Fréttablaðið - 11.11.2022, Side 24
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652.
TARAMAR hefur þróað kynngi-
mögnuð efni úr íslenskri náttúru
sem draga úr sýnilegum áhrifum
öldrunar í húð. Það er aldrei
of seint að draga úr sýnilegum
áhrifum öldrunar, segir Guðrún
stofnandi TARAMAR. „Viðskipta-
vinir okkar eru á öllum aldri, bæði
ungar konur og unglingar sem og
konur og karlar sem eru komin á
háan aldur (90+). Við fáum alltaf
öðru hvoru póst frá konum sem
héldu að þær væru komnar yfir
markið og að ekkert gæti hjálpað,
en eru svo yfir sig ánægðar með
TARAMAR og sjá mun frá hverri
viku til annarrar. Breytingarnar
geta verið svo miklar að vinir og
vandamenn taka eftir þeim og
fara jafnvel að spyrja um hvaða
yngingarmeðal viðkomandi sé að
nota,“ segir Guðrún og hlær.
Sterkari og heilbrigðari húð
Ekki er eingöngu ánægjulegt
að sjá húðina verða sléttari og
fallegri á litinn, heldur er einnig
ótrúlega góð tilfinning að finna
húðina verða sterkari og þéttari og
betri viðkomu, bætir Guðrún við.
„Þannig hafa margir í raun endur-
byggt húðina með því að taka
góðan tíma í að nota TARAMAR
vörurnar eingöngu á húðina.“
Hreinleikinn og snilldarleg
samsetning varanna veldur því að
fólk með alls konar vandamál, eins
og þurrk, rósroða og exem, getur
notað þessar vörur og í mörgum
tilvikum hafa tilteknir kvillar
minnkað mikið eða jafnvel horfið.
„TARAMAR kremin eru ofnæmis-
prófuð og rannsóknir hjá óháðum
aðilum í Frakklandi hafa sýnt að
miklar breytingar verða á húðinni
fyrstu 1-3 mánuðina við notkun
varanna. Húðin verður þéttari
með meiri þéttleika af kollageni,
sléttari með minni hrukkur,
rakameiri og tekur á sig ljóma og
fallegan lit.“
Húðin fer í gegnum breytingar
þegar við eldumst
Þegar við eldumst rofna tengingar
á milli húðlaga og stoðvefirnir
verða gisnari, að sögn Guðrúnar.
„Húðin missir þéttni og fer að
síga. Aðrar breytingar eiga sér líka
stað. Þannig hægir á efnaskiptum í
húðfrumunum, húðin tapar vökva
og verður þurr, blóðrásin hægir á
sér og fíngerðar æðar, til dæmis í
kringum augun, geta lekið út blóð-
vökva þannig að baugar myndast
undir augunum.“
Kollagenþræðirnir missa auk
þess styrk og verða krumpaðir,
húðin missir teygjanleika og línur
og hrukkur myndast. „Ytri og innri
þættir eins og sólarljós, stress,
tilfinningalegt álag og hormónaó-
jafnvægi geta hraðað þessu ferli.“
Allar þessar breytingar eru
ákaflega áhugaverðar, að
sögn Guðrúnar sem segir
starfsfólk TARA MAR
hafa mikla ánægju af
þeim áskorunum
sem felast í því að
búa til húðvörur
sem draga úr
hraða þessara
breytinga og
vinna á móti
þessum nei-
kvæðu ferlum í
húðinni.
Lífvirkar ferjur
gera húðina betri
TARAMAR vör-
urnar byggja á
langtímarannsóknum
á lífvirkum innihalds-
efnum, bæði fyrir matvæli
og húðvörur. „Þannig hefur
þróunin á TARAMAR vörunum
nýtt sér rannsóknaniðurstöður úr
matvælarannsóknum við Háskóla
Íslands á fæðubótarefnum og líf-
virkum efnum úr náttúru Íslands,
svo sem ómega-olíum og kítíni og
þá sérstaklega rannsóknir er snúa
að flutningi þessara efna inn
í líkamann með náttúru-
legum örferjum. Þessar
náttúrulegu ferjur eru
notaðar í TARAMAR
vörunum til að ferja
lífvirku efnin djúpt
inn í húðina þar
sem þau nýtast
til að koma af
stað heilbrigðum
efnaskiptum,
draga úr oxun,
fjarlægja sindur-
efni, styrkja
frumuhimnur
og endurbyggja
tengingar á milli
húðlaga.“
Til að ná jafnvægi
húðar þarf vöru sem er
í jafnvægi
Guðrún segir að eitt það
mikilvægasta við samsetningu
TARAMAR húðvaranna, hafi
verið rannsóknirnar á því hvernig
hægt væri að ná fullkomnu jafn-
vægi í formúlunum og vernda
lífvirknina, sem er í raun tengd
náttúrulegri tíðni efnanna. „Það
Lífvirku kremin frá TARAMAR sökkva
hratt inn í húðina og aðstoða húð-
frumurnar við að ná upp heilbrigð-
um efnaskiptum og réttri virkni.
Finna má
augnkremið og
serumið á mjög
góðum afslætti þann
11. nóvember á
taramar.is.
Næturkremið
tekur þátt í
lífeðlisfræði-
legum ferlum
húðarinnar og
endurbyggir
hana á meðan
þú sefur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Augnkremið byggir á lífvirkni þangs og alparósar sem þéttir húðina og dregur úr fellingum þar sem húðin er farin að síga.
ætti að vera öllum ljóst að það er
erfitt að framkalla jafnvægi í húð
með kremum sem eru ekki sjálf í
jafnvægi. Með því að raða saman
innihaldsefnum sem mynda sam-
hljóm í vörunni, þá náum við fram
virkni sem er einstök. Margir finna
þetta strax bara við það að bera
kremin á sig, en með notkun þeirra
fylgir djúp tilfinning fyrir full-
komnu jafnvægi sem við teljum að
framkalli það besta í húðinni.“
Rannsóknir TARAMAR í fram-
tíðinni munu beinast að þessum
þáttum þar sem starfsfólk mun
auka skilning sinn á því sem er að
gerast í húðinni og hvernig það
tryggir virkni lífvirku efnanna og
auðveldi upptöku þeirra. „Þannig
munum við skilja betur og betur
mikilvægi þess að formúlan sé í
jafnvægi og hvaða efni vinna best
saman og hvernig við pökkum
þeim inn í náttúrulegu ferjurnar
sem færa þau inn í húðina þar sem
þau styrkja lífeðlisfræðilega ferla
og bæta heilsu húðarinnar.“
Í tilefni af degi einhleypra er
hægt að kaupa TARAMAR augn-
kremið og serumið á 30% afslætti í
vefversluninni á taramar.is. n
Ímyndaðu þér húð-
vöru sem er svo
hrein að það mætti
borða hana.
Guðrún Marteinsdóttir
2 kynningarblað 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURSnyrtivörur