Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 22
Hvað er rómantískara en að ylja
sér við heitt súkkulaði á fallegum
vetrardegi þegar daginn tekur
að stytta og skammdegið hellist
yfir? Ekkert er betra en nærandi
samverustund með fjölskyldu og
vinum með heitan bolla í hönd.
Dökka súkkulaði er brotið í
mola og leyst upp í svolitlu vatni
eða um það bil einum kaffibolla
við vægan hita. Einn lítri af mjólk
er hitaður að suðumarki, honum
hellt saman við smátt og smátt og
hrært í á meðan. Þegar búið er að
hella allri mjólkinni út í og súkku-
laði er orðið heitt og silkimjúkt er
því hellt í góða bolla og slettu af
þeyttum rjóma bætt ofan á. Það
má sleppa rjómanum ef vill.
Súkkulaðið má svo ávallt toppa
með einhverju sem minnir á að
jólin koma senn, eins og að brjóta
niður Bismark-piparmyntu-
brjóstsykur. Það má líka strá rifnu
Freyðivín eða búbblur njóta mik-
illa vinsælda þessa dagana enda
fallegar í glasi og skapa ákveðna
stemningu. Oft er það svo að þegar
fólk hugsar um freyðivín, kampa-
vín, hugsar það um vín til að skála,
fagna ákveðum áfanga, stórvið-
burðum og stórum stundum í líf-
inu. Dásamlega „pop“-hljóðið sem
á að heyrast þegar freyðivínsflaska
er opnuð hljómar skemmtilega
og skapar stemningu. Þá liggur í
loftinu spennan eftir að fá freyði-
víninu hellt í glasið.
Staðreyndin er sú að freyðivín
eru einnig ágætis matarvín og upp-
lagt til para með mat. Það er hægt
að byrja á freyðivíninu til að fagna
góðri máltíð og halda svo áfram
með sama vínið með matnum.
Bragðið og áferðin steinliggur með
fjölmörgum réttum og vert er að
velja rétta tegund eftir hvað verður
á boðstólum.
Til hátíðarbrigða er það oft svo
að framreiddir eru fleiri en einn
réttur, algengt er að boðið er upp
á þriggja rétta máltíðir. Það er
því skemmtileg áskorun að para
freyðivín með og það getur gengið
mjög vel enda framboð á góðu
freyðivíni, eins og kampavíni,
orðið mjög gott og fjölbreytt. For-
réttir og freyðivín parast einstak-
lega vel saman. Freyðivín hentar
vel með sjávarfangi, eins og til að
mynda með laxi, bleikju, humri og
ýmis konar skelfiski, hvort sem það
er hrátt, matreitt eða í súpu. Freyði-
vín steinliggur með parmaskinku,
parmesanosti og balsamikediki.
Ferskur aspars, léttsteiktur á
pönnu, með parmesanosti og smá
salti er eitthvað sem ljúft freyðivín
ræður vel við. Freyðivínið er líka
ákaflega ljúft með ostum, ávöxtum
og hvers kyns smáréttum, svo má
ekki gleyma íslenska lakkrísnum,
alveg ótrúlega hvað lakkrís og
kampavín passa vel saman.
Freyðivín er algjör gleðigjafi.
Það er sama hvert tilefnið er, allt
verður betra og skemmtilegra með
freyðivín við hönd. n
Freyðivín!
Líka með mat
n Skál elskan
Kaldar kinnar, heitt súkkulaði
n Uppskriftin
11.
nóv
12.
nóv
13.
nóvFöstudagur Laugardagur Sunnudagur
Hvað er að gerast um helgina?
n Bítlasyrpa
Hús Máls og menningar kl. 19.30
Bítlasyrpan heldur epískt Bítla-
söngpartí. Þetta er sing-a-long
með undirleik, ætlað hörðum
Bítlaaðdáendum eingöngu.
n Þar sem himin ber við haf
Háskólabíó kl. 20.00
Í tilefni þess að tíu ár eru liðin
frá því platan Þar sem himin ber
við haf kom út blása Jónas Sig og
Lúðrasveit Þorlákshafnar til glæsi-
legra tónleika.
n Apocalipstick
Gaukurinn kl. 20.00
Drag, glamúr, fíflagangur og
óþverri.
n Ég býð mig fram
Tjarnarbíó kl. 20.30
Örverkaleiksýning þar sem leik-
stjórinn Unnur Elísabet býður
listamönnum úr ólíkum áttum
til samstarfs. Óvenjuleg leikhús-
upplifun og suðupottur nýrra
hugmynda.
n Hausar All Stars
Húrra kl. 22.00
Drum&Bass Djar í allt kvöld. Fram
koma: Ewok, Agzilla, Carla Rose og
Suspect: B.
n Sóðabrók
Þjóðleikhúskjallarinn kl. 22.30
Sóðabrækur eru þekktar
fyrir sprenghlægilegar, ögrandi
og bráðskemmtilegar sýningar
sem bæði skemmta og sjokkera
auk þess að vekja áhorfendur til
umhugsunar um samfélagið, kyn-
þokka, sjálfsmynd og femínisma.
Það fer enginn heim í þurri brók
eftir Sóðabrók.
n Rappsmiðja
Borgarbókasafnið Spönginni
kl. 11.00
Ókeypis rappsmiðja með Reykja-
víkurdætrum fyrir 10-12 ára og 13-
15 ára. Báðir aldurshópar taka þátt
á sama tíma, en hóparnir vinna í
aðskildum rýmum. Leiðbeinendur
eru þær Ragga Holm og Steinunn
Jónsdóttir. Skráning nauðsynleg.
n Tímarnir líða og breytast - Bob
Dylan hátíð
Iðnó kl. 14.00
Áhugafólk um Dylan heldur tón-
listarhátíð í Iðnó. Þar kemur fram
fjöldi hljómsveita og tónlistar-
manna, m.a. Sverrisson Hotel, tví-
eykið Chris Foster og Bára Gríms-
dóttir, hin landsþekkta Slow train
og Himnahliðið. Sr. Henning Emil
Magnússon flytur Dylan-fróðleik á
milli tónlistarstriða á laugardags-
kvöldinu. Þá stendur Dylanmafían
fyrir sýningu á ýmsum áhuga-
verðum munum tengdum Dylan
og tónlistarferli hans.
n Tónleikar með Snorra Helga-
syni og Erni Eldjárn
Menningarhúsið Berg, Dalvík
Þeir vinirnir hafa unnið saman að
tónlist í u.þ.b. tíu ár og munu grípa
niður í tónlist af ferli Snorra og
leika lög af plötunni Margt býr í
þokunni sem byggð er á íslenska
þjóðsagnaarfinum, lög af glænýrri
plötu Snorra, Víðihlíð, og jafnvel
eitthvað stöff með Sprengju-
höllinni í bland við gúmmelaði
koverlög.
n Eyþór Ingi og Babies heiðra
Þursaflokkinn
Húrra kl. 22.00
Í tilefni 40 ára útgáfu plötunnar
Gæti eins verið ætla Eyþór Ingi og
Babies-flokkurinn að leika plötuna
í heild sinni og mögulega fá önnur
Þursalög að fljóta með.
n Reddingakaffi með FabLab
FabLab, Ísafirði kl. 13.00
Viðgerðir, kaffi og góð samvera.
n Veturkarlinn kominn er með
Dúó Stemmu
Safnahúsið kl. 14.00
Leikin verða og sungin íslensk
þjóðlög, tengd vetrinum og
öðrum árstíðum, farið með
þulur og með sköpunarkrafti
barnanna verður sögð hljóðsaga
um vináttuna með hjálp alls kyns
hljóðfæra og hljóðgjafa. Leikið
verður á ýmis hefðbundin og
óhefðbundin hljóðfæri til dæmis
íslenska steina, hrossakjálka, skyr-
dósir, langspil, víólu og trommur.
n Drengurinn með ljáinn út-
gáfuhóf
Nexus kl. 14.00
Daginn sem Hallur er hársbreidd
frá dauðanum breytist allt. Hann
verður drengurinn með ljáinn.
Nú þarf hann að hjálpa þeim sem
raunverulega deyja að komast
hinum megin. En hvað í ósköp-
unum þýðir það? Ævar Þór Bene-
diktsson, oft kallaður vísinda-
maður, verður á staðnum.
n Vévaki útgáfutónleikar
Húrra kl. 20.00
Útgáfuhóf plötunnar Fórnspeki.
Fram koma Hilmar Örn Hilmars-
son, Umbra, JFDR og Vévaki.
Freyðivín er frábært með til dæmis
sjávarfangi.
Matarkjallarinn
Veitingahús
Hvað?
Framúrskarandi matur og
umhverfi í hjarta miðborgar-
innar.
Fyrir hvern?
Í hádeginu er Matarkjallarinn
frábær staður fyrir stefnumót,
vina- eða vinnufund. Staður-
inn býður upp á einstakt úrval
rétta úr íslensku hráefni og því
er heldur ekki úr vegi að bjóða
erlendum gestum með sér, til
að prófa brot af því besta sem
íslensk matarhefð felur í sér.
Staðurinn er í sögufrægu
húsi og sagan er áþreifanleg og
nálæg þar sem gamli hafnar-
veggurinn er hluti af innrétt-
ingu húsnæðisins sem á sér 160
ára sögu. Matarkjallarinn er
einstaklega hentugur staður til
að skella sér með stórfjölskyld-
unni á stórafmæli eða útskrift,
fyrir smærri hópa sem vilja
gleðjast saman af góðu tilefni.
Þjónustan er persónuleg og
fagleg. Þá er bara að finna gott
tilefni og skella sér!
Ekki þurr brók í
Þjóðleikhús-
kjallaranum
Þjóðleikhúskjallarinn,
Hverfisgötu 19
Feminíski fíf lagangsfjöl-
listahópurinn tjaldar öllu til
í Þjóðleikhúskjallaranum í
kvöld. Frímínútur náðu tali
af Svanhvíti Theu Árnadóttur
sem gengur undir nafninu Miss
S. „Já, ég er í svolitlum redd-
ingum því ég mátti ekki hengja
upp fullorðinsrólu í gamla og
viðkvæma loftið í kjallaranum.
Svo það þarf að mixa eitthvað
annað og endurhugsa atriðið.
Þetta verður allt í góðu.“
Hópurinn lofar eðal-
sýningu þar sem ýmislegt er
látið f lakka. „Já, það er alveg
ákveðinn tryllingur í því að
gera svona sýningu í Þjóðleik-
húsinu. Svona eins og við séum
aðeins að stelast.“ n
friminutur@frettabladid.is
súkkulaði yfir rjómann og svo er
dásamlegt að fá sér góðan bita með
heitu súkkulaði eins og piparköku-
hjarta eða hina frægu Söru. n
Heitt súkkulaði
Fyrir 5-6
200 g 70% dökkt súkkulaði
1 l af mjólk að eigin vali, við not-
uðum laktósafría mjólk
1 espresso bolli vatn, gott að hita
vatn í hraðsuðukatli og flýta fyrir
1 peli þeyttur rjómi eða setja í
rjómasprautu, þá er hægt að leika
listir sína með rjómann ofan á
heita súkkulaðið.
4 kynningarblað A L LT 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR