Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1994, Síða 81
Viðauki II
Áhrif sjónvarps- og myndbandaofbeldis á börn og unglinga
Mörgum finnst það þversögn að ofbeldi er vaxandi vandamál í flestum velmegunar-
þjóðfélögum. Niðurstöður fyrri rannsókna hafa leitt í ljós að ofbeldismyndir geta vakið
árásargimi með bömum og í einstaka tilfellum hefur verið greint ffá ofbeldisaðgerðum bama
og unglinga, sem vom nákvæm eftirlíking á ofbeldissenum úr sjónvarpi.
í Bandaríkjunum er getið um fleiri tugi tilfella ofbeldis á ámnum 1970-1983, sem innblásin
vom af kvikmyndum, fórnarlömbin voru 83, flest karlmenn og vopnin skammbyssur. Þá má
benda sérstaklega á eina kvikmynd, Dádýraveiðar (atriðiði með rússneskri rúllettu), (Wilson
W. et.al. 1983). Fjómm dögum eftir að kvikmyndin "Fæddur saklaus" var sýnd í sjónvarpi
réðust þrjár unglingsstúlkur á níu ára gamla stúlku á strönd Kalifomíu. Að því er virtist reyndu
stúlkumar að líkja eftir atriði úr kvikmyndinni með því að nota flösku til þess að nauðga
fómarlambinu. Ein stúlkan skýrði frá því að meðan á nauðguninni stóð haf drengur, kunningi
hennar, kallað: "Heyrið þið, emð þið að apa eftir því sem gerðist í kvikmyndinni”.
Ung móðir stakk fjögurra ára dóttur sína til bana og skar síðan úr henni hjartað, af því að
bamið var "illur andi". Sjö dögum áður hafði móðirin horft á kvikmyndimar The Exorcist og
The Exorcist II. Ungur maður særði nágranna sinn hættulega með skammbyssu, eftir að hann
hafði horft á Billy Graham í sjónvarpinu. Hann ætlaði að refsa nágrannanum fyrir syndir sínar.
Skort hefur niðurstöður úr langtíma rannsóknum til þess að fá úr því skorið hversu almenn
slík áhrif eru.
Á allra síðustu ámm hafa verið birtar niðurstöður úr fjöldarannsóknum um þetta efni og
verður nokkurra þeirra getið hér.
• Rannsókn meðal bandarískra fanga sem dæmdir vom fyrir ofbeldisverk leiddi í ljós að 22-
36% þeirra höfðu framið ofbeldisverk, sem voru nákvæm eftirlíking á senum úr
ofbeldismyndum í sjónvarpi.
• Birtar voru niðurstöður af rannsókn á föngum dæmdum vegna ofbeldis og samanburður
gerður við aðra sem ekki höfðu hlotið dóm fyrir ofbeldisverk. Eftir að hafa tekið tillit til
hugsanlegra samverkandi þátta, s.s ofbeldis í heimahúsum, vímuefnaneyslu, árangurs í
skóla o.fl., kom í ljós greinileg fylgni milli ofbeldisverka á fullorðinsámm og áhorfs
ofbeldismynda í sjónvarpi í æsku.
• í kanadísku þorpi hófust sjónvarpssýningar árið 1973. I ljós kom að ofbeldisverkum
fjölgaði um 160% meðal unglinga í þorpinu á næstu 10-13 ámm.
• Fjöldi rannsókna frá Kanada og Bandaríkjunum gefa til kynna að jákvæð fylgni er á milli
sjónvarpsáhorfs á yngri ámm og aukinnar árásargimi síðar
í bandaríska læknablaðinu 10. júní 1992, birtist ítarleg rannsókn á tíðni morða í
Bandaríkjunum, Kanada og S-Afríku á síðustu ámm. (sjá myndir).
í Bandaríkjunum og Kanada fjölgaði morðum um nær 100% 15-20 ámm eftir að sjónvarp
hét innreið sína. Aukningin varð fyrst og fremst meðal unglinga og síðan fullorðinna.
Höfundur degur þá ályktun að rekja megi þessa þróun til óheppilegra áhorfs ungra bama á
sjónvarp. Hann rekur mörg dæmi þess að börn læri mest af því sem fyrir þeim er haft og
jafnframt að unglingar sjái ekki fyrir afleiðingar gerða sinna líkt og fullorðnir gera.
Ýmis samtök og stofnanir hafa grandskoðað þessa þróun, svo sem amerísku læknasamtökin,
heilbrigðisyfirvöld, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og bamalæknasamtök í Bandaríkjunu, og
telja að sjónvarpsáhorf og þá sérstaklega ofbeldismyndir hafi haft mikil áhrif á að ofbeldi hefur
aukist mikið.
79