Fréttablaðið - 19.11.2022, Síða 62
Það eru að meðaltali
þrjú sjálfsvíg í hverjum
mánuði á Íslandi og
börn eru að finna til
meiri og meiri vanlíð-
unar, þetta er ekki
hægt.
Handknattleiksmaðurinn
Björgvin Páll Gústavsson
gefur út barnabók fyrir
jólin. Hann nýtur þess að
vera fyrirmynd og útilokar
ekki forsetaframboð í næstu
kosningum.
Bókin snýst svolítið um að
gera fólki grein fyrir því að
það eru allir eins og þeir
eru út af einhverju. Það
vill enginn vera óþekkur,
það vill enginn vera lagður í einelti
eða leggja í einelti, það vill engum
líða illa,“ segir Björgvin Páll Gúst-
avsson, handknattleiksmaður og
rithöfundur. Hann gefur út nú fyrir
jólin bókina Barn verður forseti.
Um er að ræða barnabók sem
segir lífssögu Björgvins Páls á barn-
vænan hátt, en hann ólst upp við
erfiðar aðstæður og var til að mynda
um tíma á Barna- og unglingageð-
deild (BUGL) þegar hann var lítill
strákur.
„Ég hef áður gefið út mína sögu
í bók en það hafði verið kallað
eftir því að ég gerði það líka fyrir
börn,“ segir Björgvin Páll. „Þarna
stikla ég á stóru en segi sögu mína,
stráksins sem beit kennarann sinn
þegar hann var sex ára, var tekinn
með hníf í skólanum þegar hann
var átta ára og tólf ára stráksins
sem fékk þá umsögn í sveit að hann
væri barn sem erfitt væri að þykja
vænt um.“
Björgvin segir markmið bókar-
innar vera að auka vellíðan barna,
í bókinni leyfi hann börnum að
spegla sig í honum sjálfum og sögu
hans. „Ég held að það sé mikilvægt
fyrir börn og ungmenni í dag að
heyra það frá einhverjum að þetta
verði allt í lagi og ég held að það
sé mikilvægt fyrir alla að eiga sér
f lottar fyrirmyndir, þegar ég var
lítill átti ég margar fyrirmyndir,
til dæmis Michael Jordan, Jón Pál
og Vigdísi Finnbogadóttur,“ segir
Björgvin Páll.
„Eins fylgdist ég mikið með lands-
liðum Íslands á mínu erfiðasta tíma-
bili, þegar ég var á BUGL, þá fylltist
ég miklu þjóðarstolti, var stoltur af
því að vera Íslendingur,“ segir hann.
Björgvin Páll segir að strax þarna
hafi hann langað að vera fyrirmynd
fyrir aðra. „Mig langaði að verða góð
fyrirmynd fyrir aðra, komast á þann
stað að ég gæti verið fyrirmynd og
það tókst mér með því að verða
góður íþróttamaður og góð mann-
eskja,“ segir hann.
Gerðist hratt
Björgvin Páll hafði lengi gengið með
þá hugmynd í maganum að gefa út
barnabók, hann hafi þó ekki stefnt
á að gera það strax. „Svo kölluðu
aðstæður á það að ég gerði þetta
núna.“
Hann segir að í kjölfar mikillar
umræðu um einelti og vanlíðan
barna í samfélaginu, hafi hann ekki
getað beðið lengur með að gefa út
bókina. „Eins svipti einn einstakl-
ingur innan fjölskyldunnar sig lífi og
þá fannst mér ég verða að láta verða
af þessu, þetta helltist bara yfir mig.
Það eru að meðaltali þrjú sjálfsvíg í
hverjum mánuði á Íslandi og börn
eru að finna til meiri og meiri van-
líðunar, þetta er ekki hægt.“
Björgvin Páll setti stöðuuppfærslu
á Facebook-síðu sína sem fékk mikil
viðbrögð og var svohljóðandi: „Ef þig
langar ekki að lifa lengur ... Heyrðu
í mér! Bara ef þér líður eitthvað illa
... Heyrðu í mér! Það á enginn að
burðast einn með sársauka ...“ Færsl-
an náði til um 45 þúsund manns og í
Vildi alltaf
vera
fyrirmynd
Björgvin Páll
ólst upp við erf-
iðar aðstæður.
Hann deilir
sinni sögu með
börnum með þá
von að hann geti
hjálpað þeim.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Björgvin Páll
gekk lengi með
hugmynd að
barnabók í mag-
anum, hún er nú
komin út, fyrr
en hann gerði
ráð fyrir.
kjölfar færslunnar fékk Björgvin Páll
fjölda skilaboða frá fólki úr ólíkum
áttum. Skilaboðin sem hann fékk
segir hann hafa verið enn meiri
hvatningu til að gefa bókina út sem
fyrst.
„Skilaboðin sem ég fæ þegar ég
set eitthvað svona á netið eru allt frá
því að einhverjum sé illt í tánni og
upp í að fólk vilji ekki lifa lengur, ég
er ekki sérfræðingur en ég reyni að
beina fólki í rétta átt. Það eru til svo
mörg úrræði og það er alltaf betra að
tala við einhvern í stað þess að segja
ekki neitt,“ segir hann.
„Ég held að fólk eigi auðvelt með
að leita til mín af því að ég hef verið
duglegur að berskjalda mig, tala
opinberlega um mína vanlíðan. Ég
svara öllum skilaboðum sem ég fæ
og reyni að vera varkár. Stundum
vísa ég fólki á Píeta og stundum bið
ég fólk að deila sinni líðan með ein-
hverjum sem er þeim nálægt. Það
hefur gerst að ég hafi leitað uppi ætt-
ingja manneskju sem leitaði til mín,
svo mikil var neyðin,“ segir Björgvin
Páll.
„Útgáfa bókarinnar er svo búin að
gerast mjög hratt. Ég hafði samband
við útgáfufyrirtækið sem gaf út hina
bókina mína og sagðist vilja gefa út
barnabók fyrir jólin, þau spurðu
bara hvaða jól og hlógu þegar ég
sagði þessi jól,“ segir Björgvin Páll.
„Svo bara fór allt á fullt og bókin fer
í forsölu núna um helgina.“
Útilokar ekki framboð
Spurður út í nafnið á bókinni, Barn
verður forseti, segir Björgvin Páll
það áminningu um að öll getum
við sett markið hátt og látið okkur
dreyma um hvað sem er. „Sagan
segir líka frá því hvernig framtíðin
gæti litið út, hvort það þýði að ég fari
í forsetaframboð eða ekki verður
tíminn bara að leiða í ljós.“
En langar þig að verða forseti?
„Ég held að ég gæti orðið góður
forseti. Ég tel að mér hafi tekist vel
til í að vera ákveðin fyrirmynd og
sameiningartákn. Ef ég yrði forseti
gæti ég verið fyrirmynd fyrir miklu
fleiri. Verið forseti allra barna, for-
seti íþrótta og allra þeirra sem
standa höllum fæti,“ segir Björgvin.
„Mín orka þessa dagana fer hins
vegar öll í að vera góður eiginmaður
og pabbi, standa mig inni á vellinum
og halda áfram að reyna að vera góð
fyrirmynd og hjálpa öðrum að líða
betur,“ segir Björgvin Páll.
„Handboltinn tekur mikinn tíma
núna, ég stend í ströngu með Val
fram að jólum og síðan eru næstu
20 mánuðir ansi þéttir ef allt gengur
upp. Heimsmeistaramótið er í janú-
ar og á næsta tímabili er Evrópumót
og Ólympíuleikar, ef við komust
þangað,“ segir hann. „Mér skilst að
næstu forsetakosningar séu mán-
uði fyrir Ólympíuleikana, það væri
reyndar mjög áhugavert að verða
fyrsti forsetinn til að keppa þar,“
bætir Björgvin hlæjandi við. n
Ef þér eða einhverjum sem þú þekkir
líður illa skaltu leita þér hjálpar.
Píeta samtökin eru opin allan sólar-
hringinn s: 552 2218, einnig Hjálpar-
sími Rauða krossins s: 1717, og hægt
er að fá aðstoð í netspjalli á 1717.is.
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
30 Helgin 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ