Fréttablaðið - 19.11.2022, Page 24
Nína var bara svo
mögnuð kona. Hún
talaði við mig eins og
ég skipti máli og það
skipti mig miklu meira
máli en ég gerði mér
grein fyrir þá.
Hversu
lengi láta
þingmenn
bjóða sér
slíka
háttsemi af
hálfu
forseta?
Hvernig á
fólk að
leita sér
aðstoðar
þegar því
líður illa
þegar tími
hjá sál-
fræðingi
kostar
15–20
þúsund
krónur?
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Hiphop-djamm til minningar
um Nínu Geirsdóttur verður
haldið á sunnudag. Nína lést
nýlega en hún á stóran þátt í
íslenskri hiphop-sögu. Nína
rak verslanirnar Jónas á milli
og Exodus.
birnadrofn@frettabladid.is
Ég sá á Instagram að Nína
væri dáin og það tók á
mig,“ segir takt kjafturinn
Bjartur Guðjónsson, betur
þekktur sem Beatur. Hann
stendur fyrir hiphop-djammi til
minningar um Nínu Geirsdóttur
sem lést nýlega.
Nína stofnaði verslunina Jónas
á milli árið 1992 og síðar Exodus.
Í upphafi var Jónas á milli verslun
sem seldi ýmsa hluti tengda ólíkum
menningarheimum en síðar hóf
Nína að selja fatnað tengdan hip-
hop-menningu.
Árið 1996 skall stór hiphop-bylgja
á Íslandi, allir vildu klæðast fötun-
um sem Nína seldi í Jónasi á milli og
Exodus, baggy-buxum, Southpole,
Enyce og Tribal svo dæmi séu tekin.
Fatastílnum sem um ræðir var gefið
samheitið skopparaföt, þau sem
þeim klæddust voru skopparar og
því nettari sem skopparinn var því
„vanari“ var hann sagður vera.
Í grein sem birtist í DV í ágúst árið
2005 var Nína kölluð „mamma allra
íslenskra skoppara“. Þar segir hún
velgengni Jónasar á milli og Exodus,
hiphop-strákunum í Reykjavík að
þakka. Hún tekur fram hversu vænt
henni þykir um strákana, að það
hafi verið æðislegt að sjá þá vaxa
úr grasi. Beatur er einn þessara
stráka.
„Nína var bara svo mögnuð
kona. Hún talaði við mig
eins og ég skipti máli og
það skipti mig miklu
meira máli en ég gerði
mér grein fyrir þá,“
segir Beatur. „Ég var
bara þrett án ára
„chubby “ strák ur
sem vissi ek kert
hvað hann vildi,
nema að ég vildi vera
töff og hún hjálpaði
mér með það.“
Beatur segir að í
Jónasi á milli og síðar
Exodus hafi Nína boðið
alla velkomna og tekið
öllum opnum örmum. Þar
hafi hún skapað suðu-
pott hiphop-menningar
á Íslandi. „Þarna var
ég að byrja sem takt-
kjaftur, hún hvatti mig
áfram alveg eins og alla
Minnast Nínu með
hiphop-djammi
Beatur segir Nínu hafa reynst
sér vel á hans yngri árum. Á
morgun mun hann ásamt
fleirum minnast hennar
með djammi á Mikka ref.
Jónas á milli var merkt að framan með þessu flotta graffítí. MYNDIR/AÐSENDAR
hina krakkana, hún lét mig alltaf
finna að henni þætti vænt um mig
og það var svo mikið pepp fyrir mig
á þessum tíma og ég þurfti á því að
halda,“ segir hann.
„Þetta var bara geggjaður staður
að vera á. Hún hjálpaði manni að
velja fötin, hvað passaði saman og
svona og þarna eyddi ég bara mjög
mörgum klukkustundum, og öllum
mínum peningum,“ segir Beatur.
Hann segir að allir þeir sem hann
hafi leitað til varðandi minningar-
djamm til heiðurs Nínu hafi tekið
vel í hugmyndina og viljað vera
með. Viðburðurinn fer fram á
morgun á milli klukkan
13 og 18 á Mikka ref á
Hverfisgötu, í húsinu
við hlið hússins sem
hýsti Exodus. Þar
koma fram goð-
sag nir íslensk u
hiphop-senunnar,
ásamt því að hver
sem er getur gripið
í míkrófóninn. n
Beatur á unglingsárunum í fötum frá
Jónasi á milli.
Við mælum með
Le Kock
Hamborgararnir á Le Kock í
Tr yg g vagötu er u ek kert eðli-
lega góðir og það sama má segja
um stemninguna á staðnum. Við
mælum sérstaklega með Trump
Tower Smash-borgaranum, hann
færðu með lauk, súrum gúrkum,
káli, tvöföldum osti, truff lu-tóm-
atssósu, sinnepi og mæjónesi. Kart-
öf lurnar á Le Kock eru líka geggj-
aðar og ólíkar því sem maður er
vanur. Chipotle-kartöflurnar með
beikoni, chipotle-sósu, gvakamóle,
hvítlaukssósu og vorlauk bráðna til
að mynda í munni.
Pósthús-mathöll
Íslendingar virðast vera sólgnir
í mathallir og ber því að fagna
opnun þeirra nýjustu, Pósthúsi-
mathöll. Höllin er staðsett í Póst-
hússtræti og er einstaklega falleg,
hönnuð af Leifi Welding sem er
einnig einn af eigendum mat-
hallarinnar. Í Pósthúsi-mathöll er
fjöldi veitingastaða, sem dæmi má
nefna nýjan stað veitingamannsins
Sigga Hall. n
Hálfdán Árnason var átján ára þegar hann
lenti í bílslysi, hann keyrði á fjórtán ára
stúlku með þeim afleiðingum að hún
lést. Hálfdán segir sögu sína í þessu tölu-
blaði, hvernig hann vann í sjálfum sér til
að öðlast hamingju að nýju og hætta að kenna sjálfum
sér um. Hálfdán hefur unnið í áfallinu síðan árið 2006
með sálfræðingum, geðlæknum og öðrum innan heil-
brigðiskerfisins.
Hann talar um að slík þjónusta ætti ekki að kosta
neitt, Björgvin Páll Gústavsson talar um vanlíðan
ungmenna og hversu mikilvægt það er að leita sér
aðstoðar ef manni líður illa. Hvernig á fólk að leita
sér aðstoðar þegar því líður illa þegar tími hjá sál-
fræðingi kostar 15–20 þúsund krónur og bið eftir
tíma hjá geðlækni er margir mánuðir eða ár?
Björgvin Páll nefnir að á Íslandi svipti að meðal-
tali þrjár manneskjur sig lífi í hverjum mánuði. Það
eitt og sér ætti líklega að vera nægileg ástæða til að
endurskoða kostnað vegna sálfræðiþjónustu eða
biðlista til geðlækna, raunverulega gera eitthvað í
málunum. Á meðan ástandið er enn svona minni ég
alla sem líður illa og vilja aðstoð á Píeta samtökin og
Rauða krossinn. Þar er hægt að fá aðstoð allan sólar-
hringinn, hún kostar ekkert. n
Dýrt að fá aðstoð
BIRNADROFN@FRETTABLADID.IS
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um
sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins
í Íslandsbanka dregur upp mynd
sem í besta falli sýnir getuleysi, van-
kunnáttu og sleifarlag þeirra sem
sáu um þá sölu. Ábyrgðin á verkinu
hvílir hjá fjármálaráðherra en hann
hyggst hrista hana af sér. Af slíku
hefur hann áralanga reynslu.
Í þetta sinn ætlar hann að fórna
forstjóra og stjórnarformanni
Bankasýslunnar. Raunar er sann-
gjarnt að þeir axli sína ábyrgð því
að klúður þeirra er margvíslegt. Þeir
geta hins vegar ekki axlað ábyrgð
þess sem pólitíska ábyrgð ber á ferli
sem var klúður frá byrjun.
Núna blasir við hvers vegna
svo miklu máli skipti að skýrslan
kæmi ekki fram í dagsljósið fyrr en
að landsfundi Sjálfstæðismanna
afstöðnum. Óvíst er að landsfund-
arfulltrúar hefðu treyst sér til að
endurnýja umboð formannsins sem
ber óskipta ábyrgð á því að valdir
einstaklingar fengu að kaupa hluti
í útboðinu, en ekki einungis viður-
kenndir gagnaðilar á markaði, þvert
gegn ráðleggingum ráðgjafa Banka-
sýslunnar.
Önnur skýrsla hefur ekki vakið
eins mikið umtal og sú um banka-
söluna. Í maí 2020 skilaði Ríkis-
endurskoðun skýrslu um starfsemi
Lindarhvols, sérstaks félags sem
fjármálaráðuneytið stofnaði til að
annast sölu á ákveðnum eignum
sem þrotabú gömlu bankanna skil-
uðu til ríkisins.
Þessi skýrsla er enn óafgreidd
tveimur og hálfu ári eftir að hún
kom inn í þingið. Helsta ástæðan
fyrir því er að forseti Alþingis situr
eins og ormur á gulli á greinargerð
fyrrverandi setts ríkisendurskoð-
Skýrslan sem bíður og greinargerðin sem enginn fær að sjá
anda um málið og neitar að afhenda
þingnefndum og fjölmiðlum þrátt
fyrir að forsætisnefnd hafi í apríl
síðastliðnum samþykkt að afhenda
Viðskiptablaðinu greinargerðina.
Greinargerð fyrrverandi ríkisend-
urskoðanda um Lindarhvol dregur
upp dökka mynd af starfsemi félags-
ins, ólíkt skýrslu Ríkisendurskoð-
unar, sem sumir kalla hvítþvott.
Hversu lengi ætlar forseti Alþingis
að sitja á greinargerð sem búið er
að samþykkja að gera opinbera?
Hversu lengi láta þingmenn bjóða
sér slíka háttsemi af hálfu forseta? n
24 Helgin 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 19. nóvember 2022 LAUGARDAGUR