Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 38
Ónógur svefn hefur
margvísleg áhrif á
heilsuna. Fyrir utan
þreytuna og að eiga erfitt
með að sinna daglegum
störfum hafa margir
sjúkdómar verið tengdir
ónægum svefni.
Samkvæmt könnunum
Embættis landlæknis sefur
rúmlega fjórðungur Íslend-
inga of lítið, eða um sex
klukkustundir eða skemur á
nóttu, en ráðlögð svefnlengd
er sjö til níu klukkustundir.
gummih@frettabladid.is
Þá sýna niðurstöður rannsókna að
hluti barna og ungmenna sefur of
lítið en samkvæmt niðurstöðum
frá Rannsóknum og greiningu
sefur tæplega helmingur ung-
menna í 8. til 10. bekk í sjö klukku-
stundir eða minna á nóttinni en
ráðlögð svefnlengd fyrir þennan
aldurshóp er átta til tíu klukku-
stundir.
Ráðleggingar að betri svefni
n Góður svefn er öllum nauðsyn-
legur til geta tekist á við við-
fangsefni dagsins. Svefn hefur
meðal annars jákvæð áhrif á
ónæmiskerfið, á námsgetu og
einbeitingu, hjálpar heilanum
að festa upplýsingar í minni og
er nauðsynlegur fyrir vöxt og
þroska barna.
n Svefnþörf getur verið mismun-
andi en mælt er með að full-
orðnir sofi 7 til 9 tíma á nóttu.
Að vakna úthvíldur að morgni er
besti mælikvarðinn á það hvort
verið sé að uppfylla svefnþörf.
n Regla á svefni. Það styður við
góðan svefn að sofna og vakna
á svipuðum tíma alla daga,
líka um helgar. Forðast ætti að
leggja sig á daginn en ef það
er gert þá ekki lengur en 15
mínútur og ekki eftir klukkan 14
á daginn.
n Slökun, hugarró og dauf lýsing
er ákjósanleg fyrir svefninn. Ef
erfitt er að festa svefn á kvöldin
er betra að fara fram úr og til
dæmis lesa í góðri bók, hlusta á
rólega tónlist og fara upp í rúm
aftur þegar þig syfjar á ný.
n Regluleg hreyfing yfir daginn
bætir svefninn en varast skal að
hreyfa sig með mikilli ákefð rétt
fyrir svefn. Að fá góða birtu að
morgni, helst dagsbirtu, hjálpar
til við að vakna vel.
n Forðast ætti neyslu koffín-
ríkra drykkja á borð við kaffi og
orkudrykki að minnsta kosti 6
klukkustundum fyrir háttatíma.
Hafa skal í huga að mikil neysla
koffíns getur valdið svefn-
vandamálum. Áfengisdrykkja
hefur truflandi áhrif á svefn.
n Í svefnherberginu er gott að
hafa hæfilega svalt og jafnvel
opinn glugga. Það er líka gott að
hafa myrkur í svefnherberginu
og forðast ætti að horfa á sjón-
varp eða nota skjátæki í rúminu.
Draga ætti úr notkun skjátækja
tveimur klukkustundum fyrir
svefn.
n Gott er að fjölskyldan komi sér
upp samkomulagi um góðar
svefnvenjur.
Ónógur svefn hefur áhrif
Of lítill svefn hefur margvísleg
áhrif á heilsuna. Fyrir utan þreyt-
una og að eiga erfitt með að sinna
daglegum störfum hafa margir
sjúkdómar verið tengdir ónógum
svefni. Þar má nefna sykursýki,
hjarta- og æðasjúkdóma, háan
blóðþrýsting og þunglyndi. Í svefni
hvílist líkaminn og endurnýjar sig.
Taugakerfið endurnærist í svefni
og skorti menn svefn skerðist and-
leg geta þeirra.
Svefntruflanir geta verið
af ýmsum toga. Tímabundið
svefnleysi er algengur kvilli með
tilheyrandi dagsyfju og vanlíðan
næsta dag. Ástæður svefntruflana
geta verið, til dæmis ýmiss konar
áhyggjur, álag, verkir, sjúkdómar,
vímuefnaneysla eða aukaverkanir
lyfja. Vaktavinna, óreglulegt eða
breytt lífsmunstur getur líka trufl-
að svefn. Svefntruflanir aukast
með aldrinum og eru algengar
meðal kvenna á breytingaskeiði.
Þá hafa rannsóknir leitt í ljós að
farsíma- og tölvunotkun skömmu
fyrir svefninn er ekki æskileg og
mörg dæmi er um að foreldrar tak-
marki tíma barna sinna á kvöldin
í að vera í símum og tölvum til að
stuðla að betri nætursvefni. n
HEIMILDIR: EMBÆTTI LANDLÆKNIS,
HEILSUVERA
Góður svefn er öllum nauðsynlegur
Fjórðungur Íslendinga sefur of lítið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þorgeir Valur Pálsson, 48
ára lagerstjóri, hefur fundið
fyrir óþægindum vegna
svefntruflana í mörg ár. Þá
vaknaði hann að meðal-
tali tvisvar hverja nótt. Nú
tekur hann inn Sofðu rótt frá
ICEHERBS og sefur út alla
nóttina án þess að rumska.
Þorgeir byrjaði að taka inn Sofðu
rótt frá ICEHERBS í byrjun sept-
ember eftir að hafa fundið fyrir
svefntruflunum í mörg ár. „Ég sef
alla jafna fast þegar ég sofna. En
svo rankaði ég vanalega við mér á
ákveðnum tímapunkti á nótt-
unni og átti oft erfitt með að festa
svefn aftur. Þá var ég að meðaltali
að vakna svona tvisvar sinnum
á nóttu, stundum til að pissa en
oftast virtist ekki vera nein sérstök
ástæða fyrir því,“ segir Þorgeir.
„Raunar tengi ég svefntruflan-
irnar ekki við neitt sérstakt, hvorki
kvíða né stress. Og það getur vel
verið að ég hafi alltaf verið svona,
en að með aldrinum finni ég meira
fyrir áhrifunum af svefnleysinu.
Ég byrjaði líka að finna sérstaklega
fyrir því hversu mikilvæg hvíldin
er eftir að ég fór að æfa meira í
líkamsræktinni, en ég byrjaði
að lyfta og æfa stífar fyrir
fjórum árum.“
Fann mun á nokkrum dögum
Þorgeir var að ræða um nætur-
rumskið sitt og þá benti ein-
hver honum á að Sofðu rótt gæti
kannski hjálpað. „Fyrst keypti ég
mér eitt hylkjaglas til að kanna
áhrifin. Eftir að hafa tekið eitt
hylki á hverju kvöldi í nokkra
daga byrjaði ég að finna mun á
mér. Það tók mig nokkra daga
að fatta muninn, enda hafði ég
einstaka sinnum áður náð að sofa
út alla nóttina. En þarna náði ég
skyndilega, eftir margra ára svefn-
truflanir, að sofa fastasvefni alla
nóttina án þess að rumska, margar
nætur í röð.“
Sefur eins og lamb
„Í dag tek ég Sofðu rótt á hverju
kvöldi, um hálf ellefu, og steinligg
út alla nóttina þar til ég vakna um
morguninn. Ég hef aldrei viljað
fara á svefnlyf og finnst gott að vita
til þess að Sofðu rótt er náttúruleg
vara. Ég finn líka fyrir fótaóeirð á
næturnar og mest þegar ég er að
reyna að sofna. Þá finn ég sérstak-
lega fyrir því þegar ég hef tekið
vel á í rækinni þann daginn. Við
fótapirringnum tek ég magnesíum
og saman virka þessi tvö bætiefni
mjög vel á mig og ég sef eins og
steinn.
Ég finn líka fljótt mun ef ég
gleymi að taka hylkið. Dæmi um
það gerðist bara í fyrradag. Þá
gleymdi ég að taka inn Sofðu rótt
fyrir svefninn. Sömu nótt vaknaði
ég þrisvar sinnum, sem hafði ekki
gerst lengi. Svo í gærkvöldi tók ég
hylkið og svaf eins og lamb,“ segir
Þorgeir.
Náttúrulega slakandi og róandi
Náttúrulegar lausnir eins og
jurtir og lækningajurtir hafa verið
notaðar langt aftur í aldir um heim
allan. Fjölmargar rannsóknir hafa
verið gerðar, ekki klínískar þó,
en þær eiga það sameiginlegt að
sýna fram á virkni lækningajurta.
Flestar lækningajurtir eru skað-
lausar og því er greiður aðgangur
að þeim. Náttúrulegar lausnir
hafa lengi virkað vel á fjölmarga
enda er sú leið oft valin ef fólk vill
komast hjá lyfjanotkun. ICEHERBS
býður upp á náttúrulega lausn við
svefnvandamálum, en gríðarlega
stór hópur fólks velur að reyna
við náttúrulegar lausnir áður en
svefnlyf eru notuð.
Sofðu rótt í alla nótt
Sofðu rótt frá ICEHERBS inni-
heldur magnolíubörk og íslensk
fjallagrös. Saman virka þessar
tvær jurtir einstaklega vel til þess
að bæta svefn á náttúrulegan og
heilbrigðan hátt. Þessi öfluga
blanda hentar vel fyrir þá sem vilja
aðstoð við að ná betri, jafnari og
samfelldum svefni sem og bæta
andlega líðan.
Þessi magnaða jurt, magnolía,
hefur verið notuð um aldir við
þunglyndi, svefnvandamálum,
kvíða og streitu. Þá er hún þekkt
fyrir að virka almennt slakandi og
róandi, og á að bæta eðlilegan og
samfelldan svefn.
Rannsóknir á magnolíu hafa
sýnt fram á að hún inniheldur
virk efni, sem vitað er að hafi áhrif
á andlegt jafnvægi. Virku efnin
í magnolíuberkinum eru þann-
ig þekkt fyrir að örva boðefni
í heilanum og koma jafnvægi
á hormónið kortísón. Þau geta
virkað almennt slakandi og róandi
og bæta eðlilegan og samfelldan
svefn.
Sofðu rótt-blandan inniheldur
einnig íslensk fjallagrös sem eru
oft nefnd gingseng Íslands. Fjalla-
grös eru rík af steinefnum, einkum
járni og kalsíum. Fjallagrös hafa
verið þekkt fyrir vatnslosandi
áhrif sín og geta hjálpað til við
að draga úr bjúg. Þau innihalda
betaglúkantrefjar sem hafa reynst
vel við þyngdartap, geta bætt
meltingu og styrkt þarmana.
Hrein náttúruafurð
Markmið ICEHERBS er að nýta
náttúruauðlindir sem tengjast
íslenskri hefð og sögu og vinna í
hreina neytendavæna vöru fyrir
viðskiptavini. „Við hjá ICEHERBS
leggjum áherslu á að framleiða
hrein og náttúruleg bætiefni sem
byggja á sjálfbærri nýtingu nátt-
úruauðlinda. Við viljum að vör-
urnar okkar nýtist viðskiptavinum
okkar, að virkni skili sér í réttum
blöndum og að eiginleikar efnanna
viðhaldi sér að fullu. Þá notum við
enn fremur engin óþörf fylliefni.“ n
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum og í nýrri
vefverslun á iceherbs.is.
Sefur rótt eftir margra ára svefntruflanir
Þorgeir Valur
var snöggur að
finna fyrir mun
á svefngæðum
eftir að hann
byrjaði að taka
Sofðu rótt frá
ICEHERBS á
hverju kvöldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
16 kynningarblað A L LT 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGURGÓÐUR SVEFN