Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Page 7

Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Page 7
5 *' 7. JJALLGRÍMUR HALLDÓRSSON hét maður og var stundum kallaður Kúa-Hallgrímur. Hann var uppi á síðara hluta 19. aldar, fæddur í Biskupstungum. Hann var af góðu bergi brotinn, sæmilega gefinn, en mesti letingi og lagðist snemma í flakk. Hann var kunnur að hnyttilegum svörum, sérstaklega ef veitzt var að honum. Einu sinni kom Hallgrímur til Björns á Brekku í Biskupstungum. Björn var ekki heima, en kom heim bráðlega og var þá kenndur. Þegar Björn sér Hallgrím liggjandi uppi í rúmi, segir hann: „Húsgangsmenn og betlarar, sem ekki vilja vinna, eiga ekki mat að fá.“ „Stendur þetta í sjötta boðorðinu?“ segir þá Hallgrímur, en svo stóð á, að Björn hafði þá nýlega átt bam fram hjá konu sinni. 8. JJALLGRÍMUR kom eitt sinn til sr. Magnúsar Helgasonar á Torfastöðum og var þá nýlega kom- inn austan úr Rangárvallasýslu. Sr. Magnús spurði hann, hvort hann hefði komið á stórbæina Kirkjubæ og Móeiðarhvol. „Ekki neita ég því,“ svaraði Hallgrímur. „Var varð ég við bæði Heródes og Pílatus." En á þessum bæjum bjuggu þá Grímur og Þor- steinn, bræður frú Steinunnar, konu sr. Magnúsar,

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.