Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 14
Í æsku grípum við til varnarhátta til að ráða við yfirþyrmandi aðstæður, en svo fylgja þeir okkur út lífið, þangað til við vinnum með þá. Yfirvofandi er þrot ÍL-sjóðs vegna pólitískra mistaka. Eftir rúman áratug fer sjóðurinn í þrot, sam- kvæmt fjármálaráðherra. Ráðherra telur það raunhæfan valkost að setja sjóðinn í slit núna með laga- setningu og senda reikninginn strax til lífeyris þega og sparifjáreigenda. Ríkisstjórnin hefur talað eins og tvær mjög ólíkar útfærslur við að leysa vanda séu í reynd hin sama. Fjármálaráðherra lætur sem það komi út á eitt hvort ríkið standi við skuldbindingar sínar eða ekki. Að það sé hið sama að ríkið standi við skuldbindingar sínar eða færi tjón sitt yfir á aðra. Auðvitað heldur þetta ekki vatni. Fjármálaráðherrann matreiðir þá leið sem „ábyrga“ að lífeyrisþegar greiði kostnaðinn af pólitískum mistökum stjórnvalda. En telst það ábyrgt að ríkið færi reikninginn yfir á aðra? Felst mikil virðing fyrir eignarréttinum í að fara í sparnað lífeyrisþega og sparifjáreigenda til að rétta af bókhald ríkissjóðs? Og boða lagasetningu náist ekki samningar við lífeyrissjóði um þessa niðurstöðu? Vinstri græn blessa Bjarna en Framsókn þegir Í liðinni viku spurði ég Guðmund Inga Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um afstöðu hans til þess að færa skuldir Íbúða- lánasjóðs yfir á lífeyrisþega með þessari aðgerð. Ég spurði hann hvort rétt væri að ganga í sparnað lífeyrisþega með þessum hætti. Hvort hann teldi að þessi aðgerð myndi liðka fyrir kjarasamningum við sömu launþega og eiga að taka reikninginn fyrir fjármálaráðherra. Ráðherra vinnumarkaðarins sagðist styðja formann Sjálf- stæðisf lokksins í þessari aðgerð. Það eru mikil tíðindi. Hann sagði aftur á mótið lítið um áhrif þess á komandi kjarasamninga. Afstaða Vinstri grænna virðist því vera að þau styðja það að fara svona í sparnað lífeyrisþega og sparifjár- eigenda. Þögn frá forystumönnum Framsóknarf lokksins um þetta stóra hagsmunamál almennings, er síðan að verða ærandi. Þeirra afstaða skiptir hins vegar miklu, enda héldu þeir á þessum mála- flokki fyrir tæpum 20 árum síðan. Hin sanngjarna leið Trúverðugleiki ríkisins er í húfi í þessu máli. Ríkið þarf að hafa trú- verðugleika sem ábyrgur aðili við fjármálastjórn, en ekki síður sem lántakandi gagnvart fjármálamörk- uðum. Og gagnvart almenningi. Það blasir við að pólitísk mistök fyrir tæplega 20 árum hafa leitt til mikils tjóns fyrir almenning á Íslandi. Álitaefnið núna er hins vegar hver og hvernig á að greiða fyrir þau dýrkeyptu mistök. Ríkið getur axlað byrðarnar með frekari sölu ríkiseigna, en ríkisstjórnin hefur engan trúverðugleika í þeim efnum. Ríkið getur axlað ábyrgð með lántökum, sem væri í sjálfu sér eðlilegt framhald á stefnu Sjálf- stæðisf lokksins um hallarekstur ríkissjóðs. Ríkið gæti líka axlað ábyrgð með því að dreifa byrðunum á þá sem eru vel færir um slíkt, t.d. með heilbrigðum greiðslum fyrir einkaafnot af sameiginlegum auð- lindum. Íhaldsöflin í ríkisstjórninni eru hins vegar sammála um að gera það ekki. Það er því af og frá að tala með þeim hætti að útfærslan skipti ekki máli. Það er einfaldlega afvega- leiðing ríkisstjórnarinnar á þeim kostum sem eru í stöðunni. Hver greiðir og hvernig? Komi þetta mál til kasta þingsins verður stóra spurningin hvernig sanngjarnast er að deila tjóni sem er tilkomið vegna pólitískra mistaka. Hvernig er réttlátast að kostnað- inum við þetta klúður verði dreift í samfélaginu? Útfærslurnar verða að vera sanngjarnar og þær verða að standast lög. Og það verður að vera markmiðið að verja traust almenn- ings til þess hvernig íslenska ríkið gengur fram. n Reikningurinn sendur á lífeyrisþega Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Við- reisnar Fjármálaráðherra lætur sem það komi út á eitt hvort ríkið standi við skuldbindingar sínar eða ekki. Að það sé hið sama að ríkið standi við skuldbind­ ingar sínar eða færi tjón sitt yfir á aðra. Alma D. Möller landlæknir Embætti landlæknis stendur um þessar mundir fyrir viðamikilli rannsókn á heilsu og líðan lands- manna. Leitað hefur verið til 17 þús- und einstaklinga og þeir beðnir um að svara rafrænum spurningalista. Meginmarkmið þessarar rann- sóknar er að leggja mat á heilsu, líðan og velferð fullorðinna og fylgjast með breytingum sem kunna að verða í tímans rás. Rannsóknin var fyrst framkvæmd árið 2007 og endurtekin árin 2009, 2012 og 2017. Þetta er því í fimmta sinn sem spurningalistinn Heilsa og líðan er lagður fyrir landsmenn og er fólki af erlendum uppruna, sem búsett er hér á landi, nú boðið að taka þátt í fyrsta sinn. Mikilvægi þeirra upplýsinga sem Heilsa og líðan veitir er ótvírætt, enda um að ræða rannsókn sem ekki á sér hliðstæðu hér á landi. Niðurstöður fyrri rannsókna hafa reynst dýrmætur efniviður sem nýttur hefur verið af embættinu, stjórnvöldum, háskólasamfélaginu og öðrum sem koma að mikil- vægum ákvörðunum, aðgerðum og rannsóknum er varða heilsu og vel- ferð landsmanna. Auk þess að veita mikilvægar upplýsingar um heilsu og líðan á fimm ára fresti gera niðurstöður rannsóknarinnar kleift að fylgjast með breytingum sem kunna að verða í tímans rás. Með fyrirlögn í ár verður til dæmis unnt að kanna hvort breytingar hafi orðið á heilsu- fari eða heilsutengdri hegðun á tímum mikilla samfélagsbreytinga í kjölfar heimsfaraldurs af völdum COVID-19. Spurningalistinn er þannig aðlagaður að samfélagi og tíðaranda hverju sinni. Það er ósk mín að þeir sem valist hafa til þátttöku í þetta sinn bregð- ist vel við beiðni embættisins um að svara spurningalista en gögnin eru ópersónugreinanleg þegar þau eru unnin. Með þátttöku fá lands- menn tækifæri til þess að leggja sitt af mörkum til að auka þekkingu á heilsufari fullorðinna, en sú þekk- ing mun nýtast til að efla lýðheilsu. Góð þátttaka eykur gildi rann- sóknarinnar til muna og er framlag hvers og eins mikils virði og mikils metið. n Heilsa og líðan á Íslandi Þetta er því í fimmta sinn sem spurninga­ listinn Heilsa og líðan er lagður fyrir lands­ menn og er fólki af erlendum uppruna, sem búsett er hér á landi, nú boðið að taka þátt í fyrsta sinn. Guðjón Idir tilvistarmiðaður þjálfi hjá Sál- fræðiráðgjöfinni í Lækjargötu Eitt sinn heyrði ég mann segja: ,,Ég er mjög góður í að tala um tilfinn- ingarnar mínar en ég er ekki góður í að finna fyrir þeim.” Þessi lýsing fangaði ákveðna þverstæðu og ég velti þessu fyrir mér eftir á. Hann er meðvitaður um tilfinningar sínar, hann nemur þær en hann finnur ekki mikið fyrir þeim. Að einhverju leyti er eins og að hann standi utan við þær og lýsi þeim frá sjónarhorni þriðju persónu: Ég sé að þessi maður burðast með sorg og sjálfsefasemdir, þessi maður er ég. Hér er tvennt sem vert er að skoða, annars vegar þá gjá sem er á milli tilfinningalífs og vits- munalífs og hins vegar notagildi þess að nýta ólík sjónarhorn. Ef við erum meðvituð um ákveð- inn tómleika getum við reynt að fanga hann með vitsmununum en það verður í besta falli þýðing og ýmis merking tapast í öllum þýðingum. Við náum ekki fyllilega að nálgast tilf inningarnar með vitsmununum einum saman. Við getum lýst tómleikanum, doðan- um, meðvitundinni um að eitthvað vanti og við getum jafnvel gert það af dýpt með ríkulegu orðfæri, eins og þessi maður gerði sem ég nefndi hér að framan. En við erum samt úr ákveðnum tengslum við tilfinning- arnar og þar af leiðandi okkur sjálf. Sálfræðin myndi mögulega líta á þetta sem vitsmunalegan varnar- hátt (e. intellectualisation) þar sem vitsmunum er beitt til að víkja sér undan kvíðavaldandi tilfinningum. Þannig getur maður komið sér upp kulda og fjarlægð þegar kemur að ákveðnu viðfangsefni sem að öðrum kosti myndi opna á erfiðar tilfinningar. Í æsku grípum við til varnar- hátta til að ráða við yfirþyrmandi aðstæður, en svo fylgja þeir okkur út lífið, þangað til við vinnum með þá. Við beitum þeim þegar við gætum ráðið við aðstæður án þeirra og þá lifum við eftir ákveðnu mynstri sem getur rýrt lífsgæði okkar umtalsvert. Eðlileg spurning til þessa manns gæti verið: ,,Hverju óttast þú að finna fyrir?” því álykt- unin hér er sú að tilfinningarnar hafi á einhverjum tímapunkti verið svo yfirþyrmandi að hann hafi myndað fjarlægð eða skil til að bægja þeim frá sér. Það leiðir svo til þess að hann missir tengsl við til- finningalíf sitt. Tilfinningarnar eru samt vitaskuld alltaf til staðar, þótt þær geti verið utan seilingar. Ef maður skoðar sjálfan sig frá sjónarhorni þriðju persónu, getur maður losnað undan gildis- hlöðnum viðhorfum að einhverju leyti. Maður er líklegri til að horfa á þessa manneskju (sjálfan sig) á hlutlægan hátt. Sjá hvað hana skortir, finna með henni samkennd og átta sig á því hvers vegna hún lendir á þessum stað. Fáir leyfa sér að viðurkenna sársauka eða upp- lifun vanmáttar, heldur stimpla þeir þá tilfinningu með dómhörku í eigin garð sem aumingjaskap eða væl. Þegar fólk beinir sjónum sínum að öðrum, er oft styttra í skilning og umhyggju. Þegar við dæmum sársauka okkar sem aumingjaskap eða þvíumlíkt erum við að hunsa mannlegar þarfir okkar. Öll þurfum við jú örugg tengsl, skilning og ást. Að upplifa virði okkar án þess að þurfa að viðhalda því með ákveð- inni hegðun. Það sem virðist þverstæða í fyrstu, það er að geta lýst tilfinn- ingum en ekki fundið fyrir þeim, er í raun ekki lýsing á tilfinningunum sem opnað hefur verið fyrir. Það getur verið lýsing á tómleikanum sem er fyrir hendi vegna tengsla- leysis. Það getur verið tilgáta um hvernig honum myndi líða ef hann opnaði á tilfinningarnar, eða til- gáta um hvernig honum finnst að honum ætti að líða. Með því að tengjast tilfinning- um okkar getum við gert líf okkar merkingabærara og ríkulegra, við upplifum okkur sem ósviknar útgáfur af sjálfum okkur þegar við erum í góðum tengslum við okkur sjálf. Hægt er að lesa alla greinina Þver- stæðurnar okkar á betrivitund.is. n Að upplifa tilfinningar með vitsmunum 14 Skoðun 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRéttAblAðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.