Fréttablaðið - 19.11.2022, Page 31
Edda Gustafsson bjó í New
York og Kaupmannahöfn
í 34 ár en flutti heim fyrir
nokkrum árum. Laxveiði
á hug hennar og að henda
öngli í sjó. Edda nýtur þess að
stunda OsteoStrong og finnst
frábært hvað hún finnur
mikla breytingu með stuttri
vikulegri ástundun.
„Ég byrjaði að æfa hjá Osteo Strong
vorið 2020 og varð strax mjög
spennt. Þetta var eitthvað fyrir mig,
einfaldleikinn heillaði mig. Fjögur
tæki og síðan heim,“ segir Edda. „Ég
sá sannfærandi myndband á net
inu og smellti mér í prufutíma. Ég
minntist á þetta við vinkonu mína
sem var til í að koma með mér sem
gerði þetta enn skemmtilegra. Ég
hef prófað of boðslega mörg tæki
í gegnum tíðina en það sem mér
líkar best er að hafa leiðbeinanda
sem fylgist með að æfingin sé rétt
gerð. Það skiptir auðvitað mestu
máli,“ segir hún.
Styrkir líkamann
„Annað sem mér finnst frábært við
OsteoStrong og gerir að verkum að
maður nennir að mæta: það þarf
ekki að skipta um föt eða vera í
einhverjum leggings og svitna,
heldur mætir maður bara, tekur
á og búið. Þetta tekur svo stuttan
tíma. Ég hef náttúrlega talað fyrir
þessu æfingakerfi úti um allan
bæ, ég finn mun, vinir mínir sjá
hann líka auk þess sem líkamleg
geta mín hefur styrkst mikið. Ég
f inn hvernig líkaminn styrkist
eftir hvert skipti og tækin hjá
Osteo Strong geta sömuleiðis sýnt
árangurinn. Þannig getur maður
fylgst með styrktaraukningunni.
Það gleður mig að sjá muninn,
ekki bara finna hann,“ segir Edda
og bætir við: „Ég er með vefjagigt og
gáttatif í hjarta þannig að ég get alls
ekki stundað hvaða íþrótt sem er.
Það er mjög mikilvægt fyrir mig að
fara ekki fram úr mér því þá verða
verkirnir lamandi. Ég hef mjög oft
lent í því að fara út að ganga og fá í
framhaldinu mikla verki, stundum
svo mikla að ég næ ekki að labba
heim. Eftir æfingar í OsteoStrong
upplifi ég ekki nein eftirköst þótt
ég taki á því. Ég fann f ljótt hvernig
verkirnir í líkamanum hjöðnuðu
við ástundun sem lætur manni
líða svo miklu betur andlega,“ segir
Edda, sem hefur glímt við vefjagigt
frá því um tvítugt. Með aldrinum
hef ur sjúkdómurinn versnað.
„Gigtin hverfur aldrei en með því
að stunda æfingar hjá OsteoStrong
get ég haldið verkjunum í skefjum
og mér líður betur,“ segir hún.
Frábært starfsfólk
„Vinkona mín, sem hefur komið
með mér í OsteoStrong, fór á
heilsustofnun í Austurríki í tvær
vikur um daginn. Þar er allt mælt
hátt og lágt í heilsumatinu og sagði
hún lækninum að hún stundaði
OsteoStrong á Íslandi. Hann var
ánægður með það og hvatti hana
til að halda því áfram. Læknirinn í
Austurríki var greinilega með putt
ann á púlsinum,“ segir Edda. „Það
var skrítið að f lytja aftur til Íslands
eftir búsetu í útlöndum svona mörg
ár. Mjög mikilvægt er fyrir mig að
geta farið reglulega til útlanda og
þá er OsteoStrong frábær staður.
Starfsfólkið er sveigjanlegt við mig
og það er ekkert mál að leggja með
limakortið inn ef maður þarf þess,“
segir Edda, sem flutti aftur á æsku
slóðirnar í Vesturbænum. Hún var
í KR á yngri árum og stundaði sund
í Vesturbæjarlauginni. „Ég er því
svolítið rótgróinn Vesturbæingur.“
Edda, eins og margir aðrir, dró sig
út úr æfingum í Covid en byrjaði
aftur fyrir nokkrum mánuðum.
„Vá, hvað ég þurfti á því að halda,“
segir hún. „Ég var f ljót að ná því
Miklu betri líðan með OsteoStrong
Edda Gustafsson segist ekki upplifa nein eftirköst eftir æfingar í OsteoStrong. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
OsteoStrong er
byltingarkennt
æfingakerfi
sem hjálpar
fólki á öllum
aldri að styrkja
sig. Þjálfarar
leiðbeina fólki
og gæta þess að
æfingarnar séu
rétt gerðar.
OsteoStrong er á tveimur stöðum í Reykjavík, Hátúni 12 og Ögurhvarfi 2.
upp sem ég hafði misst niður og
fann f ljótt mun. Ég sagði vinkonu
minni hversu gigtarverkirnir hefðu
minnkað og hversu f ljótt það gerð
ist. Hún hafði sjálf fundið mikinn
mun. Við ætlum að stunda Osteo
Strong áfram vinkonurnar, pössum
upp á hvor aðra og höldum okkur
við efnið. Ég sagði líka við manninn
minn að þetta væri eitthvað sem
ég ætlaði ekki að hætta að stunda,“
segir hún. „Ég elska laxveiði, það er
toppurinn, en ég er líka alveg til í
að fara bara út á sjó. Veiði er mín
besta slökun og hefur verið það
síðan ég henti fyrst öngli í Þing
vallavatn sem barn. Nú hlakka ég
til að standa enn lengur við árnar
næsta sumar þegar ég verð búin að
safna enn meiri styrk í skrokkinn,“
segir hún. n
Stöðvar OsteoStrong eru í Hátúni
12, 105 Reykjavík og í Ögurhvarfi
2, 203 Kópavogi. Frían prufutíma
má bóka á osteostrong.is og í
síma 419 9200.
Ég finn hvernig
líkaminn styrkist
eftir hvert skipti og
tækin hjá OsteoStrong
geta sömuleiðis sýnt
árangurinn. Þannig getur
maður fylgst með
styrktar aukningunni.
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk um 73% á ári
að meðaltali.
n Auka jafnvægi um 77%
á fimm skiptum.
n Minnka líkur á meiðslum.
n Bæta líkamsstöðu.
n Minnka verki í baki og
liðamótum.
n Lækka langtíma blóðsykur.
n Auka beinþéttni.
Bylting í æfingum
OsteoStrong er byltingar
kennt æfingakerfi sem
hjálpar fólki á öllum aldri að
styrkja sig. Meðlimir Osteo
Strong mæta einu sinni í viku
og ná í 20 mínútna heimsókn
að þétta vöðva, sinar, liðbönd
og bein, bæta árangur og
fyrirbyggja meiðsl.
Frír prufutími
Það er boðið upp á fría prufu-
tíma á föstudögum í Ögur-
hvarfi 2 og á fimmtudögum
í Hátúni 12. Hægt er að bóka
sig á osteostrong.is eða í
síma 419 9200.
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 19. nóvember 2022