Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 11.11.2022, Blaðsíða 18
 Við getum ekki valið fimmtíu leikmenn í þessu verkefni. Við þurfum að búa til lið og það þarf að búa til sterkan grunn að þessum hópi. Arnar Þór Viðarsson, landsliðs- þjálfari í knattspyrnu Ég er bjartsýnn en jarðtengdur. Við erum í dauðafæri á sögulegum viðburði. aron@frettabladid.is Körfubolti Íslenska karlalands- liðið hefur aldrei verið eins nálægt því að tryggja sér sæti á Heims- meistaramótinu í körfubolta og nú og í kvöld getur liðið komist enn nær því markmiði. Körfuboltasér- fræðingurinn og fyrrverandi leik- maðurinn Svali H. Björgvinsson er bjartsýnn fyrir leik kvöldsins gegn Georgíu. Ísland er fyrir leikinn í þriðja sæti síns riðils, einu stigi á undan Georg- íu. Sigrar í næstu tveimur leikjum gegn Georgíu og Úkraínu geta fleytt Íslandi langleiðina að sæti á HM. „Ég er bjartsýnn en jarðtengdur. Við erum í dauðafæri á sögulegum viðburði í íslenskri íþróttasögu,“ segir Svali við Fréttablaðið. Það býr mikil reynsla í þessu liði, bæði í aldri sem og víðtækri reynslu inni á körfuboltavellinum. Við erum að horfa á hóp landsliðs- manna sem, þrátt fyrir að það vanti Martin Hermannsson, hafa þjappað sér saman og skarað fram úr.“ Öflugir ásar og tromp í kring Íslenska landsliðið sé skipað mjög frambærilegum leikmönnum sem hafa myndað öfluga liðsheild. „Við erum með vopn sem erfitt er að stoppa. Elvar er leiðtoginn í þessu liði sem hefur sýnt mikinn stöðug- leika ásamt Tryggva Snæ Hlinasyni. Þegar þú ert með öfluga ása á borð við þá í liðinu þínu þá áttu að geta raðað mönnum í kringum þá. Þá erum við einnig með aðra leikmenn sem eru á virkilega fínum stað á sínum ferli og ég nefni sem dæmi Jón Axel, Hauk Helga og Kristófer Acox sem hafa verið að spila á virkilega háu gæðastigi. Nú reynir bara á að við nálgumst verkefnið af stillingu. Ekki vera eins og fermingardrengurinn sem bugast undan pressunni við alt- arið.“ Hann vill ekki sjá íslenska liðið koma inn í leikinn með það sem skjöld að bera virðingu fyrir and- stæðingi kvöldsins, Georgíu, sem er að sögn Svala ansi sterkur. „Við eigum ekki að koma inn í þennan leik með það að leiðarljósi að bera virðingu fyrir þessu liði og sjá hvað þeir gera. Staðreyndin er sú að við erum með vopn sem erfitt er að stoppa.“ n Nánar á frettabladid.is Dauðafæri á sögulegum árangri í íslenskri íþróttasögu Elvar Friðriksson verður í stóru hlutverki í Laugardalshöll í kvöld. Fréttablaðið/Sigtryggur ari Arnar Þór Viðarsson, þjálfari A-landsliðs karla í knatt- spyrnu, gekk heilt yfir sáttur frá vináttulandsleiknum gegn Sádi-Arabíu um síðustu helgi. Hann er spenntur fyrir leik dagsins gegn Suður-Kóreu en býst við krefjandi leik gegn afar sterkum andstæðingi. hoddi@frettabladid.is fótbolti Íslenska karlalandsliðið tapaði 1-0 fyrir Sádi-Arabíu í Abú Dabí síðastliðinn sunnudag. Nú er liðið mætt til Seúl, þar sem það mætir heimamönnum í Suður- Kóreu í dag. „Að mestu leyti var ég ánægður með það sem ég sá. Við lögðum upp með að loka á þá og gefa ekki mörg færi á okkur og það tókst. Markið sem við fáum á okkur er eitthvað sem við eigum að geta komið í veg fyrir,“ segir Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari um tapleikinn við Sádi-Arabíu. „Í seinni hálfleik fannst mér við betri á boltanum. Við sköpuðum ekki eins mörg færi og við hefðum viljað, sem er að vísu eðlilegt þegar maður er að kalla saman lið og æfa þrisvar saman. Þá er erfitt að æfa alla þætti. En varnarlega vorum við sáttir.“ Frábær reynsla fyrir leikmenn Leikmannahópur Íslands í þessu verkefni er töluvert breyttur frá því sem vanalegt er. Hann er að mestu skipaður leikmönnum sem eiga almennt ekki greiða leið inn í lands- liðið, margir hverjir koma úr Bestu deildinni hér heima. „Þetta er rosalega góður skóli fyrir þessa stráka. Við erum með unga stráka sem hafa verið að standa sig vel í Bestu deildinni í sumar og eru að taka næstu skrefin. Eins og með Ísak (Snæ Þorvaldsson), það er gott fyrir hann að sjá að næsta skref fyrir ofan er töluvert stærra en deildin á Íslandi,“ segir Arnar, en Ísak spilar með norska stórliðinu Rosenborg á næstu leiktíð. Sem fyrr segir á Arnar von á erf- iðum leik gegn Suður-Kóreu. Skær- asta stjarna liðsins er Heung-Min Son, leikmaður Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. „Við eigum von á mjög krefjandi verkefni. Við spiluðum við þá í janú- ar og þeir eru bara með mjög gott lið. Þeir eru rosalega góðir í pressu, mjög fljótir í að finna pláss sóknar- lega, sækja hratt inn fyrir. Þeir sem þekkja Son hjá Tottenham geta margfaldað það með öllum hinum leikmönnunum, þeir eru allir mjög svipaðir, þetta er þeirra DNA.“ Á betri stað núna Ísland mætti Suður-Kóreu einnig í janúar á þessu ári. Þá þurftu strák- arnir okkar að sætta sig við 5-1 tap. „Ég er búinn að sjá marga leik- menn taka góð skref frá því í janúar. Svo erum við að koma úr keppnis- tímabilinu núna svo við erum í leik- formi. Ég er svolítið spenntur að sjá hvort við getum minnkað bilið frá því í janúar, því ég tel að leikmenn séu á betri stað en þá, sem og við sem A-landslið karla að öllu leyti.“ Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson tók þátt í leiknum gegn Sádi-Arabíu en hann verður ekki með í Seúl. „Aron bauðst til að koma til Abú-Dabí og vera með okkur þar. En af því hann er að koma aftur til Litáen f laug hann bara heim eftir það. Það var frábært að fá hann í þennan eina leik.“ Það er nóg að gera hjá íslenska karlalandsliðinu og starfsfólkinu í kringum liðið um þessar mundir. Eftir annan vináttuleikinn í vik- unni gegn Suður-Kóreu í dag heldur hópurinn til Litáen og tekur þar þátt í Eystrasaltsbikarnum. Þar mætir Ísland heimamönnum á miðviku- dag. Hluti starfshópsins fer í frí eftir leik dagsins og aðrir koma inn fyrir næsta verkefni. „Þetta er mjög langur tími. Við erum að vísu búin að skipuleggja þetta þannig að hluti af starfsfólk- inu fer heim. Þannig að við fáum ferskar hendur, til dæmis í sjúkra- þjálfunina. En það eru sex í starfs- mannahópnum sem fara alla leið,“ segir Arnar. Reynsluboltarnir mikilvægir Leikmannahópurinn gegn Litáen verður skipaður leikmönnum sem eru öllu hærra skrifaðir en þeir sem taka þátt í vináttuleikjunum nú. Menn á borð við Jóhann Berg Guðmundsson og Sverri Inga Inga- son snúa þá aftur í liðið. Meira en ár er síðan þeir spiluðu síðast fyrir Íslands hönd. „Ég lít á þetta sem mjög mikilvægt verkefni og er mjög ánægður með að fá alla þá leikmenn sem við höfum fengið inn í þessum glugga. Það er mjög sterkt að fá Sverri og Jóhann inn aftur. Við höfum verið að taka rétt skref,“ segir landsliðsþjálfarinn í Seúl. Eyst ra sa lt sbik a r inn verðu r síðasta verkefni landsliðsins fyrir undankeppni Evrópumótsins 2024, sem hefst í mars á næsta ári. „Þetta voru leikir sem við urðum að spila samkvæmt samningum við UEFA. Ég vildi ekki fá of sterka andstæðinga þarna af því þetta er lokaundirbúningur okkar fyrir undankeppnina sem hefst í mars. Það er mikilvægt að ná einni viku og tveimur góðum leikjum með hópnum aftur. Við erum að fá Sverri og Jóhann inn og þá erum við búnir að fá alla þá leikmenn sem við vilj- um fá inn á þessu ári í verkefni með okkur. Þá vita allir hvað við erum að gera og hvert við erum að stefna.“ Reyndari leikmenn hafa verið að tínast inn í landsliðið á nýjan leik eftir fjarveru. Það hefur reynst afar mikilvægt. „Við sáum það í september að þegar þessir reyndu leikmenn koma inn þá er ákveðinn hluti af púslu- spilinu sem fellur aðeins betur á borðið. Grunnurinn að þessum hópi er alltaf að verða augljósari. Við töluðum um það í lok árs í fyrra að við þyrftum að vanda valið á leik- mönnum í ár. Við getum ekki valið fimmtíu leikmenn í þessu verkefni. Við þurfum að búa til lið og það þarf að búa til sterkan grunn að þessum hópi. Mér finnst við vera að nálgast það með þennan hóp. Við erum komnir mjög langt í þeirri vinnu,“ segir Arnar Þór Viðarsson. n Grunnurinn að verða klár fyrir næsta ár Arnar Þór Við- arsson lands- liðsþjálfari segir að grunnurinn fyrir næsta ár sé að verða tilbúinn. Frétta- blaðið/EPa 18 Íþróttir 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURÍþRóTTiR Fréttablaðið 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.