Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 19
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 11. nóvember 2022
Árin fara einkar mjúkum höndum
um Demi Moore. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thordisg@frettabladid.is
Fegurðardísin Demi Moore blæs
á 60 kerta afmælisköku í dag. Hún
ber aldurinn vel, með dökkan
makka, lýtalausa húð og grannan
líkamsvöxt og hefur lítið breyst
síðan hún sló fyrst í gegn á hvíta
tjaldinu á níunda áratugnum.
Uppskriftina að unglegu útlitinu
segir Demi vera hollt mataræði,
reglulega líkamsrækt og jákvætt
viðhorf til lífsins.
„Ég hef þá trú að það eldi okkur
fyrr að byrgja inni reiði, biturð og
sársauka. Ekki er þar með sagt að
við séum alltaf hamingjusöm en
það er mikilvægt að sleppa takinu
á þessum tilfinningum,“ er haft
eftir Demi.
Hún stundar jóga og lætur áfengi
eiga sig eftir að hafa átt í basli með
að setja tappann á flöskuna áður
fyrr. „Ég vil ekki missa af einu
andartaki lífs míns. Það hefst með
því að vera edrú.“
Demi giftist leikaranum Bruce
Willis 1987 en eftir aðalhlutverk í
Ghost 1990 skaust hún á toppinn í
Hollywood. Ári síðar sat hún fyrir
á forsíðu Vanity Fair, nakin og
ólétt. „Þar lagði ég áherslu á að vera
bara ég sjálf og reyna ekki að vera
nein önnur,“ útskýrði Demi um þá
ákvörðun sína.
Á tískupöllum fyrir Fendi í
fyrra varð ýmsum tíðrætt um að
Demi hefði látið laga kinnbein sín
undir hnífnum en aðrir kenndu
lýsingunni um. Hvað sem því líður
er Demi er stórglæsileg nú þegar
glittir í sjötugsaldurinn. n
Demi sextug í dag
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir og Annalísa Hermannsdóttir hafa staðið í ströngu við undirbúning sýningarinnar sem verður frumsýnd í kvöld í Tjarnarbíói.
Á sýningunni, sem samanstendur af sjö örverkum, er velt upp spurningunni: Hvað ef heimurinn væri aðeins fallegri? FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ef heimurinn væri
aðeins fallegri
Listakonan Unnur Elísabet Gunnarsdóttir frumsýnir í
kvöld verkið Nýr heimur ásamt hópi listafólks. Saman hafa
þau samið dúetta og afraksturinn er sjö örsýningar sem
innihalda allt frá sirkuslistum til óléttra karlmanna.
Markmiðið er að senda fólk út með gleði í hjarta. 2
HEILAÞOKA?
Fæst í helstu apótekum - www.celsus.is
AUKIN ORKA
OG FÓKUS