Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Page 13

Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Page 13
11 son. Var talið, að hann héldi við dóttur Ingimundar, Guðrúnu að nafni. Hún varð þunguð, og var altalað, að sr. Þórður ætti barnið,. en hefði fengið mann nokkurn til að með- ganga það fyrir sig. Einu sinni sem oftar gisti sr. Þórður í Norðurkoti og svaf þar í baðstofu með heimilisfólkinu. Um morguninn sagði Ingimundur við prest: „Ég hefði nú orðið skelkaður í nótt og allt mitt heimafólk, ef ég hefði ekki haft prestinn undir mínu þaki, því að ég sá engil, bláan að neðan og hvítan að ofan, fara upp í til hennar Guðrúnar, dótt- ur minnar." 24. J£ONA NOKKUR undir Eyjafjöllum kom í heim- sókn til hjóna, er bjuggu þar eystra. Hún virðir börn hjónanna fyrir sér og segir: „Mikið eru börnin myndarleg. Þau eru ekkert lík ykkur. Þau eru líka heppin með það.“ 25. (^NEFNDUR MAÐUR sat með kunningja sínum á Hótel Borg og drakk fast, en var þó dapur í bragði. „Af hverju ertu svona sorgmæddur á svipinn?“ spurði kunningi hans. „Og minnztu ekki á það,“ svaraði hinn. „Ég er að drekka til þess að gleyma konunni minni, en svo sé ég hana bara tvöfalda, þegar ég kem heim.“

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.