Fréttablaðið - 19.11.2022, Side 32
Fanney Dóra Veigarsdóttir
byrjaði að prófa að taka inn
Pure Omega-3 frá Good
Routine eftir að hafa upplifað
mikið hárlos. Árangurinn
kom henni virkilega á óvart
en hún hefur ekki þurft að
losa hár úr hárburstanum
sínum í tvo mánuði.
Fanney Dóra eignaðist barn fyrir
19 mánuðum síðan og missti mikið
hár í kringum brjóstagjöfina. Hún
bjóst við að það myndi lagast með
tímanum en hárlosið hélt bara
áfram. Þá talaði hún við vinkonu
sína sem benti henni á að taka inn
Pure Omega-3 frá Good Routine.
„Ég fór fyrst í blóðprufu, en ég
er mikill stuðningsmaður þess að
láta athuga hvaða vítamín maður
þarf áður en maður byrjar að taka
inn bætiefni. Það kom í ljós að mig
vantaði töluvert af vítamínum,“
útskýrir hún.
Í kjölfar blóðprufunnar byrjaði
Fanney Dóra að taka inn Pure
Omega-3 en hún ákvað að taka
líka inn Synergize-Your-Gut fyrir
magaflóruna og Daily-D3 d-víta-
mín, allt frá Good Routine.
„Það er svo mikið af alls kyns
vítamínum á markaðnum og
það er erfitt að átta sig á því hvað
maður á að taka og hvað er betra
en annað. Ástæðan fyrir því að ég
valdi bætiefni frá Good Routine er
að þegar vinkona mín sagði mér frá
þessu merki þá leist mér svo vel á
hvernig bætiefnin eru framleidd og
hver innihaldsefnin eru,“ útskýrir
Fanney Dóra.
„Það skiptir mig máli að það séu
ekki innihaldsefni í þeim vítamín-
um sem ég tek sem ég þekki ekki
eða get ekki auðveldlega fundið út
hver eru.“
Munurinn kom á óvart
Eins og áður segir var Fanney Dóra
búin að glíma við mikið hárlos, en
hún var líka farin að sofa frekar
illa og finna fyrir þreytu.
„Það eru komnir tveir mánuðir
síðan ég byrjaði að taka inn þessi
bætiefni og munurinn sem ég finn
á mér hefur komið mér virkilega á
óvart. Áður fyrr þurfti ég að hreinsa
hár úr hárburstanum mínum að
meðaltali annan hvern dag. En ég
hef ekkert þurfa að gera það síðan
ég byrjaði að taka Omega-3 fyrir að
verða tveimur mánuðum,“
„Ég veit ekki hvort það er blanda
af þessu þrennu, en læknar voru
oft búnir að segja mér að taka inn
Omega-3. Ég hef ekki fundið svona
mikinn mun á mér áður þegar ég
tek inn vítamín. Ég hef alveg fundið
einhvern mun, en þetta er alveg
sjáanlegur munur. Það er líka aug-
ljósara núna því ég var að breyta
um háralit, ég var dökkhærð en
er núna með rautt hár, svo ef ég sé
hár liggja einhvers staðar þá sé ég
það alveg á litnum hvort þetta eru
gömul hár eða ný. Þetta er augljós-
lega að virka fyrir mig.“
Kostir Pure Omega-3
Pure Omega-3 frá Good Routine
inniheldur hæsta styrka af Omega-
3 fitusýrum í hverri skammta-
stærð (1430 mg). Hylkin saman-
standa af ómega-3 fitusýrum í sínu
náttúrulega og stöðuga þríglý-
seríðaformi sem tryggir upptöku í
frumuhimnum.
Pure Omega-3 er framleitt
með einkaleyfisvörðu tækniferli
Flutex™, sem felur í sér fjögurra
stiga sértækt hreinsunarferli. Það
tryggir að þungmálmar og önnur
mengunarefni eru fjarlægð án þess
að notast sé við leysiefni, háan
hita eða aðrar ágengar aðferðir
sem gætu haft áhrif á gæði.
Mælt er með Pure Omega-3 til
að tryggja heilbrigði hjarta, augna,
taugakerfis, húðar, beina og liða-
móta, til að viðhalda eðlilegu
magni lípíða í blóðinu, styrkja
ónæmiskerfið og koma í veg fyrir
ofnæmisviðbrögð og stuðla að
vellíðan þeirra sem neyta ekki
nógu mikils af góðri fitu. Ráð-
lögð notkun eru tvö hylki á dag,
tekin með mat eða vatnsglasi eða
samkvæmt tilmælum sérhæfðs
ráðgjafa. n
Hárlosvandamálið er úr sögunni
Fanney Dóra segist aldrei hafa fundið eins mikinn mun á sér og eftir að hún
byrjaði að taka inn Pure Omega-3 frá Good Routine. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ráðlögð notkun af Pure Omega-3 eru tvö hylki á dag með mat eða vatni.
Björg Brjánsdóttir er mennt-
aður þverflautuleikari með
smekk fyrir klassískri tónlist
jafnt sem popptónlist. Á
mánudag frumflytur hún á
Íslandi nýtt verk eftir Báru
Gísladóttur á tónleikum í
Hörpu.
jme@frettabladid.is
„Báðir foreldrar mínir eru hljóð-
færaleikarar og það var aldrei
spurning hvort ég myndi læra
á hljóðfæri, heldur hvaða. Ég er
með kenningu um það hvernig ég
heillaðist af þverflautunni, en ég
held að Ari Eldjárn hafi verið sá sem
vakti áhuga minn á hljóðfærinu. Ég
var fjögurra ára og það kom eldri
strákur í hvítum jakkafötum og
spilaði í Stundinni okkar í sjón-
varpinu. Þarna ákvað ég að ég
skyldi verða þverflautuleikari,“
segir Björg og kímir.
Björg er menntuð í þverflautuleik
í Noregi, Danmörku og í Þýskalandi
og er sjálfstætt starfandi. „Ég vinn
mikið með íslenskum tónskáldum
við að flytja nýja tónlist. Einnig hef
ég túrað með Björk undanfarin ár
sem hluti af flautuhópnum Víbru,“
segir Björg.
Lýðurinn trylltist
Spurð um eftirminnilegustu tón-
leikana nefnir Björg tvenna. „Báðir
voru ævintýri á ólíkan hátt. Annars
vegar eru það tónleikar með Björk.
Eftir að hafa spilað á mörgum
stöðum var komið að O2 tónlistar-
húsinu í London. Við okkur tók
risastór áhorfendahópur. Ég held ég
hafi aldrei séð svona margar mann-
eskjur í einu. Þetta var alveg mjög
súrrealísk og áhrifamikil tilfinning
og lyfti tónleikunum upp.
Hinir tónleikarnir voru í Þýska-
landi í pínulitlum smábæ. Ég
spilaði fyrstu flautu í fyrsta sinn
með atvinnuhljómsveit. Á dagskrá
var sinfónía eftir Joseph Haydn
(1732–1809) í lítilli gamaldags
gullflúraðri höll, fyrir hóp af fasta-
gestum klassísku senunnar. Það var
mjög absúrd en dásamlegt að spila
eina klassískustu músík veraldar
í landi hinna klassísku hefða í
smábæ í gullhöll. Vanalega er
meiri fjarlægð á milli áhorfenda og
flytjanda á klassískum tónleikum
en popptónleikum. Áhorfendur
létu hins vegar eins og þeir hefðu
verið á tónleikum með uppáhalds-
poppstjörnunni sinni. Það mætti
segja að lýðurinn hafi tryllst,“ segir
Björg og hlær.
Björg á sér marga drauma um að
koma fram með ýmsum hljóm-
sveitum. „Ég hef hvað lengst gengið
með þann draum í maganum að fá
að spila með Emilíönu Torrini. Ég
man að þegar ég fór í blaðaviðtal 13
ára gömul var ég spurð að því hver
væri uppáhaldstónlistin mín. Fyrst
ætlaði ég að segja Emilíana, því ég
hlustaði á fátt annað en hana og
Belle & Sebastian. En ég tók það til
baka og sagðist vera alæta á tónlist.
Ég var svo hrædd um að Emilíana
myndi lesa viðtalið og finnast ég
vera asnaleg. Svo var það titillinn
á viðtalinu, að ég væri alæta á tón-
list.“
Popp og klassík í bland
Björg fylgist með í klassísku
senunni og poppheiminum. „Tón-
listaráhugi minn er tvískiptur.
Suma tónlist hlusta ég á og greini
út frá því sem ég hef lært og spilað
sjálf, en stundum næ ég að taka
inn tónlistina á hlutlausan hátt.
Stundum getur einfalt popplag
verið það besta í heimi. Við höfum
öll einhverja tilfinningu fyrir
sterkri lagasmíð og djúsí melódíu
burtséð frá tónlistarmenntun eða
engri.“
Barnslega áhrifagjörn
„Ég er áhrifagjörn og fæ oft barns-
legt æði fyrir alls konar popp-
músík. Þegar ég finn eitthvað nýtt
að hlusta á er það stanslaust í eyr-
unum á mér eftir á, uns ég er búin
að taka út æðið. Sú hljómsveit sem
ég hef hvað lengst hrifist af, allt frá
fyrstu plötu, er Moses Hightower.
Núna er ég með æði fyrir Unu
Torfa og er spennt að fylgjast með
hvað hún gerir næst.
Það er mikil gróska í gangi og
ég fylgist ekki endilega með öllu
í rauntíma. Það er eins og með
annað menningarefni, stundum
eru allir að tala um einhverja
ákveðna hljómsveit, en það er
ekkert verra að eiga hana inni eins
og góða bók.“
Tónleikar í Hörpunni
Björg er spennt fyrir næsta verk-
efni. „Ég kem fram á kammertón-
leikum í Hörpu með Feima
kammerklúbbi. Þetta verður
Íslandsfrumflutningur Growl
Power fyrir bassaflautu og raf-
hljóð eftir Báru Gísladóttur.
Verkið var samið fyrr á árinu og
er eitt af verkum hennar sem ég
frumflutti í Mexíkó í byrjun árs.
Bára skrifar mikið fyrir f lautu og
við höfum oft unnið saman. Hún
býr til einstakan hljóðheim og
í f lutningnum nota ég röddina
mikið með. Svo bregðast lifandi
rafhljóð við f lautunni. Ég held
að áhugasamir verði þó bara að
mæta og upplifa þetta sjálfir enda
er erfitt að koma þessum hljóð-
heimi almennilega í orð. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 20.00 á
mánudagskvöldið,“ segir Björg að
lokum. n
Yfirgengileg klassík í gullhöll
Þverflautuleikarinn Björg hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum, allt frá
frumflutningi tónverka til tónleikaferðalaga með Björk. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ég hef ekki fundið
svona mikinn mun
á mér áður þegar ég tek
inn vítamín. Ég hef alveg
fundið mun, en þetta er
alveg sjáanlegur munur.
Pure
Omega-3
hylkin saman-
standa af ómega-3
fitusýrum í sínu
náttúrulega
formi.
4 kynningarblað A L LT 19. nóvember 2022 LAUGARDAGUR