Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 4
Ég mun sennilega aldrei fyrirgefa sumum en ég á enn frábæra vini á Mogganum og er ofboðslega sáttur í dag. Skapti Hallgrímsson Rask og tjón var minna en árið 2019. Geitin markar upphaf jólaverslunar Í gær voru 75 dagar til jóla og eins og venjan er fór jólageit IKEA upp til að marka undirbúning verslunarinnar fyrir jólin. Menn og vélar unnu að því hörðum höndum að koma geitinni á sinn stað. Eins og áður verður girðing í kringum geitina til að hamla því að fólk fari og kveiki í henni, en það hefur verið gert nokkrum sinnum. Þó ekki síðan árið 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR KAUPUM BLEIKU SLAUFUNA Sýnum lit á bleikaslaufan.is og á sölustöðum um allt land 1. – 20. október LíFIÐ E að FLOKKA RUSLIÐ SITT OG EIGA LÍTINN GARÐ Skapti og pabbi hans Hallgrímur á góðri stundu. Ljós og skuggar hafa lífs- dagana fléttað en Skapti þakkar lesendum frábærar viðtökur. MYND/AÐSEND Ritstjóri staðarfjölmiðils á Akureyri, Skapti Hall- grímsson, er á skömmum tíma búinn að laða að 50.000 lesendur á mánuði. Ljós og skuggar í lífinu. Í dag verður faðir blaðamannsins borinn til grafar. bth@frettabladid.is AKUREYRI Skapti Hallgrímsson, blaðamaður á Akureyri og fyrr- verandi fréttastjóri á Mogganum, upplifir skin og skúrir þessa dagana. Útför föður hans, Hallgríms Skaptasonar, fer fram frá Akureyr- arkirkju í dag. Hallgrímur var í hópi þeirra sem veittu Skapta hvað mesta hvatningu til að stofna staðarmiðil. Blaðamaðurinn syrgir föður sinn en fagnar því einnig að í september síðastliðnum fór vefurinn akureyri. net í hærri hæðir en nokkru sinni. Notendur yfir 53.000 talsins og 1,1 milljón flettinga. „Það má kannski segja að óveður og Flokkur fólksins hér fyrir norðan hafi hjálpað til,“ segir Skapti.  „Ég trúi þessu varla sjálfur, hvað það gengur vel.“ Það bar þó ekki að með ánægju- legum hætti að Skapti stofnaði fjöl- miðilinn. Árið 2018 var hann heima beinbrotinn, blaðamaður á Morg- unblaðinu eftir langan og farsælan feril, meðal annars við fréttastjórn. „Ég sat heima verkjaður í lyfjavímu þegar síminn hringdi og mér var sagt upp,“ segir Skapti. „Ég varð mjög sár. Saga mín á blaðinu spannaði alls 36 ár, það var æðislega gaman á Mogganum í gamla daga, allir reru í sömu átt og bjuggu til frábæran fjölmiðil á hverjum einasta degi,“ segir Skapti. „Ég mun sennilega aldrei fyrirgefa sumum en ég á líka frábæra vini á Mogganum og er ofboðslega sáttur í dag.“ Misserum síðar bauð Þórhallur Jónsson Skapta lén sitt, akureyri. net, sem áður hýsti fréttir hjá Akur- eyri vikublaði. Skapti stökk á tæki- færið en vissi um leið að ekki yrði flóafriður. „Þetta er brjáluð vinna, ég vinn alla daga,“ segir Skapti. „Svona ann- ríki er kannski ekki endilega upp- skrift að heilbrigði en þetta þarf maður að gera til að ná árangri.“ Skapti reyndi að skjótast í vikufrí fyrr á árinu til Ítalíu. Hann tók þó tölvuna með sér og skrifaði fréttir frá baðströndinni. „Þetta er bakt- ería.“ Skapti segir að það hafi vantað sterkan staðarnetmiðil á Akureyri. Hann rifjar upp að ekki alls fyrir löngu var gefið út dagblað í bænum, fimm daga vikunnar. „Pabbi var gríðaráhugasamur um þennan fjölmiðil og studdi mig verulega. Ég þakka pabba og ótal mörgum sem lagt hafa hönd á plóginn, auglýst eða sent mér frétta- ábendingar.“ n Ég trúi þessu varla sjálfur kristinnhaukur@frettabladid.is VEÐUR Björgunarsveitir voru kall- aðar út í um 40 skipti vegna óveð- ursins sem reið yfir landið á sunnu- dag. Rauðar viðvaranir voru í gildi á Norðausturlandi og Suðaustur- landi vegna stífrar norðanáttar og mikillar ofankomu. Óttast var að veðrið yrði sam- bærilegt við desemberstorminn árið 2019. Rask og tjón var þó mun minna en þá og fólk hélt sig almennt heima. Einnig hafði verið búist við fleiri útköllum björgunarsveita. Rafmagn datt út á stöku stað á Norðurlandi og Austurlandi á sunnudag en truf lanirnar stóðu ekki yfir lengi. Lengst var rafmagns- laust í Jökuldal á Austurlandi. n Fólk hélt sig heima Búist var við miklu raski og tjóni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hélt til Portúgals í nótt til að vera viðstaddur umspils- leik íslenska landsliðsins í knatt- spyrnu fyrir Heimsmeistaramót kvenna 2023. Íslenska landsliðið mætir því portúgalska á Estádio Capital do Móvel og ræður leikurinn úrslitum um það hvort liðið leikur á HM í Eyjaálfu næsta sumar. Samkvæmt áætlun á ferðin að taka rétt tæpan sólahring. Ferða- langar verða því mættir aftur hingað til lands við fyrsta hanagal á morgun. „Salan hefur farið vel af stað. Við búumst við því að fara með fulla vél af stuðningsfólki á leikinn,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafull- trúi Icelandair. Haustflensan hefur herjað á leik- menn íslenska liðsins, meðal annars Söru Björk Gunnarsdóttur fyrirliða. „Auðvitað er Sara Björk mikill leið- togi sem og góður leikmaður. Við þurfum á hennar kröftum að halda,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir í gær. n Guðni styður stelpurnar í Portúgal Guðni Th. Jóhannesson. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 2 Fréttir 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.