Fréttablaðið - 19.11.2022, Page 84
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Klara Elías gaf á dögunum út sitt fyrsta frumsamda jólalag. MYND/ÓLI MÁR
Klara Ósk Elíasdóttir söng-
kona gaf í vikunni út sitt
fyrsta jólalag. Lagið fjallar um
að hafa það gott með sínum
nánustu um hátíðirnar en hún
segir hvatann hafa verið sífellt
og síaukið stress um jólin sem
hún vildi losa sig við.
lovisaa@frettabladid.is
Söngkonan og lagahöfundurinn
Klara Elías, eða Klara Ósk Elías-
dóttir, gaf í vikunni út sitt fyrsta
frumsamda jólalag sem ber nafnið
Desember.
„Ég vona að þetta veki góðar
tilf inningar hjá fólki. Þetta er
fyrsta jólalagið mitt, að auðvitað
frátöldum Nylon-jólalögunum
sem við gerðum fyrir næstum 20
árum síðan,“ segir Klara og hlær en
hljómsveitin gerði á sínum tíma
ábreiður af þekktum jólalögum.
„Ég var spurð um daginn hvort
ég ætlaði að taka einhver þeirra á
giggum núna um jólin og ég sagðist
eiginlega ekki vita hvort ég hefði
þolinmæði í það. Við sungum þessi
lög ein jólin 27 sinnum í einhverri
tónleikaröð í Kringlunni og það var
nóg fyrir ævina held ég. Ég er mjög
fegin að vera komin með nýtt jóla-
lag til að syngja.“
Blendnar tilfinningar
Spurð hver hafi verið hvatinn að
því að gera jólalag segir Klara að
hún hafi blendnar tilfinningar til
hátíðanna.
„Ég á dásamlegar jólaminningar
úr æsku umkringd fjölskyldu og
það hefur alltaf verið hlýtt og gott
hjá mér um jólin en í seinni tíð þá
hef ég orðið jólastressinu að bráð.
Ég festist í því að vilja hafa allt full-
komið, að kaupa fallegustu jóla-
gjafirnar og að hafa allt hreint og
fínt. Þessir hlutir sem skipta engu
máli og ef ég á að vera heiðarleg búa
bara til kvíða hjá mér,“ segir Klara.
Hún segir að mörg jólalög bein-
tengi hún við þetta stress og því
hafi hana langað að búa til lag sem
fjallaði ekki beint um það sama og
hefðbundin jólalög heldur frekar
um hvað skiptir raunverulega máli
á þessum tíma.
„Lagið er óður til þess sem mér
finnst virkilega skipta máli í des-
ember. Sem fyrir mig er að búa til
minningar með þeim sem ég elska,“
segir Klara og vísar í texta úr laginu
sem kjarni þetta en hann er:
„Þegar þú heldur mér, grípur fast
þá fatta ég að jólin eru að vera með
þér.“
Jólin öðruvísi í ár
Klara segir að maður gleymi þessu
svo auðveldlega og að jólin séu
farin að snúast um eitthvað allt
annað eins og að halda f lottasta
jólaboðið og kaupa f lottustu og
dýrustu gjafirnar.
Ertu þessi jól að gera hlutina
öðruvísi en áður?
„Já, ég hef reynt það síðustu jól
og kannski sérstaklega eftir að
ég f lutti aftur heim,“ segir Klara
en hún f lutti nýlega heim frá Los
Angeles eftir að hafa búið þar í ell-
efu ár.
„Ég var alltaf að koma heim um
jólin og þá upplifði ég svo mikið
stress því ég var að koma svo miklu
fyrir á stuttum tíma. Svo kom ég
aftur heim til LA og hugsaði með
mér hvað ég hefði eiginlega verið
að gera og af hverju ég eyddi svona
miklum tíma í eitthvert ómerki-
legt dót þegar ég hefði bara átt að
fókusa algjörlega á að vera með
mínum nánustu. Það setti þetta í
samhengi fyrir mér.“
Hjartað slær fyrir Hafnarfjörð
Klara segir að hún vilji að nýja jóla-
lagið hennar, Desember, fari með
fólk út úr þessu stressi.
Klara heldur hátíðartónleika 18.
desember í Sundhöll Hafnarfjarðar.
Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi
við Hafnarfjarðarbæ þar sem Klara
ólst upp og býr í dag.
„Ég er Hafnfirðingur niður í
dýpstu hjartarætur og hjartað mitt
slær algerlega fyrir þennan bæ.“
Ókeypis er inn á tónleikana.
Miðasalan var opnuð í gær og
kláruðust allir miðar strax en Klara
segir að til standi að bæta við auka-
tónleikum.
„Það verður að taka frá miða og
ég mun auglýsa aukatónleika eftir
helgi. Það eru takmarkaðir miðar
svo það verður að hafa hraðar
hendur,“ segir Klara að lokum.
Hægt er að hlusta á lagið á öllum
helstu streymisveitun en hún sam-
það og pródúseraði með Þormóði
Eiríkssyni í október síðastliðnum
en Sæþór Kristjánsson hljóðbland-
aði og hljóðjafnaði. n
Varð jólastressinu að bráð
Ég festist í því að vilja
hafa allt fullkomið, að
kaupa fallegustu
jóla gjafirnar og að hafa
allt hreint og fínt.
Klara Ósk Elíasdóttir
„Skemmtilegasta fréttin er að
sjálfsögðu að ég fékk verðlaun, það
gerði mjög mikið fyrir mig,“ segir
Bragi Valdimar Skúlason, dag-
skrárgerðarmaður, skáld, grínisti
og orðasmiður, sem fékk verðlaun
Jónasar Hallgrímssonar á degi
íslenskrar tungu í vikunni.
Umbrot í heimi samfélagsmiðla
hafa einnig vakið kátínu Braga
Valdimars. Twitter stendur höllum
fæti, nýr eigandi sem er efnaðasti
maður heims, Elon Musk, hefur
að því er virðist steypt fyrirtæk-
inu í þrot á mettíma. „Mér fannst
líka mjög gaman að fylgjast með
honum Musk engjast um í sjálf-
skaparvítinu sínu. Fátt skemmti-
legra en að sjá billjónera gera í
buxurnar.
Ríkisendurskoðun á móti banka-
sýslunni finnst mér mjög fallegur
excelskjalaslagur. Ég sé fyrir mér
lítil möppudýr að skríða út úr hol-
unum sínum að búa sig undir bar-
daga,“ segir Bragi Valdimar.
Þá eru fréttir úr heimi matvæla
einnig að rata á radarinn hjá grín-
istanum. „Ég sá stórfrétt um risa-
vaxinn lager af Lucky Charms hjá
einhverri búðarkeðjunni. Þetta
hefur ekki sést í búðum lengi og
það eru grátandi börn og full-
orðnir sem fá ekki Lucky Charms.
Ég held að fólk ætti að hópa
sér saman og leysa út þetta
Lucky Charms. Björgum
Lucky Charmsinu.“
Þá vekur Bragi Valdimar
athygli á því að Taylor Swift
hafi sett Ticketmaster-sölu-
síðuna á hliðina í vikunni en
aðdáendur söngkonunnar
hafa ekki getað keypt sér
miða á nýjustu tón-
leikaröðina. „Ég sá
að Ticketmaster
er búin að af lýsa opnu
sölunni sem átti að fara
í gang í dag, mér finnst
að ríkisstjórnin ætti
að beita sér fyrir því að
við sem viljum fá miða
á Taylor Swift fáum
miða. Þetta er lýð-
heilsumál.“ n
Bragi fær verðlaun og billjónerar gera í buxurnar
n Frétt vikunnar
Bragi Valdimar Skúlason
Bragi
Valdimar
Skúlason
Skannaðu QR
kóðann og skoðaðu
jólatilboðin
Fullt verð: 184.900 kr.
Nú 158.920 kr.
Sealy PORTLAND
heilsurúm með Classic botn
Millistíf dýna með
pokagormum.
Gefur fullkominn
stuðning.
140 x 200 cm.
JÓLIN ERU
Í DORMA
Frábært úrval og gott verð
20%
AFSLÁTTUR AF ALLRI SMÁVÖRU
20%
AFSLÁTTUR
Jól
20%
AFSLÁTTUR
Jól
Nú 95.920 kr.
MONTARIO svefnsófi
Fallegur og einfaldur svefnsófi. Svefnflötur 140x200 cm.
Fullt verð 119.900 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Ve
rð
o
g
vö
ru
up
pl
ýs
in
ga
r
í a
ug
lý
si
ng
un
ni
e
ru
b
ir
ta
r
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
52 Lífið 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ