Fréttablaðið - 11.11.2022, Page 30
Selena Gomez
Selena Gomez er
með Rare Beauty
en fljótandi
kinnalitur hennar
þykir einstakur.
„Andlitið lifnar
við.“
Kylie Jenner
Hálfsystir
Kardashian-
systra, Kylie,
er með eigin
vörulínu og
þar hefur Lip
Kits-kinnalitur
slegið í gegn sem
ber nafnið Winter Kissed.
Lady Gaga
Lady Gaga er nafnið á bak
við fljótandi eyelinerinn
Haus sem hefur
fengið ótrúlega
góða dóma á
Amazon. Einfalt
að gera skarpa
línu kattaraugans
og svo er auðvelt
að hreinsa
burt eftir
daginn.
Frægustu stjörnur heimsins
eru duglegar að koma á
markað ýmsum snyrti-
vörum sem þær mæla með.
Ilmvatnið hennar Rihönnu
er til dæmis afar vinsælt
og sömuleiðis hársprey
sem kennt er við Jennifer
Aniston.
elin@frettabladid.is
Mjög algengt er að snyrtivöru
merki séu kennd við stórstjörnur
þótt vörurnar séu vissulega mis
vinsælar á markaðnum. Stundum
eru nöfnin fengin að láni en oftar
eru það stjörnurnar sjálfar sem
setja vöruna á markað og þeim fer
fjölgandi. n
Stjörnum prýddar
snyrtivörur
Victoria Beckham
Victoria Beckham er með snyrtivörumerki undir
eigin nafni þar sem hún sameinar
hreinar formúlur og sjálfbærar
umbúðir í lúxusvöru. Vörulínan
hefur verið vinsæl, sérstak-
lega húðvörur, maskari og
augnskuggar að ógleymdum
Posh-varalitnum sem endist
lengi og hefur að geyma
vönduð litarefni. Þessi vöru-
lína er komin til að vera
en svo er ekki um allar
stjörnuvörurnar.
Alicia Keys
Alicia Keys setti Soulcare á
markað. Þetta eru húðvörur sem
þróaðar eru með húðsjúkdóma-
lækni og auglýstar sem hreinar
vörur. Kremið Skin Transform-
ation hefur fengið góð meðmæli
en það hjálpar til við að auka raka
í húðinni.
Drew Barrymore
Drew Barrymore setti förðunar-
vörur á markað árið 2013 sem
hún nefnir Flower Beauty. Hún
hefur sett á markað fjölda vara
undir þessu nafni en uppáhald
margra er púðurkinnalitur sem
hefur slegið í gegn.
Jennifer Aniston
Það er ekkert skrítið þó að nafn
Jennifer Aniston komi upp í
hugann þegar hárvörur eru
annars vegar. Fyrsta varan
sem hún setur á markað
er LolaVie sem á að skila
mjúku, glansandi og silki-
mjúku hári. Stjörnurnar
keppast við að vera með
hrein innihaldsefni og
Jennifer er þar engin
undantekning.
Kim Kardashian
Kim Kardashian setti KKW ilm-
vatnið á markað sem hefur
notið geysimikilla vinsælda.
Hún hefur þó lokað vefsíðu
sinni með þessu ilmvatni og
kynnir nýtt nafn til leiks. Hún
boðar enn frekara vöruframboð á
nýju síðunni og segist leggja hjarta sitt
og sál í hverja ilmvatnsflösku.
Gwyneth Paltrow
Gwyneth Paltrow setti á markað
kremið GoopGlow Microderm
Instant Glow Exfoliator sem
hefur náð miklum vinsældum.
Sjálf segir leikkonan: „Þetta
er kraftmikil andlitsmeðferð
í lítilli krukku. Húðin er mýkri,
sléttari og bjartari og áhrifin koma
fljótt í ljós.“ Hágæða virk og hrein
innihaldsefni. Allar vörur Gwyneth hafa náð miklum
vinsældum.
Jessica Alba
Stjörnurnar eiga það sameiginlegt að leggja mikið
upp úr því að varan sé hrein og náttúruleg. Það á líka
við um Honest Company sem Jessica Alba stendur
fyrir. Hún framleiðir marg-
verðlaunan maskara sem er
EWG-vottaður, gerður úr
hreinum náttúruefnum er
skilar mjög góðum árangri
í að lengja augnahárin. Ný
upplifun í maskara, segja
þeir sem hafa reynt. Til að
fá EWG þarf að stand-
ast ströngustu staðla
varðandi notkun á
aukefnum.
Michelle Pfeiffer
Henry Rose ilm-
vatnið hennar
Michelle
Pfeiffer
skorar hátt
af ilmvatns-
línum fræga
fólksins. Það
er með staðfesta
EWG-vottun sem þýðir að það sé
hrein vara án allra auka- og eitur-
efna.
Doktor Lára G. Sigurðardótt-
ir læknir er höfundur Húð-
bókarinnar ásamt Sólveigu
Eiríksdóttur, sem semur
uppskriftir. Í bókinni eru
ýmsar æfingar fyrir húðina,
uppskriftir að hollum mat
og einfaldar uppskriftir að
húðvörum.
elin@frettabladid.is
„Maður getur orðið þurr á mann
inn af ýmsum ástæðum, eins og
þegar fólk er með leiðindi eða
lítur stórt á sig. Svo getur maður
mögulega orðið þurr á manninn ef
maður er lengi með þurra húð, því
það getur verið ferlega óþægilegt,“
segir Lára og bætir við að húðin
sé alsett taugaendum sem skynja
minnsta veikleika og senda skila
boð til heilans líkt og langlínusím
tal frá geðillri tengdamömmu.
„Taugakerfið skynjar pirringinn
og bregst við með því að segja
húðinni að framleiða hraðar horn
frumur, sem taka ekki út fullan
þroska. Með því getur vítahringur
skapast því ysta húðlagið verður
veikbyggðara, sem veldur því að
húðin tapar enn meiri raka,“ segir
hún.
Ofþornun eða skert starfsemi
„Tvær meginástæður geta legið að
baki húðþurrki. Húðin getur orðið
fyrir ofþornun, til dæmis eftir að
við svitnum mikið, drekkum of
lítið vatn og jafnvel samhliða því
að þamba þvaglosandi drykki (til
dæmis kaffi, koffíndrykki, grænt
te, gos eða áfengi). Slíkur þurrkur
er venjulega tímabundinn. Síðan
getur þurrkur komið fram í húð
sem hefur skerta starfsemi, eins
og með hækkandi aldri þegar fitu
kirtlum fækkar og rakaefni tapast.“
Tvenns konar rakaefni
„Húðin hefur tvenns konar raka
efni sem auka mýkt húðarinnar og
gefa fyllingu. Fyrst eru svokölluð
NFMrakadræg efni í yfirhúð, en
þau draga að sér raka. Nýmyndun
þeirra getur minnkað við ýmsar
aðstæður eins og að liggja lengi í
baði eða baða sig í sól eða ljósa
bekkjum. Erfðir geta átt í hlut og
þekkt er að genabreytileiki getur
valdið skorti á rakaefni þessu, sem
eykur líkur á þurrki, exemi, nikkel
viðkvæmni og óþoli gagnvart
efnum í húðvörum.
Að hafa þennan genaveikleika
veldur þó ekki alltaf húðþurrki
því margir eru með hann án þess
að þjást af húðþurrki. Síðan erum
við með hýalúrónsýrurakaefni í
leðurhúðinni en þau geta bundist
vatni sem nemur þúsundfaldri
þyngd sinni.“
Tíu leiðir til að bæta húðina
„Allir geta upplifað þurrk í húð
sem verður gróf, mött og minna
eftirgefanleg. Til að halda húðinni
heilbrigðri skiptir máli að huga að
næringu og venjum sem bæta raka
ástand húðarinnar, því húðþurrkur
getur ýtt undir bólgu og öldrun,“
segir Lára og gefur hér góð ráð.
n Verndaðu húðina gegn kulda
með því að klæðast hlýjum
fatnaði og bera feitt krem
á óvarða húð utandyra.
Heitir drykkir upp að 60°C geta
hjálpað að ná upp líkamshita.
n Hugaðu að sólarvörn og láttu
ekki blekkjast af sólarleysi því
UVA-geislar lenda á húðinni allt
árið um kring og valda ótíma-
bærri öldrun sem er aðalorsök
þurrks.
n Þú þarft amínósýrur til að fram-
leiða rakaefni og því hjálpar að
borða fjölbreytt próteinríkt
fæði, sérstaklega beinasoð og
skinn. Kollagen-fæðubótarefni
hafa reynst bæta raka sam-
kvæmt rannsóknum.
n Þar sem hýalúrónsýru er aðal-
lega að finna í bandvef dýra
færðu hana til dæmis með
því að borða beinasoð. Sem
fæðubótarefni (120 mg) getur
hýalúrónsýra mögulega bætt
rakaástand.
n Þú þarft líka C-vítamín, sink og
magnesíum til að framleiða
hýalúrónsýru. Sítrusávextir,
grænt grænmeti, möndlur,
kasjúhnetur, baunir og kjúkl-
ingur innihalda þessi næringar-
efni. Eins eru vísbendingar um
að góðgerlar með L. brevi og L.
plantarium auki raka í húð eftir
tólf vikna inntöku. Aftur á móti
eykur sætindaát líkur á þurrki í
húð.
n Húðin þarf einnig góð fituefni
(til dæmis ómega-3 fitusýrur,
kólesteról, seramíð) og E-víta-
mín til að innsigla rakann. Feitur
fiskur (til dæmis lax og lúða),
sardínur, hampfræ, hörfræ,
ólífuolía og avókadó gefur þér
góðan skammt.
n Drekktu vel af vatni svo
rakaefnin hafi eitthvað til að
halda í. Stutt og volg sturta fer
betur með húðina þó að það sé
freistandi að fara í langt heitt
bað. Heita vatnið getur fjarlægt
náttúrulega húðfeiti og valdið
enn meira rakatapi. Ágætt er að
miða við fimm til tíu mínútur í
senn og bera rakakrem strax á
eftir að þú þerrir þig til að inn-
sigla rakann í húðinni. Gættu
þess líka að ofnota ekki sápu
sem fækkar rakaefnum.
n Góð rakakrem gera sitt gagn
og mörg hver innihalda NMF-
rakaefni (til dæmis urea, lactate,
amínósýrur) eða hýalúrónsýru.
Hýalúrónsýra getur þó haft
þveröfug áhrif ef hún liggur utan
á húðinni (þegar sameindir eru
stórar) því þá dregur hún til sín
vatn úr húðinni.
n Rakatæki geta hjálpað ef and-
rúmsloftið er þurrt og þá er það
stillt á um 60%. Þetta á sérstak-
lega við þegar kalt er úti og við
skrúfum upp ofna.
Ef þú gerir mataræðisbreytingar
getur tekið tvo til þrjá mánuði
að sjá árangur. Ef engin ráð duga
skaltu ráðfæra þig við í lækni. Sjúk
dómar eins og vanvirkur skjald
kirtill, sykursýki og ýmsir húðsjúk
dómar geta valdið húðþurrki. n
Góð ráð frá lækninum fyrir húðina
Lára og Solla hafa gefið út bók um húðina þar sem margt fróðlegt er að finna. mynd/aðsend
Nokkrar algengar
ástæður húðþurrks
n Útfjólublá geislun
n Öldrun
n Ofhreinsun
n Löng heit böð
n Sterk þvottaefni og
mýkingarefni
n Næringarskortur
n Sum lyf
n Þurrt og kalt andrúmsloft
n Reykingar
n Retínóíð húðkrem
n Vanstarfsemi í skjaldkirtli
n Estrógenskortur
n Erfðir
8 kynningarblað 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURSnyrtivörur