Fréttablaðið - 11.11.2022, Page 1
Þetta er sígandi lukka
og ekkert annað.
Jóhannes
Þór Skúlason,
framkvæmda-
stjóri SAF
f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 1 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2
Bakar fyrir
heimilislausa
Lífið ➤ 30
Stuggar við
skáldsögunni
Menning ➤ 26
Ekki hafa mælst jafn margar
brottfarir frá landinu í einum
mánuði og í október síðast-
liðnum. Framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar
segir ferðaviljann mikinn.
ser@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Brottfarir Íslend-
inga voru tæplega 72 þúsund í októ-
ber, en ekki hafa mælst jafn margar
brottfarir í einum mánuði það
sem af er ári og aldrei jafn margar í
októbermánuði frá upphafi. Síðasti
mánuður var því með öðrum orðum
metmánuður í utanferðum.
„Þetta staðfestir að Íslendingar
haga sér eins og aðrar þjóðir,
ferðavilji þeirra var orðinn mikill
og þráin rík og uppsöfnuð til að
komast af stað,“ segir Jóhannes Þór
Skúlason, framkvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónustunnar.
Tæplega 159 brottfarir voru frá
Keflavíkurflugvelli í síðasta mán-
uði, en samkvæmt upplýsingum
Isavia er um að ræða fjórða fjöl-
mennasta októbermánuðinn frá
því mælingar hófust. Almennt voru
brottfarir í ár um 80 prósent af því
sem þær voru í októbermánuði 2018
þegar mest var til þessa, svo flugum-
ferð fer að ná methæðum á ný.
Bandaríkjamenn eru fjölmenn-
astir útlendinga sem sækja Ísland
heim, um þriðjungur í október.
„Þetta er sígandi lukka og ekkert
annað,“ segir Jóhannes Þór. „Eftir-
spurnin hefur verið mun meiri í ár
en við bjuggumst við,“ bætir hann
við. Það muni þó taka lengri tíma en
sem nemur einu sumri að jafna sig
eftir samkomutakmarkanir.
„Vandinn er og verður marg-
þættur og varðar bæði mönnunar-
vanda og skuldavanda, en fjárhags-
staða fyrirtækja lagast ekki strax.
Við reiknum með að vera komin á
sama stað árið 2024 og við vorum
fyrir pestina,“ segir hann. n
Íslendingar settu ferðamet í október
MEÐ KONFEKTHNETUM
2 4 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R
finnur þú ástina
á degi einhleypra?
Tilboð af völdum vöruflokkum. Gildir eingöngu í dag 11.11 í vefverslun ELKO
11-22%
afsláttur
Af völdum vöruflokkum.
Gildir líka af nýja
vöruflokknum.
Einar Hansberg Árnason vekur athygli á starfi Píeta samtakanna með því að gera æfingar á Concept2 tæki, 10 upphífingar og 11 réttstöðulyftur á kortersfresti í 50 klukkutíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SJÁVARÚTVEGUR Öll aukning sjáv-
arafurða á jörðinni á síðustu fjöru-
tíu árum kemur úr eldi, einkum
sjókvía eldi. Á sama tíma eru villtir
stofnar á hafi úti að mestu fullnýttir,
eða jafnvel ofnýttir.
Sveinn Agnarsson, prófessor
við viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands, segir fiskeldi taka fram úr
veiðum á villtum fiski í framtíðinni.
Það feli í sér áskoranir fyrir íslenska
fiskútflytjendur.
„Okkar hefðbundni fiskútflutn-
ingur er kominn í hörkukeppni við
fiskeldi,“ segir Sveinn.
SJÁ SÍÐU 6
Segir fiskeldi taka
fram úr veiðum