Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1994, Qupperneq 90
IV.2. Lögskilnaðir virðast nokkuð tengdir aldri
Tafla 30:
Aldursbundin skilnaöartíönl
1961-65 1986-90
% %
20-24 ára 9,0 29,1
25-29 ára 8,8 20,8
30-34 ára 7,8 16,9
35-39 ára 6,1 14,9
Yngstu hjónaböndin virðast ótraustust.
IV.3. Áhrif lögskilnaðar ^
Áhrif hjónaskilnaSar:
Það er staðfest í viðamiklum rannsóknum erlendis meðal annars í nágrannaríkjum þar sem
fólk lifir við svipaðar aðstæður og hér, að þeir er lenda í hjónaskilnaði eiga oft við mun meiri
heilsufars- og sálarlega vanheilsu að stríða en þeir sem lifa í farsælu hjónabandi. Nefna má
eftirfarandi:
Vanheilsa og sjúkdómar:
• Kvíði
• Slæm geðheilsa
• Vímuefnanotkun
• Sjálfsvígstilraunir
Sjúkdómar:
• Hjarta- og æðasjúkdómar
• Sjálfsmorð
• Slys
• Hærri dánartíðni
Samverkandi orsakir þessa sjúkdóma eða vanheilsu má meðal annars rekja til fjárhagsvanda,
einangrunar, streitu, sálarkramar, reykinga og neyslu áfengra drykkja. Nokkuð er deilt um
orsakasamband. Eru sumir verr fallnir til þess að lifa í hjónabandi en aðrir vegna þess að þeir
eða þær eiga við vanheilsu að stríða? Trúlega hefur munurinn á heilsufari milli þeirra fráskildu
og giftra minnkað eftir því sem hjónaskilnaðir verða fleiri.
Nýrri niðurstöður benda þó tvímælalaust til þess að verulegur heilsufarsmunur sé á ferðinni.
IV.4. Áhrif lögskilnaða á börn og unglinga 136140
Hvernig farnast börnum sem lenda í skilnaÖi? Oft hefur því verið haldið fram að áhrif
skilnaðar á börn séu einungis skammvinn. Svo er ekki. Samkvœmt niðurstöðum erlendra
rannsókna þjást 113 þessara barna síðar meir af óöryggi og óhamingju, sérstaklega er skilnað
ber að við ungan aldur. Þessi böm em oft haldin vanmáttarkennd, sjálfsásökun, árásargimi og
óróa. Þeim gengur verr í skóla og hverfa oftar frá námi en þau sem ekki verða fyrir þessu áfalli.
88