Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hér er ekk- ert borð fyrir báru. Hvorki fyrir smá- spýjur né holskeflur. Traust á milli allra er undir- staða þess að náttúru- vernd tak- ist vel og er skýrsla starfshóps- ins skref í þá átt. Guðmundur Gunnarsson ggunnars @frettabladid.is N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði Komið og skoðið úrvalið Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráð- herra Undanfarin misseri hefur verið lífleg samfélags- umræða um tækifæri og áskoranir sem fylgt geta friðlýsingu landsvæða á Íslandi. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að stofna eigi þjóðgarð á þegar friðlýstum svæðum og jöklum á þjóðlendum á hálend- inu, með breytingu á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð. Áherslan er á samtal og samvinnu við heimamenn og fjölgun svæðisráða. Til að draga fram stöðu þjóðgarða og friðlýstra svæða almennt, skipaði ég á vormánuðum vinnuhóp til að taka saman stöðuskýrslu um málefnið. Í starfshópnum sátu Árni Finnsson, formaður, Guðrún Svanhvít Magn- úsdóttir og Sveinbjörn Halldórsson. Hópurinn hefur nú skilað skýrslu sinni sem heitir „Þjóðgarðar og friðlýst svæði, staða og áskoranir“. Umræðan um þjóðgarða og friðlýst svæði á Íslandi hefur oft verið jákvæð, enda enginn ágreiningur um að íslensk náttúra er einstök. Hins vegar hefur ýmislegt verið gagnrýnt varðandi friðlýsingarferlið, rekstur einstakra svæða og mögu- leika til nýtingar og ferðalaga eftir friðlýsinguna. Hluti gagnrýninnar snýr að því að einstök verkefni hafi verið keyrð of hratt í gegnum stjórnsýsluna án nægilegra tækifæra til upplýstrar umræðu, öflunar grunnupplýs- inga og samráðs við heimamenn og aðra hagaðila. Þessi umræða og gagnrýni hefur ekki síst tengst áformum um stofnun þjóðgarðs á hálendinu og átökum um verndun náttúrunnar annars vegar og nýtingu hins vegar. Skýrsla starfshópsins nýtist mjög vel í starfi ráðuneytisins við forgangsröðun verkefna. Í sumum tilfellum er vinnan hafin og má þar nefna greiningar- verkefni um stofnanaskipulag ráðuneytisins. Í öðrum tilfellum eru áform um frekari upplýsingaöflun, skipun starfshópa og aukið samráð og samtal. Niðurstaðan er að það er verk að vinna. Ná þarf sátt milli ólíkra aðila s.s. umsjónaraðila friðlýstra svæða, landeigenda, þeirra sem nýta sér þau í atvinnuskyni, ferðalanga, þeirra sem eiga þar óbein eignarréttindi og annarra haghafa. Traust á milli allra er undirstaða þess að náttúruvernd takist vel og er skýrsla starfshópsins skref í þá átt. n Aukin náttúruvernd byggð á traustigar@frettabladid.is Þrísaga Útkastarar ríkisins hafa verið í sviðsljósinu að undanförnu vegna brottf lutnings hælis- leitenda. Sérstaka athygli vakti framganga starfsmanna á Kefla- víkurflugvelli sem hindruðu störf fulltrúa fjölmiðla við völlinn með því fylgja þeim eftir eins og skugginn og blinda þá með sterkum ljóskösturum. Isavia hefur vafist tunga um tönn við að útskýra þetta hátta- lag og orðið margsaga í meira lagi, eða þrísaga nánar tiltekið. Misskilningur Nýjasta útgáfa Isavia sem send var út sameiginlega með emb- ætti ríkislögreglustjóra byggir á því að málið hafi allt saman verið tómur misskilningur. Að menn hafi ekki vitað hvað þeir voru eiginlega að meina. Dálítið eins og Georg Bjarnfreðarson sé hættur á bensínstöðinni og farinn að vinna á nóttunni hjá upplýsingadeild þessa ágæta fyrirtækis sem heldur um stjórnvölinn á f lugvöllum landsins og er eins og risavaxið ríki í ríkinu. Ekkert er þó sagt um það hvað vallarstarfsmenn- irnir töldu sig vera að útrétta með tilburðum sínum. Kannski ætluð þeir bara að gaslýsa þjóðina sem auðvitað hefur alls ekkert með það að gera að vita hvað sé á seyði við hennar eigin f lugstöð. n Ef framganga valdhafa í garð hælis- leitenda væri ekki svona sorglegt mál í alla staði, væri jafnvel hægt að hafa gaman af umræðunni um meinta hol- skeflu fólks sem hér flæðir yfir fjöru og grjót í stríðum straumum. Aðallega vegna þess að hópurinn sem um ræðir telur ekki nema um 800 manns. Það er allt mannhafið. Holskeflan sem hingað kemur frá öðrum löndum en Úkraínu og Venesúela. Hvar annars staðar en á Íslandi myndi slík tala valda viðlíka hugarangri? Setja allt upp á rönd? Við erum að tala um hóp sem er svo fámenn- ur að hann myndi ekki einu sinni fylla neðri svalirnar á jólatónleikum Baggalúts. Það mæta fleiri á miðnæturopnun meðal- stórrar fataverslunar án þess að við grípum til þess að tala um holskeflu í því sambandi.   Samt er látið eins og mannskapurinn, sem hingað kemur í örvæntingarfullri leit að öryggi, haldi öllu í heljargreipum. Kafsigli allt sem fyrir verður. Að yfir okkur gangi einhvers konar mennskur brotsjór sem ekkert fæst við ráðið. Þúfan og hlassið og allt það. Í þessu líkingamáli leynist auðvitað einhvers konar hátindur íróníunnar. Grátbrosleg saga í anda Gúllivers í Putalandi jafnvel. Auðvitað er þessi háreysti ekkert annað en illa dulbúinn hræðsluáróður. Haldið á lofti af stjórnmálamönnum sem þrífast á því að hræða fólk. Til þess fallinn að hræra duglega upp í pottum stækrar þjóðernis- hyggju og andúðar í garð útlendinga. Verst hvað þessir tilburðir virka alltaf vel á landsmenn. Eins og við höfum séð á síðustu dögum. Þótt maður voni auðvitað alltaf að manngæskan sjái í gegnum þetta. Höfum samt eitt á hreinu. Auðvitað geta fámennir hópar fólks valdið aukaálagi á kerfin og innviðina. Það er bara ekki það sem málið snýst um. Rót vandans liggur ekkert hjá þessum átta hundruð manneskjum sem hingað koma. Hún liggur hjá okkur sjálfum. Í velferðarkerfi og heil- brigðiskerfi sem lafir fram af bjargbrúninni. Vegna áralangrar sveltistefnu og sinnuleysis. Þegar velferðar- og heilbrigðiskerfin eru ekki forgangsmál á borði stjórnvalda er viðbúið að eitthvað þurfi undan að láta. Það er mergurinn málsins. Þess vegna erum við í þessari stöðu að geta ekki tekið á móti fólkinu sem við þurfum á að halda. Í þeim efnum gildir einu hvort um er að ræða Svíþjóð eða Súdan. Hér er ekkert borð fyrir báru. Hvorki fyrir smáspýjur né holskeflur. n Holskeflan SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.