Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Björn Þór er að eigin sögn með ólæknandi rúmfatadellu. „Ég er ekki að þessu til að græða peninga heldur til að gleðja fólk með frábærum rúmfötum. Mottó búðarinnar er „Svo þér líði vel“ og það er nákvæmlega tilgangurinn með þessu öllu saman. Að láta fólki líða vel í vönduðum rúmfötum,“ segir Björn. „Við seljum rúmföt frá Ítalíu, Þýskalandi, Kína og núna síðast bættist Litáen við. Við erum alltaf með augun opin fyrir góðum rúm- fötum. Á einni rúmfatasýningunni rákumst við á hæfileikaríkar ungar konur frá Litáen sem framleiða sængurföt eins og við viljum hafa þau, dásamlega mjúk og straufrí. Sængurfötin eru einstaklega falleg. Fyrst tókum við bara inn tvær týpur, en þær ruku út svo nú höfum við aukið vöruúrvalið tals- vert mikið.“ Rúmfötin frá Litáen koma í nokkrum litum og munstrum og eru með rennilás. Björn segir litaþemað í hönnun þeirra frekar norrænt, sem höfði vel til landans. „Það er mikið af gráum litum en einnig svörtum og brúnum. Kolagrátt og svart hafa verið mikið í tísku undanfarið, en núna er drappað og möndlubrúnt að koma sterkt inn,“ segir hann. Íslensk rúmföt „Ómissandi í vöruúrvalinu eru hin klassísku rúmföt sem hún Margrét okkar saumar fyrir hver jól. Það sem tekur hana allt árið að sauma er rifið úr hillunum vikurnar fyrir jól og venjulega klárast allt. Rúm- fötin eru alveg meiri háttar og ein- göngu gerð úr ítölsku silki damaski eða bómullarsatíni sem fólk elskar,“ segir Hildur Þórðardóttir, starfsmaður hjá rúmföt.is. „Margrét Guðlaugsdóttir, eða Magga saumakona eins og hún er oftast kölluð, er konan á bak við rúmfötin. Magga hefur gríðarlega reynslu af því að sauma vönduð rúmföt. Hún saumaði meðal annars fyrir Verið á sínum tíma en einnig fyrir búðirnar Höfnina, Erlu við Snorrabraut og Kristínu, en þær eru allar löngu farnar. Síðast fór Fatabúðin og var mikil eftirsjá að henni. Það má því með sanni segja að ansi margir Íslendingar hafi sofið undir rúmfötunum sem hún Magga saumar af sinni ein- skæru list.“ Magga byrjaði að draga þráðinn í gegnum saumavélina einungis fimmtán ára gömul. „Þá var ég ekki að sauma rúmföt, heldur hófst ferillinn í Belgjagerðinni við að sauma tjöld og svefnpoka,“ segir Magga. „Ég fór svo á sníðanám- skeið hjá Pfaff og lærði að sauma flíkur og saumaði meðal annars sloppa fyrir hárgreiðslustofurnar. Saumaskapurinn hefur loðað við mig alla tíð síðan.“ Flottasta rúmfataefni í heimi Magga segir það mikla nákvæmn- isvinnu að sauma rúmföt. „Maður skyldi nú halda að eftir tæplega 60 ára starfsreynslu ætti ég að vera löngu búin að fá nóg af þessu. En mér hefur alla tíð þótt gaman að sauma og þykir það enn. Þegar það kemur nýtt efni í búðina frá Ítalíu þá renni ég höndunum um það og hugsa með mér: Noh, hvað það verður gaman að sauma úr þessu,“ segir hún og hlær. „Við vorum að fá 1.400 þráða efni frá Ítalíu um daginn og það er það flottasta sem ég hef séð um ævina. Bara páfinn og Bono sofa undir svona herlegheitum. En nú geta Íslendingar fengið sér svona eðalfín rúmföt og getum við sér- saumað hvaða stærð sem er,“ segir Magga. „Rúmfötin sem Rúmföt.is býður upp á koma víða að úr heiminum en eiga það sameiginlegt að vera þau allra vönduðustu sem völ er Margrét með nýju rúmfötin. 600 þráða himnesk gæði, nýkomin í verslunina rúmföt.is á Nýbýlavegi og í vefverslun. Rúmföt úr egypskri bómull. Króatískar svuntur úr damaski. Silkidamask-rúmföt frá Ítalíu úr egypskri bómull. Vönduð rúmföt á frábæru verði. á. Það er ótrúlega gaman að geta boðið upp á rúmföt sem enginn annar er að selja á Íslandi, eins og þessi 1.400 þráða sem Magga var að nefna. Þau eru eins og silki að mýkt, nema aðeins betri að mínu mati. Svo eigum við líka helling af 600 og 700 þráða rúmfötum sem Magga hefur verið að sauma fyrir okkur að undanförnu. Alveg geggj- aðar jólagjafir ef maður vill gera vel við sjálfan sig eða gefa sínum nánustu,“ segir Björn. „Kosturinn við að hafa marga þræði er ekki bara mýktin, heldur kemur þessi svala tilfinning þegar maður fer upp í rúm. Sumir eru svo heitfengir að þeir þurfa að kæla sig niður. Ef þeim verður of heitt um miðja nótt er ekkert annað en að flippa sænginni og þá fá þeir kalt efnið ofan á sig.“ Lökin vekja lukku Björn segir gaman að segja frá því hvað lökin hjá rúmföt.is hafa vakið mikla lukku. „Við erum með þrjár týpur á ólíkum verðbilum svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Fyrst má nefna 400 þráða lökin. Næst koma 550 þráða lök, þau eru ofin úr einum fíngerðum þræði. Það er enginn að selja svona mjúk, eða við skulum við segja sleip, lök á landinu. Að lokum má nefna 600 þráða lök úr ítölsku bómullarsat- íni. Þau eru þykkust og úr hágæða egypskri bómull sem gerir þau svo yndisleg og mjúk. Allar týpurnar eru mjúkar og þægilegt að snúa sér á þeim. Við höfum fengið mikið hrós frá eldra fólki, sérstaklega fyrir 550 og 600 þráða lökin. Það kom kona til okkar í sumar og sagði að hún hefði aldrei sofið á betra laki og keypti tvö í viðbót.“ n Rúmföt.is á Nýbýlavegi 28 er opin milli 12-17.30 virka daga og 11-15 laugardaga. Sími: 565 1025, rumfot.is. Við vorumað fá 1.400 þráða efni frá Ítalíu um daginn og það er það flottasta sem ég hef séð um ævina. Margrét Guðlaugsdóttir 2 kynningarblað A L LT 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURGÓÐUR SVEFN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.