Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 35
14. nóvember
mánudagur
n Kynveran, nýtt námskeið
Kramhúsið kl. 21.15
Kveiktu á kynorkunni. Nám-
skeiðið er fyrir allar konur sem
vilja stækka og dýpka tengslin
við sig sjálfar.
15. nóvember
þriðjudagur
n Seiðkonustund fyrir konur
Jógastúdíó, Ánanaustum
kl. 20.00
Kvennastundir þar sem kon-
ur koma saman til að næra
hver aðra með þögn, rými og
ásetningi til heilunar.
16. nóvember
miðvikudagur
n Reykjavík Dance Festival hefst
Út um alla borg
Fimm daga dansveisla full af
sýningum, tónleikum, reifum,
vinnustofum, fyrirlestrum,
gönguferðum og samveru.
Nánar má skoða dagskrá á
reykjavikdancefestival.com.
n Kabarett á Kiki
Kiki við Klapparstíg kl. 21.00
Hinsegin kabarett sem stjórnað
er af hinum skoska og sposka
Andrew Sim. Aldrei eins, alltaf
gaman.
17. nóvember
fimmtudagur
n Opnun á Handverki og
hönnun
Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 16.00
Listamennirnir og hönnuð-
irnir sjálfir verða á staðnum og
kynna vörur sínar á sýningunni.
Gróskan er mikil í íslensku
handverki, hönnun og listiðn-
aði og fjölbreytnin mikil.
n Sýrlenskur góðgerðarkvöld-
verður
Kraftur, Skógarhlíð 8
Hópur Sýrlendinga mun mæta
til Krafts og vera með sýrlensk-
an góðgerðarkvöldverð. Allur
ágóði af kvöldverðinum mun
renna til Krafts svo nú er tæki-
færi að styrkja gott málefni og
bragða í leiðinni á einstaklega
ljúffengum sýrlenskum mat.
Hvað er um að vera í næstu viku?
„Świętujmy razem różnorodność
i poznajmy polską kulturę,“ eða
„Fögnum fjölbreytileikanum
saman og fáum innsýn í pólska
menningu með skemmtilegum
hætti,“ en pólsk menningarhátíð
fer fram um víðan völl í Reykja
nesbæ um helgina.
Pólska leikkonan Sylwia Zaj
kowska er verkefnastjóri há
tíðarinnar í ár. „Aðalhugmyndin
í ár er að kynna Íslendinga fyrir
okkur Pólverjum, það er útgangs
punkturinn. Fyrir mér er því há
punkturinn á morgun, laugardag
á markaðnum þar sem Pólverjar
kynna vörur sínar, þjónustu, fyrir
tæki og handverk.“ Markaðurinn
fer fram í SBKhúsinu.
„Svo eru allskonar vinnu
stofur og námskeið og við leggjum
áherslu á að hátíðin er fyrir alla,
ekki bara Pólverja.“
Í Fjörheimum verður dagskrá
fyrir unglinga: Danstími með
Anetu Zumba, línuskautasýning
og hljómsveitin Demo spilar.
Á morgun, laugardag, er núvit
undarganga í Njarðvíkurskógum,
fyrirlestur um skynjunarleiki
fyrir börn og barnasnyrtistofa, og
hátíðin teygir sig líka yfir í kefl
víska djammið en DJ Adam Mucus
Pólsk menningarhátíð í Reykjanesbæ
þeytir skífum á Ránni annað
kvöld.
Á sunnudag er hægt að læra að
gera pólska dumplinga sem heita
pierogi og sýnd verður barna
leiksýningin Tíst, tíst! eða Ćwir,
ćwir! í Duus Safnahúsum. Einnig
verður boðið upp á spunasmiðju
fyrir fullorðna og blómakórónu
vinnustofa fyrir börn. Sylwia
lofar gríðarlega fjölbreyttri hátíð
þar sem öll finna eitthvað við sitt
hæfi.
„Reykjanesbær er fjölmenn
ingarsamfélag og þessi hátíð sýnir
það svo ekki verður um villst.“
Nánari dagskrá má finna á visit
reykjanesbaer.is. n
SÆTA SVÍNIÐ Borðapantanir á saetasvinid.is
LAMBA ROAST 8.900 kr. fyrir 2-3
NAUTA ROAST 10.900 kr. fyrir 2-3
Sylwia Zajkowska segir hátíðina vera menningarstefnumót Pólverja við
Íslendinga. MYND/AÐSEND
n Skrítin staðreynd vikunnar
Svitinn er öryggisatriði
Svitnar þú í lófunum og á
fótunum þegar þú finnur fyrir
stressi? Það getur verið erfitt
að koma í veg fyrir þetta en
svitinn kemur frá þeim tíma
að við sveifluðum okkur á milli
greina, örlítill sviti gaf nefni-
lega betra grip þegar mikið á
reyndi. En ekki of mikið!
ALLT kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 11. nóvember 2022