Fréttablaðið - 24.11.2022, Page 25
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 24. nóvember 2022
Það er gott að vera meðvitaður um
nauðsyn fyrir D-vítamín.
elin@frettabladid.is
Magn D-vítamíns í líkamanum
hefur mikið að segja um hversu
alvarlega líkaminn bregst við
Covid. Þetta kemur fram í nýrri
rannsókn á vegum Statens Serum
Institut í Kaupmannahöfn og Har-
vard-háskóla. Þeir sem höfðu lítið
magn af D-vítamíni fengu mun
verri einkenni en þeir sem höfðu
nægilegt magn af vítamíninu, að
því er Politiken greinir frá.
Tvöfalt meiri hætta var á alvar-
legum veikindum hjá þeim sem
þjást af D-vítamínskorti en hinum
sem höfðu nægt magn. Anders
Hviid, einn rannsakenda, segir að
ekki ætti að taka stóra skammta af
D-vítamíni vegna þessarar niður-
stöðu. „Við þurfum ákjósanlegt
magn D-vítamíns eins og danska
heilbrigðiseftirlitið mælir með,
hvorki meira né minna,“ segir
hann.
Skortur hjá mörgum
Mælt er með því í Danmörku að
börn eldri en fjögurra ára og þeir
sem eldri eru taki daglega 5-10
míkrógrömm af D-vítamíni yfir
vetrarmánuðina, frá október til
apríl.
Rannsóknin var byggð á blóð-
sýnum frá danska blóðbankanum
og eftirlitsgögnum vegna Covid
auk gagna úr sjúklingaskrá. Í rann-
sókninni var gerður greinarmunur
á mismunandi miklum veikind-
um. Fólki sem varð veikt en þurfti
ekki sjúkrahúsinnlögn, þeim sem
voru lagðir inn, voru lagðir inn á
gjörgæslu og síðan þeim sem létust
af sjúkdómnum. n
D-vítamín hefur
áhrif á Covid
Hildur Þórðardóttir er verslunarstjóri hjá Rúmföt.is þar sem hillurnar svigna undan gullfallegum rúmfatnaði, hágæðasængum og koddum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bara það flottasta sem til er
Þegar jólin nálgast fara margir að huga að jólagjöfum fyrir sína nánustu. Hildur Þórðar-
dóttir, verslunarstjóri Rúmföt.is, segir engan þurfa að fara í jólaköttinn því þar fáist frábær
rúmföt frá flottustu vefurum Ítalíu og Þýskalands, og geggjaðar lúxus-sængur og koddar. 2
Jól
í Kópavogi
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is