Fréttablaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 12
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Ferill Suro-
vikins er
sagður
hafa ein-
kennst af
ásökunum,
spill-
ingu og
grimmd.
Elín
Hirst
elinhirst
@frettabladid.is
Á undanförnum árum hafa #MeToo byltingar
skekið samfélagið. Siðferðisþröskuldur samfélags-
ins er að hækka og þolendur kynferðisof beldis eru
að valdeflast. Ég mætti á mótmælafund fyrir utan
Menntaskólann í Hamrahlíð í síðustu viku þar sem
sterk samstaða og rafmagnaður byltingarmáttur
einkenndu andrúmsloftið og umræðuna.
Gagnrýnin umræða og meðvitund um kynferðis-
lega tilburði fullorðinna í garð barna hefur einnig
aukist – og samfélagið hefur í síauknum mæli kallað
eftir að lengra sé gengið til að tryggja réttarvernd
barna gagnvart kynferðislegri misnotkun af hálfu
fullorðinna.
Einkum hefur umræðan snúist um hversu
skammt sú réttarvernd nær sem ætluð er 15-17 ára
börnum. Gert er ráð fyrir því að 15 ára börn hafi
þroska og vitsmuni til þess að stunda kynferðismök
með fullorðnum einstaklingum – og engin viðmið
um ásættanlegt aldursviðmið eru til staðar. Það
þýðir að löggjafinn leggur blessun sína yfir það að
15 ára einstaklingur og 59 ára einstaklingur eigi í
kynferðislegu sambandi.
Á sama tíma eru lögin ekki í stakk búin til þess
að takast á við það sem kallað er á ensku grooming,
þar sem fullorðinn einstaklingur byggir upp trún-
aðar- og tilfinningasamband við barn svo hann
eigi auðveldara með að hafa aðgang að því til að
misnota það kynferðislega. Í ljósi þess hve auðginnt
og varnarlaus börn geta verið, þar sem þau búa ekki
yfir reynsluheimi fullorðinna, er full ástæða til að
taka þessi mál fastari tökum.
Ég hef lagt fram frumvarp fyrir Alþingi sem
leggur til að samræðisaldur verði hækkaður í 18 ár.
Frumvarpið tryggir þó að einstaklingar á svipuðum
aldri sem eiga í samþykku kynferðissambandi
á jafnræðisgrundvelli verði ekki sóttir til saka.
Þannig má tryggja börnum á aldrinum 15-17 ára þá
nauðsynlegu vernd sem löggjafanum ber að veita
þeim. n
Samræðisaldur verði
hækkaður í átján ár
Gísli Rafn
Ólafsson
þingmaður Pírata
Það þýðir
að löggjaf-
inn leggur
blessun
sína yfir
það að 15
ára ein-
staklingur
og 59 ára
einstakl-
ingur eigi í
kynferðis-
legu sam-
bandi.
ser@frettabladid.is
Okurlandið
Landinn ferðast nú sem aldrei
fyrr eftir að hafa hangið heima
í bómullarbuxunum í fjandans
pestinni sem virtist engan endi
ætla að taka. En nú hefur hann
tekið gleði sína á ný eftir innilok-
unina og Tenar sig í drasl, eins og
krakkarnir kalla það. Þó er alltaf
eitthvað sem skyggir á gleðina, svo
sem okrið í vélunum. Þar um borð
er verðlagningin með skrautleg-
asta móti, svo sem á bjór, en nálega
fimmtán hundruð krónur þarf að
reiða fram fyrir stykkið – og vel
að merkja: lítinn bjór. Það merkir
að kassinn af honum kostaði, á
flugfélagsverði, liðlega 35 þúsund
krónur. Það er auðvitað nokkuð
vel í lagt, en skiptir ekki máli, því
Íslendingar kaupa hlutina á hvaða
verði sem er.
Ráðgátan
Og fyrst byrjað er að tala um flug-
ferðir er upplagt að minnast á eina
helstu ráðgátu Leifsstöðvar, en
þar fer ferðalangurinn í gegnum
hvert nálaraugað af öðru á leið
sinni í gegnum innritunartékkið,
vegabréfaeftirlitið og vopnaleitina,
en þarf, engu að síður, að sýna
flugmiðann í hvert einasta skipti
sem hann kaupir kaffi eða bjór í
biðsalnum. Eins og það sé þá ekki
þegar augljóst að hann er að fara
til útlanda. En svarið við ráð-
gátunni er þetta: Starfsmenn gætu
stolist til að kaupa góssið á niður-
settu verði. Týpískt. Og eitthvað
svo íslenskt. n
Nú um helgina urðu atburðir sem
gætu orðið til að breyta og magna
upp árásarstríð Rússa í Úkraínu.
Pútin og herlið hans hóf í gærmorg-
un harkalegar hefndaraðgerðir eftir
að brúin yfir Kerch-sund, sem tengir Krímskaga
og Rússland, var sprengd um helgina. Þar að auki
hefur Pútín skipt um æðsta yfirmann hersins og
skipaði hinn herskáa og óbilgjarna Sergey Suro-
vikin, 55 ára, yfirmann innrásarinnar í Úkraínu.
Þrír af æðstu mönnum rússneska hersins hafa
þurft að taka pokann sinn á aðeins einni viku,
vegna opinberrar gagnrýni þar í landi á lélega
frammistöðu rússneska hersins. Þetta þykir
mikið veikleikamerki fyrir Pútín og því vill
hann sterkari mann í brúna. Ferill Surovikin er
sagður hafa einkennst af ásökunum, spillingu
og grimmd og hann þykir því líklegri til að geta
staðist væntingar yfirboðara síns.
Og það ekki stóð á hertum tökum Pútíns
og Surovikins, herforingjans nýskipaða, eins
og herlið og óbreyttir borgarar víða um Úkraínu
fundu óþyrmilega fyrir í gærmorgun. Talið er
að 80 eldflaugum hafi verið skotið á borgir þar
í landi á nokkrum klukkutímum. Óvíst er um
framhaldið.
Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og
sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum, var gestur
á Fréttavaktinni á Hringbraut í gærkvöldi. Hann
sagði margt sem minnti á söguna í Úkraínustríð-
inu. Rússar vildu vera stórveldi en færu oftast
langt fram úr eigin getu til að sanna þetta. Alls
kyns veikleikar væru að hrella rússneska herinn,
að mati Alberts, spilling, vanhæfni, og stjórnar-
farið innan hans.
Heimurinn hafi reiknað skakkt hvernig mál
myndu þróast í þessu árásarstríði. Úkraínu-
menn hafi reynst mun sterkari í vörn sinni en
búist var við. Rússaher hafi hins vegar reynst illa
þjálfaður og innan hans séu miklir veikleikar
bæði í skipulagi og samvinnu landhers, sjóhers
og flughers.
Albert sagði að Úkraínustríðið og afleiðingar
þess hefðu orðið til þess að átakalínur í alþjóða-
stjórnmálum hafi skýrst. Verði ekki einhverjar
stórfelldar breytingar í Rússlandi muni sam-
skiptin við Vesturveldin áfram verða afar slæm
og Rússar færast enn nær Kínverjum.
Norðurslóðir munu ekki fara varhluta af
þessum átakalínum því sterkari stöðu Kínverja
fylgi harðnandi samkeppni við Bandaríkja-
menn um yfirráðin í heiminum, sem muni
meðal annars skila sér í valdabaráttu á Norður-
Íshafinu þegar siglingaleiðir opnast þar um
miðja öldina. Og Ísland er svo sannarlega innan
þess áhrifasvæðis. n
Pútín herðir tökin
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 11. október 2022 ÞRIÐJUDAGUR