Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 54
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Péturs Georgs
Markan
n Bakþankar
Það vantar annan skóinn á líkið í
skóginum. Kannski týndist skórinn
á vonlausum spretti. Skilinn eftir
til að deyja. Fórn Pútíns, ein af
mörgum. Lífvana hernaður þar sem
ungir karlmenn eru leirdúfur ein-
ræðisins í Kreml.
Fréttafrásögn Jóns Gauta
Jóhannessonar fyrir Morgunblaðið
af aðstæðum á vígvöllum Úkraínu
er í senn hræðileg og niðurdrepandi,
virðingarverð og vönduð – vonar-
vana. Maður fyllist vonleysi að þessi
staða sé yfir höfuð möguleg. Ef rétt
er rétt, sem er kannski bara sattlíki
og bragðast eins og rétt, eru Rússar á
undanhaldi. Skilja eftir sig dauðann.
Nú er það gagnsókn Úkraínufólks-
ins sem einkennir sögurnar í fjöl-
miðlum. Ég segi fólk vegna þess að
það er fólk sem fyllir heri heimsins á
svona stundum. Venjulegt skólaust
fólk.
Framhaldið er ennþá óljóst. Afar
ólíklegt er að Rússar komi til með að
halda nokkru af því sem þeir komu
til að ávinna sér. Krímskaginn verð-
ur áfram bullsjóðandi átakasvæði.
Þau einu sem eiga eftir að finna fyrir
þeim skertu lífsgæðum sem fylgja
slíku ástandi eru íbúarnir.
Það er öðru fremur vegna alþjóða-
samvinnu – samtakamáttar og
skuldbindinga sjálfstæðra ríkja, sem
mögulegt er að standa gegn framrás
Pútíns. Pund fyrir pund á Úkraína
ekki roð í Rússland. Rúbla fyrir evru
og Rússland er á undanhaldi. Ef rétt
er rétt.
Kannski styrkist Evrópusam-
vinna og Natóvarnarvettangurinn
við þessi ósköp, gæti maður auð-
veldlega sagt spaklega í hæfilegri
fjarlægð frá raunveruleikanum.
Vonandi.
Eini raunverulegi landvinningur
þessa stríðs er útþensla harmsins –
sorg fólksins, eins og fjölskyldunnar
sem elskaði manninn sem núna er
skólaust lík í skóginum. n
Skólaust lík
í skóginum
30-70% AFSLÁTTUR AF
ÖLLU Í OUTLET!
40% AFSLÁTTUR AF
SÆNGURVERUM
Í OUTLET
*Afsláttur á ekki við um vörur
í umboðssölu
Áb. Sigurður Gunnlaugsson löggiltur fasteignasali
520 9595
Við styrkjum Bleiku slaufuna
Stoltur styrktaraðili
Bleiku Slaufunnar í 16 ár