Fréttablaðið - 11.11.2022, Side 50
Þetta er til
að safna
fyrir hjálm-
um og alls
konar
hlutum.
Það er ekki
verið að
safna fyrir
vopnum
heldur
hlutum
sem bjarga
manns-
lífum.
Áætlað er að hinn
fjölhæfi Prince hafi
samið um þúsund lög
á ferlinum, bæði fyrir
sjálfan sig og aðra. Þar
má nefna Nothing
Compares to You sem
þekktast er í flutningi
Sinéad O’Connor, og
Manic Monday með
The Bangles.
Steinunn Eldflaug Harðar-
dóttir er á leið í tónleika-
ferðalag um Evrópu, þar sem
ágóði tónleikahalds rennur til
söfnunar fyrir hjálpargögnum
í stríðshrjáðri Úkraínu.
ninarichter@frettabladid.is
dj flugvél og geimskip er sviðsnafn
Steinunnar Eldf laugar Harðar-
dóttur, sem leggur í ferðalag í næstu
viku í samstarfi við úkraínska tón-
listarmenn. Markmiðið er að spila
víðs vegar um meginland Evrópu
og safna fyrir hjálparsamtökin Safe
and sound Ukraine, og Musicians
help Ukraine.
Fjöldi hljóðfæra kom í leitirnar
Steinunn varð fyrir því óláni fyrir
nokkrum vikum að öllum hljóð-
færum hennar var stolið úr hljóð-
veri. Þetta setti strik í reikninginn
fyrir fyrirhugaða tónleikaferð og
Steinunn kallaði eftir aðstoð og
lofaði meðal annars súkkulaði-
köku í verðlaun fyrir þann sem gæti
aðstoðað. „Þetta hefur næstum því
komið í leitirnar, nokkrum sinn-
um,“ segir hún aðspurð um fram-
gang málsins. „Ég frétti að það hefðu
fundist alls konar hljóðfæri, svona
random. Af því að allir voru að leita.
Það komu fleiri hljóðfæri í leitirnar
heldur en venjulega. Lögreglan fékk
ábendingar um alls konar hljóðfæri
sem fundust þá, sem voru ekki endi-
lega mín hljóðfæri,“ segir hún og því
leiddi umfjöllunin af sér að ýmsir
tónlistarmenn endurheimtu hljóð-
færi, þó að Steinunn hafi ekki verið
ein af þeim.
Eignaðist lífsreynslu
„Út af þessu komst ég í samband við
nokkra heimilislausa. Þeir höfðu
frétt af því að hljóðfærin mín væru
týnd og fóru að leita fyrir mig. Mér
tókst að baka tvær súkkulaðikökur
fyrir heimilislausa sem leituðu
dag og nótt og borðuðu súkkulaði-
kökur,“ segir Steinunn. „Þannig að
þó að hljóðfærin hefðu ekki fundist
kynntist ég alls konar fólki. Fólki úr
undirheimum og morfínfíklum,“
segir hún. „Það vildu allir leggja
hönd á plóg við að finna hljóðfær-
in. Þó að ég hafi ekki enn þá fengið
hljóðfærin eignaðist ég lífsreynslu.
Þetta er fallegur heimur þegar allir
reyna að gera sitt besta,“ segir hún.
Steinunn heldur í jákvætt viðhorf.
„Þó að hljóðfærin séu ekki komin þá
varð mér svo hlýtt við allan stuðn-
inginn frá fólkinu. Ég hugsaði: Þetta
eru bara hljóðfæri. Við eigum lífið
okkar og ástina,“ segir hún.
Tónlistarbransinn tók sig saman
og lagði hönd á plóg til aðstoðar
Steinunni eftir að hún tjáði sig um
málið í fjölmiðlum. „Hermigervill
er búinn að bjóðast til að lána mér
MPC-inn sinn til að taka upp bakk-
öppin, hann var fyrstur til að hafa
samband. Svo fékk ég lánaðan MPC-
live frá Kára Einarssyni í hljóm-
sveitinni aYia. Ég er búin að vera
að vinna úr gömlum lögum, gera
þau enn betri og maður lærir alltaf
eitthvað af þessu,“ segir Steinunn
glöð í bragði. „Ég fékk líka lánaða
söngpedala frá pabba mínum sem
hann er vanur að nota með hljóm-
borði, en hann er í Apparat Organ
Quartet. Úlfur Eldjárn lánaði mér
líka söngpedal sem er upprunalega
frá Unni Söru Eldjárn söngkonu.“
Evróputúr enn á dagskrá
Steinunn segist því vera komin
með fjölda hljóðfæra en þó séu þau
helmingi færri en þau sem hún er
vön að ferðast með. „Mér tekst að
spila á þau og því er mun auðveldara
að ferðast um en venjulega.“
Evróputúrinn er enn á dagskrá og
Steinunn leggur af stað 14. nóvem-
Bakar kökur fyrir
heimilislausa og
heldur í Evróputúr
Steinunn Eld-
flaug fylgir
úkraínskum
kollegum sínum
á tónleikaferða-
lagi til Frakk-
lands, Hollands
og Sviss.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
ber og spilar með úkraínsku tónlist-
arfólki víðs vegar um álfuna 15.-22.
nóvember.
„Ég á vini frá Úkraínu sem ég
kynntist þegar þau komu til Íslands
að spila fyrir nokkrum árum. Við
erum á samningi hjá sama fyrirtæki
úti í Hollandi og ég var á leiðinni til
Úkraínu að spila þegar stríðið skall
á. Þau lögðu af stað frá Kænugarði,
þar sem þau eiga heima, og héldu
fyrstu tónleikana í fyrradag. Þau
hafa gefið sér þrjá sólarhringa til að
komast til Póllands. Við ætlum að
hittast í Berlín og æfa þar lag sem
við erum að vinna að saman. Við
hittum þrjár úkraínskar hljóm-
sveitir á leiðinni sem við ætlum
að vinna með, samhliða því að við
hittum úkraínska tónlistarmenn,“
segir hún.
Ekki verið að fjármagna vopn
„Við förum til Frakklands, Hollands
og Sviss. Ég fer með þeim til þessara
landa og svo halda þau áfram til
Tékklands. Svo held ég að þau fari
aftur til Póllands. Eins og staðan er
held ég að þau þurfi að fara aftur
heim til sín.“
Um er að ræða hljómsveitina
PreeTone. „Ástæðan fyrir því að
þau fá að fara, er að þau fengu sér-
stök rafræn skjöl frá yfirvöldum.“
Að sögn Steinunnar er verið að
safna fyrir hjálpargögnum. „Þetta
er til að safna fyrir hjálmum og alls
konar hlutum. Það er ekki verið að
safna fyrir vopnum heldur hlutum
sem bjarga mannslífum. Vasaljós-
um og bílum til að komast á milli
staða og útvörpum af því að sums
staðar er ekki rafmagn,“ útskýrir
hún.
Hjálmar sem bjarga mannslífum
Úkraínska hljómsveitin Love'n'joy
stofnaði hjálparsamtökin. „Þeim
tókst á fyrstu mánuðunum að
safna yfir sjö milljónum króna.
Þau eru búin að vera að fá skilaboð
frá vinum sínum, sem eru tónlist-
armenn. Hlutir á borð við: Ég var
með hjálminn minn í gær og það
var sprenging og ég lifði af út af þér
og því sem þið eruð að gera,“ segir
Steinunn. „Þau eru búin að fá mörg
svona skilaboð. Þetta er svakalegt
en líka gott af því að þetta sýnir líka
að allir geta gert eitthvað. Maður
þarf ekki að láta hugfallast. Allir
geta fundið sinn kraft og hjálpað.“ n
Hvað er besta lag sem þú
hefur heyrt og hvers vegna?
Svala
Björgvinsdóttir
tónlistarkona
„Það er alveg
erfitt að koma
með eitt lag. Það
fyrsta sem mér
dettur í hug er
Purple Rain með
Prince. Í fyrsta
lagi þá ólst ég upp við að hlusta á
Prince, út af eldri frænda mínum.
Þetta lag er ótrúlega mikil æska og
nostalgía fyrir mér,“ segir Svala.
„Svo sá ég hann tvisvar spila í LA
á tónleikum. Þetta lag er svona hin
fullkomna popp-power ballaða,“
segir Svala.
„Hann samdi og spilaði og
pródúseraði lagið og var algjör
snillingur.“
Aðspurð hvort að Svala hafi
einhvern tímann sungið lagið sjálf,
svarar hún:
„Ég hef aldrei tekið þetta live
nefnilega. Mig hefur alltaf langað
að gera einhverja kreisí flotta
dívu-útgáfu af því. Ég sá Jennifer
Hudson taka það í LA, og það var
alveg geggjað.“
Bandaríski tónlistarmaðurinn
Prince gaf út Purple Rain ásamt
sveit sinni Revolution árið 1984.
Lagið er titillagið af samnefndri
plötu frá 1984, sem aftur er
safnplata með tónlist úr sam-
nefndri kvikmynd frá sama
ári með Prince í aðalhlutverki.
Lagið er svokölluð kraftballaða
sem sameinar rokk, R&B, gospel
og popp. Prince lést árið 2016, 57
ára að aldri. n
n Lykilspurningin
Prince hafði
gríðarlega breitt
raddsvið.
30 Lífið 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ