Fréttablaðið - 08.10.2022, Page 90
Kvikmyndin Sumarljós og svo
kemur nóttin er frumsýnd í
kvöld á lokadegi RIFF. Fjöl-
breyttur leikhópur kemur
að myndinni en þar stíga
þær Anna Maria Pitt og Ebba
Guðný Guðmundsdóttir sín
fyrstu skref í stórum rullum á
hvíta tjaldinu.
odduraevar@frettabladid.is
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Reykjavík, RIFF, lýkur formlega
í kvöld með frumsýningu mynd-
arinnar Sumarljós og svo kemur
nóttin. Um er að ræða fyrsta leik-
stjórnarverkefni Elfars Aðalsteins-
sonar á íslensku.
Leikhópurinn sem að mynd-
inni kemur er stór, fjölbreyttur og
þrautreyndur. Anna María Pitt og
Ebba Guðný Guðmundsdóttir leika
báðar stór hlutverk í myndinni og
eru báðar himinlifandi með verk-
efnið, enda hvorugar verið í eins
stóru hlutverki áður.
„Ég er svo þakklát fyrir það að
hafa fengið þetta hlutverk, þakklát
fyrir að hafa fengið að koma í prufu
og þakklát Elfari fyrir að treysta
mér svo fyrir hlutverkinu,“ segir
Ebba Guðný, sem fer með hlutverk
Hrefnu í myndinni. Anna María
tekur í sama streng.
„Það var Elfar sem í raun bað mig
um að fara í prufu og ég sagði bara
já,“ segir Anna María, sem fer með
hlutverk Sólrúnar sýslumannsfrúar.
Anna María sem er gift Elfari ætlaði
sér ekkert að fara með neitt hlutverk
í myndinni.
„En ég þekkti náttúrulega per-
sónuna í verkinu mjög vel og var
búin að fylgjast með ferlinu öllu frá
upphafi. Þannig að kannski hafði
ég pínu forskot að því leytinu til en
svo fór ég að kafa enn dýpra í per-
sónuna, pæla meira í henni og búa
til hennar heim,“ segir Anna María.
Anna María hafði fram að þessu
ekki leikið síðan í menntaskóla, en
Ebba Guðný hafði meðal annars
farið með hlutverk fréttamanns í
Ráðherranum. Ebba segir stressið
ekki hafa sagt til sín í aðdraganda
verkefnisins.
„Ég var ekki stressuð en ég var
mjög spennt. Ég er vön að koma
fram og vera fyrir framan mynda-
vélar og var rosalega spennt að
takast á við alvöru hlutverk og vildi
leggja mig fram um að gera það vel.“
Anna María viðurkennir að hafa
fengið aðeins í magann þegar á
Þingeyri var komið, enda leikara-
hópurinn skipaður sannkölluðu
úrvalsliði íslenskra leikara.
„Maður fékk pínulítið í magann
þegar maður var mættur og steig
fyrst á settið með Þorsteini Bachm-
an og Jóa Sig,“ segir Anna María og
Maður fékk pínulítið í
magann þegar maður
var mættur og steig
fyrst á settið.
Anna María Pitt,
leikkona
Ég hef aldrei áður
leikið í bíómynd sem
verið er að fara að
frumsýna og hlakka
mikið til.
Ebba Guðný
Guðmunds
dóttir, leikkona
Sumarljós út í himinhvolfið í kvöld
Óhætt er að segja að leikaralisti myndarinnar sé þéttskipaður kanónum. FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND
Sumarljós og svo kemur nóttin
Ef þú leggur
við hlustir þá
segir Þorpið þér
kannski nokkrar
ó sagðar sögur.
Sögur af for
stjóranum unga
sem dreymir á
latínu og fórnar
fjöl skyldu og glæstum frama
fyrir gamlar bækur og stjörnu
kíki, heljar menni sem kiknar
undan myrkrinu, fín vöxnum
syni hans sem tálgar mó fugla.
Af bóndanum með bassa
röddina sem strengir fal legar
girðingar en ræður illa við
fýsnir holdsins, ein mana gröfu
kalli sem skellir sér í helgar ferð
til London og gömlum Dod ge
55.
Skáld sagan Sumar ljós og svo
kemur nóttin saman stendur
af laus tengdum sögum sem
tvinnast saman á sama sögu
sviði, litlu sjávar þorpi á Vest
fjörðum. Elfar Aðalsteinsson
skrifaði hand ritið sjálfur upp
úr skáld sögu Jóns Kalmans og
gerði myndina í nánu sam starfi
við rit höfundinn og fékk síðan
stóran og fjöl breyttan hóp
leikara til þess að gæða per
sónu galleríið lífi.
n Lykilspurningin
KVIKMYNDIR
Vera
Háskólabíó – RIFF
Leikstjóri: Tizza Covi, Rainer
Frimmel
Aðalhlutverk: Vera Gemma
Nína Richter
Opnunarmynd RIFF þetta árið er
ævisögulega skáldverkið Vera, sem
er austurrísk-ítölsk framleiðsla.
Aðalpersónan Vera Gemma leikur
sjálfa sig í uppsetningu á endur-
minningum ævi sem er þyrnum
stráð.
Vera Gemma er fræg á Ítalíu, hún
er dóttir ítölsku kvikmyndastjörn-
unnar Giuliano Gemma og hefur
leikið í kvikmyndum leikstjóra á
borð við Dario Argento. Hún hefur
búið í Los Angeles og á þar tengsla-
net sem hina framagjörnu dreymir
um. Vera hefur á seinni árum vakið
athygli fyrir leik í ítölsku raunveru-
leikasjónvarpi.
Vera er með síðar ljósar hárleng-
ingar og áberandi andlitsdrætti sem
eru ýktir með fegrunaraðgerðum.
Hún segist verða fyrir fordómum
vegna útlitsins, en segir að fólk í
bransanum sé hins vegar tilbúið að
gefa henni tækifæri um leið og það
kemst að því hver faðir hennar var.
Ímynd Veru er viðfangsefni
myndarinnar og þemu fegurðar-
dýrkunar og æskudýrkunar krufin,
í bland við stef um einmanaleika,
ást og félagsleg vandamál. Verkið
skoðar týnt stjörnubarn í ítölsku
samfélagi og er bæði merkileg
heimild um samfélagið og verðugt
innlegg í femíníska umræðu.
Vera er á köflum löng, hæg og seig
bíómynd, lengsta skotið spannar
þrjár mínútur. Sorg og eftirsjá eru
eins og móða yfir öllu, án þess
að spurningum um uppsprettu
sorgarinnar sé almennilega svarað.
Áhorfandinn stoppar í götin með
eigin reynsluheimi sem gerir sög-
una gagnvirkari en gerist og gengur
með heimildarmyndir sem leggja
sig fram um að skýra og greina.
Enda er Vera ekki heimildarmynd.
Vera er listaverk um fegurð mann-
eskjunnar, frá sjónarhóli konu sem
leitar fegurðarinnar í sjálfri sér. n
NIÐURSTAÐA: Frásögnin er
miskunnarlaus gagnvart leik
konunni og það verður seint
fullþakkað fyrir listamenn sem
eru tilbúnir að berskjalda sig með
öðrum eins hætti. Myndin situr
lengi í áhorfandanum og kallar á
mikilvæg samtöl og umræður um
tabú í samtímanum sem snúa að
fegurðardýrkun og fordómum. n
Hæg, seig og mikilvæg leit að fegurðinni
hlær. „En þeir eru náttúrulega báðir
svo yndislegir, þannig að þetta gekk
bara ljómandi vel.“
Ebba Guðný segir að Þingeyri
hafi verið dásamlegur tökustaður.
„Ég elska Vestfirði og hef alltaf gert.
Afi minn Jóhannes er frá Suðureyri
og ég hef alltaf borið sterkar taugar
vestur,“ segir Ebba. Hún segir það
hafa verið auðvelt að koma sér í fót-
spor Hrefnu í þessu umhverfi.
„Ég tengdi vel við hana. Hún er á
mínum aldri, gift með tvö börn og
svo búa þau hjónin úti á landi og
ég er úr Stykkishólmi, þannig að
ég skildi vel hvernig það er. Þetta
er minna samfélag og það skiptir
máli hvað fólki finnst og hvað fólk
heldur. Þannig að ég tengdi svo við
Hrefnu og fannst gaman að túlka
hana.“
Báðar geta þær ekki beðið eftir
kvöldinu í kvöld, þegar myndin
verður loksins frumsýnd og heim-
urinn fær að sjá hvernig til tókst.
„Þetta er auðvitað búið að vera
mjög langt ferli hjá okkur hjónun-
um,“ segir Anna María. „Elfar fékk
réttinn að bókinni 2012 svo að við
erum búin að lifa með þessu í tíu
ár. Það er langur tími og auðvitað
margt búið að gerast í millitíðinni
en persónurnar búnar að vera, ef
svo má segja, inni á gafli hjá okkur
um árabil,“ segir Anna María hlæj-
andi. Ebba Guðný segist himinlif-
andi yfir því að frumsýningardagur
sé loksins runninn upp. „Ég er mjög
spennt og glöð. Ég hef aldrei áður
leikið í bíómynd sem verið er að fara
að frumsýna og hlakka mikið til.“
Anna María bætir við að það verði
gott að fagna tímamótunum með
samstarfsfólki sínu. „Við erum rosa-
lega spennt og svo verður líka gott
að koma þessu frá sér og leyfa þessu
síðan bara að lifa sínu lífi. Að sleppa.
Sleppa verkinu út í himinhvolfið.“ n
Ítalska leik
konan Vera
Gemma ber
skjaldar sig
í nýrri mynd
sem vann
til tvennra
verðlauna á
kvikmynda
hátíðinni í
Feneyjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Hversu mörg lög bárust í
Söngvakeppnina 2023?
Rúnar Freyr
Gíslason,
verkefnastjóri
hjá RÚV
„Það bárust 132
lög,“ segir Rúnar
Freyr sem hefur
tögl og hagldir
í skipulagningu
keppninnar á næsta ári eins og
síðustu ár.
Rúnar segir að tilkynnt verði í
lok janúar hvaða lög, flytjendur
og höfundar komist áfram í sjón
varpið og þar með úrslitakeppni
Söngvakeppninnar. Þetta verði
tilkynnt í sérstökum þætti.
„En núna strax hefur ráðgefandi
valnefnd störf. Hún mun svo gefa
framkvæmdastjórn keppninnar
sitt álit í næstu viku. Valnefndin
verður skipuð sjö fulltrúum,
tveimur skipuðum af FÍH, tveimur
af FTT og þremur af RÚV.“ n
odduraevar@frettabladid.is
Jóg a ken na r i n n
Tóma s O ddu r
Eiríksson heldur
k ve ðju v iðbu r ð
í j ó g a s t ú d í ó -
inu Yoga Shala í
Skeifunni í kvöld.
Hann er að flytja
til Barcelona í
næstu viku þar
sem hann ætlar í
meistaranám í dansþerapíu.
„Við leggjum áherslu eins og allt-
af á hugleiðslu, öndun og frjálsan
dans,“ segir Tómas um lokahófið.
Um er að ræða styrktarviðburð fyrir
Tómas og kostar 6.000 krónur inn en
DJ Margeir og ROF spila fyrir dansi.
„Máttur dansins er svo öflugur.
Hann sameinar fólk, opnar fólk og
lætur því líða vel. Maður hefur séð
kraftinn sjálfur og mig langar til
að læra meira um þetta úti.“ Tómas
segir að allir séu velkomnir á morg-
un. „Þetta skiptir svo miklu máli
fyrir andlega heilsu og við þurfum
að dansa meira almennt.ngar til að
læra meira um þetta úti. n
Býður í lokadans
Andleg heilsa er í forgrunni í kvöld.
Tómas Oddur
Eiríksson
58 Lífið 8. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 8. október 2022 LAUGARDAGUR