Fréttablaðið - 19.11.2022, Qupperneq 66
Móðir mín
vakti mig
um morg-
uninn og
sagði: Jósef,
Messías er
að nálgast;
fólk hefur
séð hann í
Sambor.
Bruno Schulz
Í dag eru áttatíu ár frá dauða
pólska rithöfundarins og
listamannsins Brunos Schulz.
Messíasar, hans einu og
ókláraðu skáldsögu, hefur
verið leitað alla tíð síðan.
Þann 19. nóvember 1942,
f y r ir nák væmlega 80
árum, var pólski rithöf-
undurinn Bruno Schulz
skotinn til bana af nas-
istaforingja í Drohobych-gettóinu
í Póllandi. Eftir Bruno liggja aðeins
tvö smásagnasöfn og nokkrar teikn-
ingar, en engu að síður hefur einstök
frásagnargáfa og ráðgátan um afdrif
fyrstu og einu skáldsögu hans skráð
nafn þessa hægláta gyðings á spjöld
sögunnar og heimsbókmenntanna.
Þrúgandi heimilislíf
Bruno Schulz fæddist 12. júlí árið
1892 í Drohobych, fámennum bæ
í héraðinu Galisíu, sem heyrði þá
undir pólska konungsveldið en til-
heyrir nú Úkraínu. Bruno var yngst-
ur þriggja barna hjónanna Jacobs og
Henriettu, kaupmanna af gyðinga-
ættum. Jacob, faðir Brunos, rak litla
vefnaðarvöruverslun sem hét eftir
konu hans: Henrietta Schulz. Hann
var heilsuveill maður sem þjáðist
meðal annars af berklum og krabba-
meini og settu veikindin stórt strik í
líf Schulz-fjölskyldunnar.
Bruno erfði sitthvað af taugaveikl-
un föður síns; sem barn var hann
heilsuveill og sagt er að hann hafi
vart hætt sér út á svalirnar á heimili
sínu án þess að vera í fylgd móður
sinnar. Henrietta, móðir Brunos,
var að mörgu leyti andstæða eigin-
manns síns, sterkbyggð og glaðlynd
í skapi sem mildaði þrúgandi and-
rúmsloftið á heimilinu. Hún hafði
þó stöðugar áhyggjur af syni sínum
og eiginmanni; vafði Bruno í bómull
og var allt að því einkahjúkrunar-
kona Jacobs.
Sæluríki bernskunnar
Þótt barnæska Brunos hafi ekki
verið samfellt sumarland þá átti hún
eftir að vera það tímabil í lífi hans
sem hann endurheimsótti hvað
mest þegar á leið og þegar á reyndi.
Sögur Brunos eru allar að einhverju
leyti byggðar á barnæsku hans, en
sögumaðurinn er ungur drengur að
nafni Joseph, sem minnir um margt
á hinn hlédræga og dreymna Bruno.
Æsku Josephs er lýst sem goð-
sagnakenndum heimi þar sem
hversdagslegir atburðir í lífi hans
fá á sig eins konar dulrænan blæ
og staðir í næsta nágrenni Dro-
hobych umbreytast í heillandi og
framandi töfraveröld. Fyrir Bruno
var bernskan eins konar sæluríki
og voru sögurnar leið hans til að
endurvekja hana.
Blessun og bölvun
Bruno stundaði nám í arkitektúr í
Lvív og Vínarborg á árunum í kring-
um fyrri heimsstyrjöld, en kláraði
aldrei próf sökum lélegs heilsufars
og ófriðarástandsins í Evrópu. Árið
1924 fékk hann starf sem kennari í
teikningu og handíðum við Ríkis-
skóla Wladyslaw Jagiello konungs,
sama skóla og hann hafði stundað
nám við sem drengur, sem hann átti
eftir að gegna til 1941.
Kennarastarfið var Bruno bæði
blessun og bölvun að því leyti að það
veitti honum fjárhagslegt öryggi en
tók yfir mestallan tímann sem hann
hefði annars getað nýtt til eigin list-
sköpunar. Engu að síður var það
um þetta leyti sem listrænn ferill
Brunos Schulz byrjaði að blómstra.
Hann hélt fyrstu einkasýninguna á
myndum sínum í Varsjá 1922 og tók
þátt í sýningum í Vilníus, Lvív og
Kraká á næstu árum.
Skáldadraumar og útgáfa
Árið 1930 kynntist Bruno skáldkon-
unni Deboru Vogel í gegnum sam-
eiginlegan vin. Þau mynduðu djúpa
vináttu í gegnum sameiginlegan
áhuga á bókmenntum og listum og í
gegnum Deboru byrjaði skáldaferill
Brunos að blómstra. Í bréfum sínum
til hennar byrjaði Bruno að bæta við
löngum eftirmálum sem innihéldu
uppköst að smásögum.
Debora tók bréfunum vel og
hvatti Bruno til að halda áfram
með sögurnar, sem hann og gerði.
Þegar smásögurnar voru farnar
að taka á sig mynd safnaði Bruno
þeim saman í handrit sem Debora
hjálpaði honum að senda til rithöf-
undarins Zofiu Nalkowsku, sem
var áhrifamikil manneskja í pólsku
menningarlífi. Það var svo í gegnum
Nalkowsku sem fyrsta smásagna-
safn Brunos kom út undir árslok
1933 þegar höfundurinn var 41 árs
að aldri. Bókin bar pólska titilinn
Sklepy cynamonowe, sem á íslensku
útleggst sem Kanilbúðirnar.
Bókin vakti þónokkra athygli
í pólsku bókmenntasamfélagi og
hlaut góðar viðtökur. Bruno fylgdi
Kanilbúðunum svo eftir með öðru
smásagnasafni 1937, Heilsuhæli
undir merki stundaglassins. Þessum
tveimur bókum er gjarnan safnað
saman í eitt safn undir heitinu
Krókódílastrætið, ásamt stökum
smásögum Brunos. Árið 1938 var
Bruno svo sæmdur stærstu viður-
kenningu ferils síns, þegar hann
hlaut hin virtu bókmenntaverðlaun
Pólsku akademíunnar.
Endurreisn á öld snilligáfunnar
Um þetta leyti var Bruno þegar byrj-
aður að leggja drög að sinni fyrstu
skáldsögu sem bar vinnutitilinn
Messías. Messías átti að verða meist-
araverk Brunos; eins konar holdgerv-
ing á þeirri grundvallarkenningu
hugmyndafræði hans að koma frels-
ara gyðinga myndi færa mannkynið
aftur til sæluríkis bernskunnar og
endurreisa öld snilligáfunnar.
Bruno gekk þó hægt að koma
skáldsögunni á blað og entist ekki
aldur til að klára hana. Ekkert hefur
varðveist af Messíasi og lítið er vitað
um efni hennar eða innihald. Þó
er vitað til þess að Bruno las upp
úr frumdrögum handritsins fyrir
nokkra vini sína á stríðsárunum og
samkvæmt frásögnum viðstaddra
hófst hún einhvern veginn á þessa
leið: „Móðir mín vakti mig um
morguninn og sagði: Jósef, Messías
er að nálgast; fólk hefur séð hann í
Sambor.“
Undir verndarvæng nasista
Þann 17. september 1939 réðust
nasistar inn í Drohobych, seinni
heimsstyrjöldin var hafin og Bruno
þurfti að setja skáldadrauminn
aftur á hilluna. Hann gerði sitt
besta til að aðlagast breyttu skipu-
lagi en ljóst var að lítið pláss var
fyrir viðkvæman rithöfund af gyð-
Bruno Schulz og
týndi frelsarinn
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
Bruno Schulz hélt fyrstu einkasýninguna á myndum sínum í Varsjá árið 1922, um það leyti sem
hann teiknaði þessa sjálfsmynd. Ellefu árum síðar gaf hann út sína fyrstu bók. MYND/WIKIPEDIA
Úr sögunni Kanilbúð-
irnar úr smásagnasafninu
Krókódílastrætið
„Ég kom út í vetrarnótt sem
tindraði af birtu himinsins.
Þetta var ein af þessum heið-
skíru nóttum þegar stjörnu-
himinninn er svo djúpur og
víðfeðmur að engu er líkara en
hann hafi sundrast í margar að-
skildar hvelfingar sem nægðu
til að þekja heilan mánuð
vetrarnótta og auk þess tjalda
til silfri og máluðum himin-
hnöttum fyrir öll næturfyrir-
bæri, ævintýri, uppákomur og
kjötkveðjuhátíðir sem tíminn
bæri í skauti sér.“
Bruno Schulz
myndskreytti
sjálfur smá-
sögur sínar.
MYND/WIKIPEDIA
Bruno Schulz skildi aðeins eftir sig
tvö smásagnasöfn. MYND/WIKIPEDIA
ingaættum í miðju stríði.
Bruno fékk tímabundna náð hjá
nasistayfirvöldum, hlaut stöðu
„nauðsynlegs gyðings“ og var tekinn
undir verndarvæng Gestapóforingj-
ans Felix Landau. Sá var húsgagna-
smiður frá Vínarborg sem þrátt fyrir
að eiga föður af gyðingaættum var
einn alræmdasti gyðingamorðingi
Drohobych.
Landau fékk Bruno til að vinna
fyrir sig ýmis störf, sem fólust meðal
annars í því að skreyta barnaher-
bergi í villu Landau-fjölskyldunnar
með veggmyndum byggðum á
Grimmsævintýrum. Árið 2001
enduruppgötvaði þýskur heimilda-
gerðarmaður þessar veggmyndir, en
hluti þeirra var fjarlægður af starfs-
mönnum helfararsafnsins Yad Vas-
hem og f luttur til Ísraels, sem olli
alþjóðlegu hneykslismáli.
Skotinn tvisvar í höfuðið
Undir árslok 1941 var Bruno gert
að yfirgefa heimili sitt og flytja inn
í íbúð í gyðingagettói Drohobych.
Fyrir f lutningana skipti hann
listaverkum sínum og óútgefnum
sögum í nokkra pakka sem hann
af henti kaþólskum kunningjum.
Lítið er vitað um þessa einstaklinga
eða innihald pakkanna, en leiða má
líkur að því að einhverjir þeirra hafi
innihaldið handrit að nánast full-
kláruðu smásagnasafni og frum-
drög skáldsögunnar Messíasar.
Bruno þoldi illa við í gettóinu,
heilsu hans hrakaði og hann skrif-
aði örvæntingarfull bréf til vina
sinna í Varsjá, sem lögðu á ráðin um
að bjarga honum frá Drohobych.
Allt kom þó fyrir ekki því Bruno
f læktist inn í deilur Felix Landau
og annars Gestapóforingja sem hét
Karl Günther. Landau, verndari Bru-
nos, hafði nefnilega myrt gyðing
undir verndarvæng Günthers.
Í hefndarskyni skaut Günther
Bruno Schulz tvisvar í höfuðið og
myrti hann á götu úti 19. nóvember
1942, sama dag og Bruno hefði átt
að flýja til Varsjár. Günther gortaði
sig síðar af því við Felix Landau: „Þú
drapst minn gyðing, ég drap þinn.“
Verndarvængur nasistans hafði
reynst Bruno bjarnargreiði.
Leitin að Messíasi
Hvorki tangur né tetur hefur fundist
af Messíasi, hinni ókláruðu skáld-
sögu Brunos Schulz, en leitin að
bókinni hefur þó orðið fjölmörgum
rithöfundum, blaðamönnum og
fræðimönnum innblástur. Pólska
skáldið Jerzy Ficowski, ævisagna-
ritari Brunos, f læktist í dularfullt
mál á 9. áratug síðustu aldar sem
innihélt óskilgetinn bróðurson Bru-
nos Schulz, sænska sendiherrann í
Varsjá og dularfullan aðila sem
kvaðst hafa handritið að Messíasi í
fórum sínum. Slóð bókarinnar hvarf
þó jafnóðum og hún birtist og sumir
efast jafnvel um að hún hafi nokk-
urn tíma verið til. Sú reyfarakennda
frásögn er rekin í grein bandaríska
rabbínans Niles Elliot Goldstein,
„Chasing ‘The Messiah’ and Bruno
Schulz's Long-Lost Novel“.
Árið 2019 urðu þau tíðindi að
týnd smásaga eftir Bruno Schulz
uppgötvaðist í skjalasafni í úkra-
ínsku borginni Lvív. Bruno hafði
birt söguna Undula, undir dulnefn-
inu Marceli Weron í Świt, dagblaði
olíuiðnaðarins í Drohobych. Sagan
fjallar um masókískar fantasíur
rúmfasts manns og er talin bera
mörg af helstu höfundareinkennum
Brunos Schulz.
Þótt Messías sjálfur reynist enn
utan seilingar veitir uppgötvun
sögunnar heittrúuðum aðdáendum
Brunos Schulz sem bíða enn komu
frelsarans, von.
Greinin er að hluta byggð á þætt-
inum Leitin að Messíasi sem birtist
í útvarpsþáttaröðinni Listin að
brenna bækur á Rás 1 2019. n
34 Helgin 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ