Leikhúsmál - 01.06.1950, Qupperneq 2

Leikhúsmál - 01.06.1950, Qupperneq 2
2 Leikhúsmál Guðlaugur Rósinkranz: Menningarhliitverk Þjóðleikhússins Með Þjóðleikhúsinu höfum vér íslending- ar eignazt nýja menningarstofnun, stofnun, sem fyrst og fremst hefur því hlutverki að gegna að varðveita þjóðleg verðmæti, leik- bókmenntir vorar og móðurmál. Það er þó ekki nægilegt að varðveita aðeins viður- kennd verðmæti. Ný þurfa að skapast og koma fram á sjónarsviðið. Vér verðum að ávaxta vort pund. Leikhús má ekki staðna í gömlum formum eða stefnum. Það þarf alltaf að vera nýtt og lifandi. Það má aldrei verða andlegur stöðupollur, heldur tær og svalandi lind. Leikhús verður alltaf að taka þá áhættu að koma fram með nýjungar, sem enginn vegur er að vita fyrirfram hvernig tekið verður. Nýir kraftar verða að koma fram og sýna sig, svo og nýjar stefnur og ný sjónar- mið. Það er að sjálfsögðu ekkert höfuðskil- yrði að leikrit sé þannig að áhorfendur séu í öllu sammála höfundinum og því síður því, sem hinar einstöku persónur leikritsins segja. En þetta álíta því miður, allt of margir leik- húsgestir. Aðalatriðið er, að fram komi í leikritinu sönn lífsmynd gerð af raunsæum skilningi á mannlegu lífi og vandamálum þess. Fram- setning og flutningur leikritsins verður og að ' sjálfsögðu að vera í listrænu formi. Sé þessa gætt, má fullyrða að leikhúsið vinni trúlega menningarhlutverk sitt, þótt sjónarmið og skoðanir höfunda og áhorfenda renni ekki í sömu slóð. Ekkert leikhús með sjálfsvirðingu og hug- sjónir má freistast til þess að fylgja fordæmi allt of margra kvikmyndafélaga um, að skapa og viðhalda lífslyginni. Ómótaðir og van- kunnandi unglingar, kynnast í kvikmyndun- um fyrst og fremst lífi áúðmanna og iðju- leysingja, er lifa innihaldslausu og einskis- verðu skemmtanalífi. Þeir kynnast fríðu, vel Guðlaugur Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri. snyrtu og vel klæddu fólki í skrautlegum salarkynnum, er ekur milli skemmtistaða í gljáfægðum bifreiðum af nýjustu gerð. Slíkar glansmyndir af lífinu eru sízt fallnar til þess að skapa þrek, þor eða lífshamingju. Nei, slíkar myndir skapa öfund og lífsleiða í hug- arheimi áhorfandans, þegar hann kemur aft- ur til sjálfs sín, í hinum gráa hversdagsleika. Eftir verður tómleikinn einn. Ekki svo að skilja að gott leikhús megi ekki bregða upp fallegum lífsmyndum ofar hversdagsleikan- um, eða flytja vel gerða gamanleiki, síður en svo. Öllu gamni fylgir nokkur alvara. Gott gamanleikrit skilur alltaf eitthvað eftir til íhugunar. í formi græzkulauss gamans eru oft hin dýrmætustu sannindi sögð. Eitt er það verkefni, sem þörf er á að gefa gaum, en það er að gefa yngri kynslóðinni kost á leiksýningum við sitt hæfi. En sorg- leg vöntun ét enn á barna- og unglingaleik- ritum. Þá má það og telja til menningarverkefna Framhald á hls. 45

x

Leikhúsmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1739

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.