Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Page 23

Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Page 23
21 47. GUÐRÚN GlSLADÓTTIR á Hæli var einu sinni spurð að því, hvernig henni litist á mannsefni stúlku einnar, sem þótti mjög myndarleg, en piltur- inn var álitinn lítt að manni. Guðrún svaraði: ,,Ef hann væri vettlingur og ég hefði prjónað hann, þá mundi ég rekja hann upp.“ 48. J^OMMÚNISTI, er var í framboði í Rangárþingi, kom á bæ einn í Fljótshlíð og snæddi þar miðdegis- verð. Hann spurði húsfreyjuna, hvort hún keypti ekki Þjóðviljann. „Nei, við notum klósettpappír," svaraði hún. 49. pÁLL SVEINSSON menntaskólakennari var prúð- menni mikið í orðum og framkomu. Einu sinni var hann að hlýða Agnari Bogasyni yfir í latínu og spurði, hvernig hann þýddi orðin: ,,Nauta sum,“ en það þýðir: „Ég er sjómaður.“ „Ég er skáld,“ svaraði Agnar. Þá segir Páll: „Það má svo sem vel vera, e.n það er nú ekki til umræðu hér.“

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.