Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 21
 Dagurinn byggist á því hvernig þú svafst um nótt- ina. Það er því mjög mikilvægt að taka sér góðan tíma í að velja sér rétta dýnu. Smári Jón Hauksson ALLT kynningarblað 7ÞRIÐJUDAGUR 11. október 2022 GÓÐUR SVEFN Smári Jón Hauksson, vöru- stjóri hjá Rúmfatalagernum, segir að vöruúrvalið af rúmum og dýnum hafi sjaldan verið eins flott og núna. „Við erum með alla breiddina, fyrir unglinginn, gestaherbergið, gisti­ heimilin, gæðarúm fyrir hjónaher­ bergin, stillanleg rúm og heilsu­ dýnur sem laga sig fullkomlega að líkamanum,“ segir Smári Jón. Hvað er vinsælast hjá fólki varðandi rúm og dýnur? Rúmgrindur með skúffuhirslum eru mjög vinsæll kostur hjá okkur og eru frábær kostur til að nýta plássið undir rúminu. Svo eru „luxury“ dýnurnar hjá okkur alveg frábærar og við mælum mikið með þeim. Við höfum gríðarlega góða reynslu af þeim. Þær eru vel upp­ settar, með fimm þægindasvæðum í pokagormum, eggja bakka­ svampi og latex í yfirdýnunni og sérstyrktum köntum sem stækka svefnsvæðið svo um munar,“ segir Smári en hjá Rúmfatalagernum er sérþjálfað starfsfólk sem tekur vel á móti viðskiptavinum sínum og leiðbeinir þeim í átt að réttu dýnunni. „Það eru margir virkilega færir starfsmenn hjá okkur sem eru með áratuga reynslu á þessu sviði í f lestum verslunum okkar.“ Mikilvægt að gefa sér góðan tíma Hvað þarf fólk að hafa í huga þegar það ætlar að fjárfesta í rúmum? Er ekki mikilvægt að velja sér rétt rúm? „Jú, við verðum að átta okkur á því að við verjum um 1/3 af ævi okkar uppi í rúmi, þannig að á til dæmis 75 árum erum við um 25 ár í rúminu okkar. Dagurinn byggist á því hvernig þú svafst um nóttina. Það er því mjög mikilvægt að taka sér góðan tíma í að velja sér rétta dýnu. Best er að koma í sýningar­ sali okkar og fá leiðbeiningar frá starfsmönnum og máta svo nokkur rúm til að átta sig betur á þörfum sínum,“ segir Smári og bætir við: „Það er mikilvægt að máta sig í rúminu í verslununum okkar, vera í sömu svefnstöðu og þú sefur í heima fyrir og reyna að ná að slaka á. Það er gott að leita eftir því hvort það myndist meiri þrýstingur á eitt svæði á líkamanum frekar en annað. Ef það gerist þá er spurning um að prófa annað rúm. Gott er að vita að það er ekki til nein „univer­ sal“ dýna sem hentar öllum. Dýnur eru eins mismunandi og við. Það er mjög einstaklingsbundið hvað hentar hverjum,“ segir Smári Jón. Hann bendir á nokkur atriði þegar velja á dýnu. „Gott er að byrja á að vera viss með hvaða stærð af rúmi mann langar í. Verður þetta aðalrúm sem er nýtt á hverjum degi eða er þetta auka­ rúm í gestaherbergi eða í sumar­ bústaðnum og hvort rúmið eigi til dæmis að vera með gormum eða svampi. Annað sem gott er að hafa í huga er hvort maður sefur á bakinu eða á maganum. Þá er betra að taka stífari dýnu heldur en þegar legið er á hliðinni,“ segir Smári Jón. Hann segir enn fremur: „Kannanir sýna að um 74% fólks sofa á hliðinni og ef þú ert þar þá er mikilvægt að velja sér dýnu sem er með svokölluð þægindasvæði í dýnunni sem tryggir bæði réttari legu á hryggnum og léttir líka á helstu þrýstipunktum á líkaman­ um. Það er þá helst axlarsvæðin og mjaðmasvæðin. Þau svæði eiga að vera mýkri en önnur á dýnunni.“ Gaman að fara alla leið Hvað með aðrar vörur sem tengjast rúminu eins og gafla, náttborð og fleira? „Það er alltaf gaman að fara alla leið þegar maður er byrjaður og að flikka meira upp á herbergið í leiðinni með því að skipta um náttborð, fá sér höfðagafl og dúlla upp á hlutina í kringum nýja rúmið sitt. Ekki má gleyma yfirdýnunum sem við bjóðum upp á. Yfirdýnur eru frábær kostur ef maður vill til dæmis breyta eða auka í mýkt í dýnuna hjá sér. Þar erum við að bjóða upp á breitt úrval í mismun­ andi þykktum en þær innihalda annars vegar „memory“ svamp, latex eða venjulegan svamp. Breiddin á þeim er frá 80­180 sentí­ metra,“ segir Smári sem hvetur þá sem eru í dýnuhugleiðingum að koma í eina af sjö verslunum Rúmfatalagersins . n Erum með alla breiddina Smári Jón Hauksson, vörustjóri hjá Rúmfatalag- ernum, segir að vöruúrvalið og lagerstaðan á rúmum og dýnum hafi sjaldan verið eins flott og nú. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Rúmfatalager- inn er með rúm fyrir unglinginn, gestaherbergið, gistiheimilin og gæðarúm fyrir hjónaherbergin. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Gott er að byrja á að vera viss um hvaða stærð af rúmi mann langar í. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI „Luxury“ dýnurnar eru mjög vinsælar hjá Rúmfatalagernum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.