Fréttablaðið - 19.11.2022, Qupperneq 82
KVIKMYNDIR
El Buen Patrón
Leikstjóri og höfundur: Fernando
León de Aranoa
Leikendur: Javier Badem, Manolo
Solo, Almudena Amor
Nína Richter
Góði yfirmaðurinn, á frummálinu
El Buen Patrón, gerist í og við Blan-
cos Básculas-verksmiðjuna, þar sem
allt snýst um jafnvægi en í verk-
smiðjunni eru jú framleiddar vogir.
Blanco er yfirmaðurinn og er í upp-
hafi sögu að undirbúa starfsfólkið
undir heimsókn frá nefnd sem veitir
fyrirtækjum virt verðlaun. Starfs-
manninum Jose er sagt upp um
svipað leyti og nefndin boðar komu
sína og þá upphefst vandræðagangur
meðal stjórnenda sem snýr að því að
bæla niður mótmælaaðgerðir hans
gegn uppsögninni.
Javier Bardem heldur uppi mynd-
inni á köflum sem sjálfsörugga skít-
seiðið og kvennaljóminn Blanco, og
áhorfandinn dáleiðist yfir skrifstofu-
legri moppuhárgreiðslunni ofan á
siðblindu heilabúi persónunnar með
aðdáun og hryllingi.
El Buen Patrón var framlag Spán-
verja til Óskarsverðlaunanna í
ár. Það þjónar myndinni ekki að
vera uppsett eða markaðssett sem
gamanmynd, þó að hún geti verið
grátbrosleg á köf lum. Senurnar
sem settar eru upp sem grínsenur
eru slappasti hlekkurinn í annars
þokkalegri keðju. Bestu sprettirnir
eru hægur kómitragískur bruni sem
fá áhorfandann til að engjast um af
óþægindum. n
NIÐURSTAÐA: Sagan rassskellir
samfélagið og á hápunktinum
býður hún upp á sterk stef um
kynjadýnamík og neyslu á sam-
skiptum, viðskiptum með fólk og
skrifstofupólitík á sama tíma og
leiðarstefið er nánast hallærislega
augljós líking um vogir og réttlæti.
Skemmtanagildi
í grásprengda
skítseiðinu
Javier Bardem fer á kostum.
MYND/SKJÁSKOT
20. nóvember kl. 20:30
Skráning í síma 555 2900
GASTROPUB
Guðlaug Sóley Höskulds-
dóttir er alin upp í Smá-
íbúðahverfinu. Hún flutti
til Svíþjóðar til þess að æfa
skauta, íþrótt sem hún æfði
í þrettán ár. Í dag býr hún í
Hamrahverfi í Grafarvoginum
þar sem hún rekur stúdíó og
semur tónlist undir nafninu
gugusar.
ninarichter@frettabladid.is
Á dögunum kom út platan 12:48 með
gugusar, sem hefur hlotið afburða
dóma gagnrýnenda heima og heim-
an. Erlendir tónlistarblaðamenn sem
sáu gugusar á Airwaves hafa keppst
um að mæra ungu listakonuna og
spara ekki stóru orðin.
Fræið á skautasvellinu
„Ég væri kannski dansari ef ég væri
ekki í tónlist,“ segir Guðlaug sem
svarar spurningum blaðamanns
í síma á sólríkum vetrardegi. Hún
er heima hjá sér í Grafarvoginum,
talar rólega þrátt fyrir að vera yfir-
lýstur orkubolti, og nálgast hlutina af
hógværð. Enn ein rósin í hnappagat
sinnar kynslóðar.
„Ég dansa mikið þegar ég er að
spila á tónleikum, en ég hef ekki
æft dans. Ég æfði skauta í mörg ár,
meiddist og fór svo að gera tónlist,“
segir hún. Á skautasvellinu lá fræið
sem varð óvænt að tónlistarferli.
„Ég byrjaði að klippa keppnistón-
listina mína sjálf þegar ég var mjög
ung. Öllum fannst það skrýtið hvern-
ig ég kunni að klippa lög. Mig lang-
aði að gera þetta betur en þjálfarinn
minn og mér fannst þetta líka svo
áhugavert,“ segir Guðlaug.
Viðtökur með besta móti
Meiðsli settu strik í reikninginn og
skautaferillinn leið undir lok. Guð-
laug, sem hafði mætt á skautaæfingar
fyrir og eftir skóla, hafði skyndilega
mikinn tíma aflögu og þannig tók
tónlistin við. „Ég byrjaði 16 ára að
semja plötuna, ég er 18 ára í dag. Það
er gaman að hún sé loksins komin
út,“ segir hún. Guðlaug segir við-
tökurnar hafa verið með besta móti
og sér í lagi hafi hún fengið hól frá
kollegum sínum í faginu, auk fjöl-
skyldu og vina. „Það er hrósið sem
mér finnst skemmtilegast að fá,“
segir hún.
Að sögn Guðlaugar er Röddin í
klettunum fyrsta lagið sem hún
samdi fyrir þessa plötu.
„Ég var inni í stúdíói að leika mér
með demó og komst í eitthvert zone,“
segir hún og bætir við að sköpunar-
ferlið sé mismunandi eftir lögum.
„Ég á erfitt með að setjast niður og
hugsa: Núna ætla ég að semja svona
lag. Það virkar eiginlega aldrei.
Oftast verð ég að leika mér þangað
til ég finn eitthvað sem mér finnst
skemmtilegt.“
Guðlaug syngur og semur allt sitt
efni sjálf og pródúserar það líka.
Hún segist hafa lent í því að fólk trúi
henni ekki þegar hún segist hafa
pródúserað lögin. „Ég reyni að taka
því sem hrósi. En þetta hlýtur að vera
af því að ég er ung og ég er kona. Þetta
eru sennilega bara fordómar. Það er
fullt af flottum konum að pródúsera
og mér finnst ekki nógu mikið talað
um það.“
Þykir vænst um erfiða lagið
Guðlaug segir mest krefjandi lagið
á plötunni hafa verið Þurfum að
batna. „Það var erfitt lag en mér
þykir vænst um það af öllum lögum
á plötunni. Ég var rosa lengi að vinna
í því og var alltaf að breyta því alveg.
Ég var komin með ógeðslega leið
á þessu og það var ekki fyrr en ég
sýndi mömmu lagið og hún sagði:
Þú verður að hafa þetta með. Þannig
að ég ákvað að taka mér smá pásu og
þá fór ég að fíla það meira og meira,“
segir hún og bætir við hversu fegin
hún sé að hafa farið þá leið.
Þegar Guðlaug semur nýtt lag
setur hún gjarnan upp demó, fer í
göngutúr og hlustar á það aftur og
aftur. „Það hjálpar mér mjög mikið.“
Það virðist vera fantagott verklag,
því að ný gugusar-plata er í vinnslu,
þrátt fyrir að hin nýjasta sé nýlent í
búðum. „Ég er að vinna í nýrri plötu,
ég er komin með fjórtán lög. Ég stefni
Gugusar er að hlusta á
Wildfire
SBTRKT, Little Dragon
„Þetta lag var á repeat hjá
mér þegar ég var í New York
með pabba í sumar. Núna sé
ég alltaf New York og sumar
fyrir mér þegar ég hlusta á
þetta lag. Enda er þetta æðis-
legt lag.“
United in Grief
Kendrick Lamar
„Kendrick Lamar er einn af
uppáhalds listamönnum
mínum. Ég byrjaði að læra
textana hans utan að þegar
ég var í 4. bekk og margir
gerðu grín að mér fyrir það
því ég var svo ung og það
voru ekki margir að hlusta á
svona hiphop á mínum aldri
þá. Ég hlustaði á þetta lag um
daginn og táraðist. Á góðan
hátt.“
Fountains
Drake, Tems
„Þetta lag er svo ótrúlega
þægilegt. Mér líður alltaf
betur þegar þetta lag er í
gangi. Líka þessi lúmski bassi
sem kemur inn 0:39 og hefur
einhver svaka áhrif á mig.“
Bikini bottom
Ice Spice
„Þegar ég hlusta á þetta lag
líður mér smá eins og ég geti
allt sem ég vil. Þetta er svo
mikill sjálfstrausts-bomba.
Veit ekki hvernig ég á að út-
skýra það betur en mér líður
eins og „bad bitch“ þegar ég
hlusta á þetta lag.“
Eyelar
Fred again…
„Þetta lag er líka mjög þægi-
legt. Það er svo æðislegur
smooth synth-i í þessu lagi.
Minnir mig á vetur og kulda af
einhverri ástæðu.“
á útgáfu, og ef samningar eru ekki að
eyðileggja það, þá kemur vonandi
plata á næsta ári. Annars fer þetta
voða mikið eftir flæðinu. Ég er enn
þá bara að klára menntaskóla,“ segir
hún og hlær lágt.
Myndlistarnám og músík
Guðlaug hætti í MH og færði sig yfir
í Myndlistarskólann. „Ég fæ leyfi og
tækifæri til að vera í tónlist og í skóla.
Þetta er krefjandi og ég er kannski
að útskrifast með 5 en ég er sátt með
það bara. Ég er mjög fegin og heppin
að fá að vera í Myndló,“ segir hún. n
Guðlaug er með stúdíó í Grafarvogi og vinnur núna að nýrri plötu. Hennar
nýjasta verk er platan 12:48 sem kom út 11. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ég er að vinna í nýrri
plötu, ég er komin með
fjórtán lög. Ég stefni á
útgáfu, og ef samningar
eru ekki að eyðileggja
það, þá kemur von-
andi plata á næsta ári.
gugusar
Fræið að ferlinum
kom til á skautum
50 Lífið 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 19. nóvember 2022 LAUGARDAGUR