir tónarnir eru sérlega
langir og eiga að vera sungnir á
Draugagangur, leirburður og perlur
útöndun, alveg óslitið. Ég hef heyrt
marga söngvara svindla á þessu en
Oddur Arnþór hafði ekkert fyrir
því. Hann er greinilega með stór
lungu. Annað sem hann söng á tón-
leikunum var líka frábært.
Tónleikarnir báru yfirskriftina
Ár íslenska einsöngslagsins og eru
hluti af röð í Salnum í vetur. Hún er
hugarfóstur Jónasar Ingimundar-
sonar sem var á sínum tíma einna
duglegastur allra íslenskra söng-
undirleikara. Að þessu sinni komu
fram tveir píanóleikarar, þær Eva
Þyrí Hilmarsdóttir og Ástríður Alda
Sigurðardóttir.
Hrífandi túlkun
Bryndís Guðjónsdóttir sópran
hóf tónleikana með laginu Kall
sat undir k letti eftir Jórunni
Viðar. Hún söng því næst Fuglinn
í fjörunni eftir Jón Þórarinsson
og svo Farfuglana eftir Elísabetu
Jónsdóttur. Túlkun hennar var
hrífandi, þrungin tilfinningum,
auk þess sem röddin sjálf var björt
og hljómmikil, en að sama skapi
ómþýð. Sömu sögu er að segja um
önnur lög sem hún söng síðar á
dagskránni.
Nokkrar perlur íslenskrar söng-
listar gat að heyra á tónleikunum
í bland við minna þekkt lög. Þau
síðarnefndu voru sum hver ekkert
sérstök. Svanahljómar eftir Maríu
Markan og Haustnótt eftir Oddgeir
Kristjánsson voru óttalegur leir-
burður í meðförum Silju Elísabetar
Brynjarsdóttur mezzósópran. Þau
hefðu kannski komið betur út ef
söngurinn hefði verið einlægari.
Silja Elísabet virtist aldrei alveg
tapa sér í tónlistinni, hvorki hér né
í öðrum lögum. Helst var það Yfir-
lýsing eftir Hjálmar H. Ragnarsson
sem var trúverðug í höndum henn-
ar, en hún var talsvert kraftmikil
hjá henni.
Stórbrotin aría
Gissur Páll Gissurarson tenór brill-
eraði á tónleikunum. Allt sem hann
söng var áhrifamikið, sérstaklega
Vor hinsti dagur er hniginn eftir
Jón Ásgeirsson, sem var unaðslega
fagurt. Í dag eftir Sigfús Halldórs-
son var líka mergjað, fullt af mögn-
uðum tilþrifum, en lagið er hálfgerð
óperuaría. Hún var stórbrotin hjá
söngvaranum, ákaflega dramatísk
og ólgandi af tilfinningum.
Píanóleikararnir voru með allt
á hreinu. Leikur þeirra var í senn
nákvæmur og þróttmikill, einbeitt-
ur og lifandi, agaður og geislandi.
Hann vafði sig utan um sönginn og
lyfti honum í hæstu hæðir, akkúrat
eins og hann átti að gera. Þetta var
gaman. n
NIÐURSTAÐA: Yfirleitt skemmti-
legir tónleikar með fallegri tón-
list.
BÆKUR
Furðufjall: Næturfrost
Gunnar Theódór Eggertsson
Útgefandi: Vaka-Helgafell
Fjöldi síðna: 299
Brynhildur Björnsdóttir
Næturfrost er beint framhald af
bókinni Nornaseiður sem kom
út í fyrra en þær tilheyra báðar
bókaf lokki er nefnist Furðufjall.
Aðalpersónurnar eru Andreas,
mennskur strákur sem þarf að
f lýja heimahaga sína af pólitísk-
um ástæðum ásamt hópi fólks og
Íma, álfastelpa sem er í þjálfun hjá
nornum álfanna á eyju sem hefur
verið lokuð af fyrir umheiminum
þar til nýlega að hulunni var lyft
með atburðum sem rekja má til
Ímu sjálfrar.
Þegar fyrri bókinni lauk var
Andreas nýkominn til eyjarinnar
á f lótta undan illum prinsi og
þau Íma höfðu enn ekki hist. Í
Næturfrosti fylgjumst við með
þegar Andreas, fjölskylda hans
og samflóttafólk nema land á
eyjunni og setjast að í dular-
fullri yfirgefinni borg sem álf-
arnir forðast eins og pestina og
Íma nemur nornaiðn og kemst
sífellt betur á snoðir um leynd-
armál eyjarinnar. Hrímálfar
og hrörálfar eru kynntir betur
til sögunnar sem og leyndar-
dómsfull hvít dýr og Andreas
og Íma hittast loksins sem
hefur mikil áhrif á bæði þau
og söguþráðinn.
Skemmtileg og flókin framvinda
Fyrsta bókin í bókaf lokknum
Furðufjall, Nornaseiður, var að
mestu leyti kynning á sögusviðum
og sögupersónum sem tókst vel til
enda sagði ég í bókadómi í fyrra
að ég hlakkaði til framhaldsins en
í Næturfrosti tekur Gunnar Theó-
dór til óspilltra málanna að spinna
framvindu sem er bæði skemmti-
leg og f lókin. Heimur eyjarinnar
teikn ast skýrar upp, saga álfanna
og þróun lífsmáta þeirra verður
skiljanlegri og vegna þess hve
undir byggingin er góð er sagan þétt
og marglaga án þess að vera flókin
og heldur lesandanum vel við efnið.
Bókinni lýkur á spennandi augna-
bliki svo aftur neyðist þessi gagn-
rýnandi til að lýsa yfir tilhlökkun
til næstu bókar.
Í fantasíubúningi er oft auð-
veldara að koma ýmsum boðskap á
framfæri en í bókum
sem gerast í raunheimum. Þannig er
greinilegt að Andreas og hitt mann-
fólkið er í hlutverki flóttafólks sem
vill ekki annað en fá að halda áfram
að lifa sínu lífi í sátt við umhverfið,
sem álfarnir eru fyrst í stað ekki
endilega sáttir við. Þá kemur einn-
ig fram gagnrýni á ræktun dýra til
kjötframleiðslu en Gunnar Theódór
hefur áður unnið með slátur-
dýrahugmyndina í bók sinni
Sláturtíð sem kom út árið
2019. Þá er einnig unnið með
sombíuminnið sem virðist
vera vinsælt í barna- og ungl-
ingabókum þetta haustið.
Heillandi og hættulegur
heimur
Myndir Fífu Finnsdóttur eru
skemmtilegar og gera bókina
þægilega af lestrar. Hér er
haldið þeim hætti að hafa mis-
munandi leturgerðir fyrir Ímu
og Andreas eftir því hjá hvoru
þeirra sjónarhornið er og það
virkar vel til að undirstrika ólíka
sýn þeirra á eyjuna.
Næturfrost er afar skemmti-
leg fantasía. Það er æskilegra að
hafa lesið fyrri bókina til að hafa
samhengi en þessi bók er bæði
þéttari og meira spennandi en sú
fyrri og heimurinn sem höfundur
byggir upp er heillandi og hættu-
legur, nákvæmlega eins og fantasíu-
heimar eiga að vera. n
NIÐURSTAÐA: Skemmtileg og vel
skrifuð fantasíusaga sem snertir á
ýmsu og veitir fyrirheit um áhuga-
verðan bókaflokk.
Hrímálfar og hrörálfar
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Fjörug og spennandi saga
eftir Arndísi Þórarinsdóttur
um fimleikastrákinn Álf
Útgáfuhóf
í dag kl. 14
í Eymundsson
Kringlunni
56 Menning 8. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ