Fréttablaðið - 19.11.2022, Síða 30
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
elin@frettabladid.is
Leitin að upprunanum kallar
fram bæði bros og tár hjá áhorf-
endum enda er þátturinn algjör
tilfinningarússíbani. Auk þess
geta gerst óvæntir hlutir sem koma
Sigrúnu og viðmælanda hennar
stórkostlega á óvart ekki síður en
áhorfendum. Þátturinn síðasta
sunnudag var einmitt þannig.
Viðmælandinn, Ása Nishanthi
Magnúsdóttir, var ættleidd frá Srí
Lanka árið 1985 og hefur leitað
blóðmóður sinnar í mörg ár. Þær
Sigrún töldu sig hafa fundið hana
en DNA-rannsókn leiddi annað í
ljós. Hins vegar breyttist sagan því
vinkona Ásu, Harpa Sif Ingadóttir,
sem einnig er ættleidd frá Srí
Lanka, fann sína móður án þess að
vera að leita að henni.
Fölsk ættleiðingargögn
Hollensk heimildarmynd um ætt-
leiðingar barna frá Srí Lanka upp-
lýsti árið 2017 að börn hefðu verið
seld með svikum til ættleiðinga í
Evrópu. Allt að ellefu þúsund börn
kunna að hafa verið seld til evr-
ópskra fjölskyldna með fölskum
pappírum. Yfirvöld á Srí Lanka
hafa viðurkennt svikin og höfðu í
hyggju að setja upp DNA-gagna-
grunn til að hjálpa börnunum að
finna blóðmæður sínar og systkini.
Ekki hefur enn verið staðið við það
enda fátækt mikil í landinu. Ása
er eitt þessara barna en mynd sem
hún átti og taldi vera af lífmóður
sinni reyndist vera milliliður í
sölu. DNA-rannsóknin leiddi þó
í ljós að konan á myndinni væri
móðir Hörpu sem er fædd á sama
ári og Ása. Um framhaldið á því
máli fjallar þátturinn annað kvöld.
Sagan er lygileg og erfið fyrir Ásu.
Óvænt niðurstaða
„Hverjar eru líkurnar á að svona
gerist?“ spyr Sigrún. „Maður ræður
engu um hvað gerist og hvenær,“
bætir hún við. Þegar Sigrún er
spurð hvort ekki sé löng og flókin
vinnsla við þættina, svarar hún því
játandi. „Þetta er algjört maraþon-
hlaup. Ég var í fæðingarorlofi þegar
þetta mál tók sig upp aftur. Allt í
einu var ég komin í fulla vinnu af
því að það urðu vendingar í máli
sem hafði verið á borðinu hjá mér
í fimm ár,“ segir hún en Ása var í
eldri þáttaröð. Leit hennar bar ekki
árangur þá.
„Í þessu tiltekna máli var ég
mjög upprifin yfir því að við
værum búin að finna móður Ásu.
Ég hafði verið miður mín að það
hefði ekki tekist þegar hún kom
fyrst fram í þættinum. Öll önnur
mál höfðu gengið upp fram að því
og viðmælendur fundið fjölskyldur
sínar. Það tekur langan tíma að
fá niðurstöður úr DNA-rannsókn
og ferlið getur verið mjög flókið.
Sérstaklega þegar heimsfaraldur
er í gangi. Það ratar ekki allt á
skjáinn sem við erum að vinna
að,“ útskýrir Sigrún. „Það er bara
einn aðili í Srí Lanka sem hefur
leyfi til að taka DNA-próf og koma
því úr landi. Vegna Covid var mjög
erfitt að koma því frá landinu og
við urðum að fá hjálp frá ferða-
mönnum og beita alls kyns króka-
leiðum,“ segir hún. „Síðan bíður
maður með öndina í hálsinum
eftir að fá niðurstöðuna. Ég var
reyndar fullviss um að við fengjum
staðfestingu á því að þetta væri
móðir Ásu, sem síðan reyndist ekki
vera. Eiginlega missti ég málið yfir
þessari niðurstöðu. Þetta hvarflaði
ekki að mér,“ segir hún.
Í þessari vinnu hefur Sigrún
kynnst viðmælendum sínum
náið. „Þetta verða vinir manns
enda erum við í mjög miklum
samskiptum. Við erum í tökum
mánuðum saman og förum í ferða-
lag saman. Ég ver meiri tíma með
viðmælendum en mörgum vina
minna meðan á vinnunni stendur.
Stundum grínast ég með að ég vel
engan þann í þáttinn sem ég nenni
ekki með til útlanda,“ segir Sigrún
og hlær. „Ósjálfrátt tekur maður
inn á sig það sem þau eru að upp-
lifa og þá er agalegt að geta ekki
ráðið útkomunni.“
Menningarsjokk
Í þáttunum fer Sigrún með við-
mælendum sínum á framandi
slóðir og heimsækir heimili í
hverfum þar sem fátækt er mikil.
Hún segist hafa ferðast mikið
áður en hún hóf vinnu við þessa
þætti og búið erlendis en þetta
sé allt öðruvísi. „Ég held að það
séu ekki margir Íslendingar sem
upplifa að koma heim til fólks sem
býr við þessar aðstæður. Þetta er
oft algjört menningarsjokk bæði
fyrir mig og viðmælanda minn.
Stundum fær maður skrítna til-
finningu þegar maður kemur aftur
á hótelið þar sem við búum og
síðan í húsið sitt heima á Íslandi.
Það kemur upp hálfgert sam-
viskubit yfir því hvað við höfum
það gott. Þetta á enn meira við um
viðmælendur mína. Þau hafa mörg
talað um þetta samviskubit. Það
er reyndar þekkt hjá ættleiddum
börnum frá framandi slóðum að
sum fá þessa sektarkennd vegna
þess hversu gott uppeldi þau hafa
fengið í allsnægtum.“
Þegar Sigrún er spurð hvort
hún fylgist með viðmælendum
sínum eftir þættina svarar hún því
játandi. „Ég gerði þátt í fyrra um
það hvernig sambandið sé við ætt-
ingja eftir að þeir hafi fundist. Það
kom í ljós að samskiptin voru alla
vega, stundum engin yfir í að vera
nánast daglega. Tungumálaörðug-
leikar geta sett strik í reikninginn.
Ég get nefnt dæmi um Juan Gabriel
Rios Kristjánsson sem kom fram
í fyrsta þættinum í þessari seríu.
Hann breytti nafni sínu og hóf
spænskunám til að vera undir-
búinn ef hann fyndi fjölskyldu
sína í Kólumbíu. Það sýnir hversu
djúp þessi þrá getur verið. Mér
finnst svo skiljanlegt að fólk vilji
vita um uppruna sinn. Þau hafa
mörg orðað það þannig að þetta sé
eins og púsl sem vantar,“ segir hún.
Srí Lanka meiri háttar land
Þetta er fimmta þáttaröð af Leit-
inni en Sigrún vill hvorki játa því
né neita hvort þær verði fleiri. „Ég
segi alltaf að þetta sé sú síðasta en
svo kemur alltaf eitthvað upp sem
krefst fleiri þátta,“ segir hún. „Það
er mikil pappírsvinna í kringum
þættina og ferðalögin krefjast
sömuleiðis alls kyns gagna. Síðan
er alltaf talsverð vinna að finna
einhvern í viðkomandi landi sem
getur aðstoðað okkur. Auri Hin-
riksson hefur hjálpað okkur í Srí
Lanka og er alveg ótrúleg. Hún
er búin að búa á Íslandi í 40 ár og
varð áttræð fyrir skömmu. Auri
leitar ættingja fyrir fólk í mörgum
löndum og fær beiðnir víða frá.“
Sigrún hefur ferðast til þó nokk-
urra landa í þáttunum og farið
á suma staði nokkrum sinnum.
Þar á meðal er Srí Lanka sem hún
hefur miklar mætur á. „Srí Lanka
er ofarlega á blaði yfir þá staði sem
mig myndi langa til að heimsækja
í frítíma,“ segir hún. „Það eru for-
réttindi að fá að starfa við þættina.
Þetta hefur verið ótrúlegur tími
og ég hef kynnst svo mörgu. Mig
hefði aldrei órað fyrir því í upphafi
að þáttaraðirnar yrðu fimm. Það
er ótrúlega skemmtilegt hversu vel
það hefur gengið að finna upp-
runann,“ segir Sigrún, sem hefur
hlotið tvenn Edduverðlaun og
blaðamannaverðlaun fyrir þættina
auk fjölmargra tilnefninga.
Leitin að idolinu
Undirbúningur fyrir Idolið er nú
á lokasprettinum enda styttist í
sýningu. Forval var um allt land
og mikill fjöldi sem vildi vera með.
Um eitt hundrað manns komust
síðan í dómaraprufur í þáttunum.
Beinar útsendingar hefjast þó
ekki fyrr en eftir áramótin þegar
lokasprettur keppninnar fer í gang.
Aðeins örfáir komast þangað. Sig-
rún segist ekki öfunda dómarana
því þarna sé að koma fram heill
hópur af nýjum snillingum á tón-
listarsviðinu. „Þessi unga kynslóð
er líka miklu vanari því að koma
fram fyrir myndavélar heldur en
þeir sem eldri eru. Kynslóð sem er
vön að vera á samfélagsmiðlum,“
segir hún. Dómnefndin er skipuð
þeim Bríeti, Birgittu Haukdal,
Herra hnetusmjöri og Daníel
Ágústi.
Idolið var síðast á dagskrá
Stöðvar 2 árið 2009 en þá voru
þeir Simmi og Jói aðalkynnar
keppninnar. Sigrún og Aron koma í
þeirra stað núna. Sigrún var einnig
kynnir í þáttaröðinni Allir geta
dansað. Hún segir að þótt starf
kynnisins sé ekkert ólíkt þá sé
öðruvísi að vera í Idolinu. „Þetta er
mjög umfangsmikil framleiðsla,
margir sem koma að vinnunni.
Upptökur hafa gengið ótrúlega vel,
Aron kemur sterkur inn og þetta
er búið að vera mjög skemmtilegt.
Ég hef ekki öfundað dómnefndina
í sínum störfum. Þetta er ekki
einfalt val. Það er því gaman að sjá
hvað dómnefndin er með ólíkar
skoðanir.“
Hlakkar til aðventunnar
Auk þess að vera í upptökum á
Idolinu hefur Sigrún verið í anna-
sömu starfi við að klippa og ganga
frá Leitinni að upprunanum. „Það
getur verið snúið að koma öllu
þessu efni fyrir í örfáum þáttum,“
segir hún.
Sigrún er gift og þriggja barna
móðir. Það yngsta er ársgamalt en
hin níu og tólf ára. Fjölskyldan býr
á Akranesi og var nýlega að stækka
við sig. „Við höfum verið að byggja
svo það hefur verið mikið að gera.
Auk þess var erfitt að fara burt frá
þessum litla í heila viku í senn,
en sem betur fer á ég dásamlegan
mann og fjölskyldu. Desember
verður rólegur hjá mér og ég hlakka
mikið til að njóta aðventunnar,
skreyta, baka og syngja jólalög. Ég
elska þennan árstíma,“ segir Sigrún,
sem fær ótrúlegan fjölda pósta frá
fólki sem langar að leita upprunans.
„Á tímabili fékk ég svo mikið að
mér tókst ekki að svara öllum sem
var mjög leiðinlegt. Þetta gerðist
eftir þátt þar sem við leituðum að
bandarískum föður sem hafði verið
í hernum hér heima. Það eru greini-
lega margir í þeim sporum. Annars
þykir mér óskaplega vænt um
hversu góð viðbrögð þættirnir hafa
fengið og það heldur mér sannar-
lega við efnið.“ n
Sigrún Ósk er
kynnir í Idol-
þáttunum sem
fara í loftið
næsta föstudag.
Sigrún segir að
margt hæfi-
leikaríkt fólk
muni birtast á
skjánum í þátt-
unum.
MYND/VILHELM
Ása, hjálparhellan Auri og Sigrún í Srí Lanka. Sigrún segir að Srí Lanka sé frá-
bært land og þangað myndi hún vilja fara í frí.
Í þessu tiltekna
máli var ég mjög
upprifin yfir því að við
værum búin að finna
móður Ásu. Ég hafði
verið miður mín að það
hafi ekki tekist þegar
hún kom fyrst fram í
þættinum.
2 kynningarblað A L LT 19. nóvember 2022 LAUGARDAGUR