Leikhúsmál - 01.06.1950, Qupperneq 59
Leikhúsmál
59
Menningarsjóður
Þjóðleikhússins
var stofnaður í tilefni af opnun leikhúss-
ins þ. 20. apríl ’50.
Uppkast af skipulagsskrá sjóðsins. —
SKIPULAGSSKRÁ
fyrir Menningarsjóð Þjóðleikhússins.
1. gr.
Sjóðurinn er stofnaður á vígsludegi Þjóð-
leikhússins með 2.000.00 króna framlagi frá
Þ j óðleikhússtj óra.
2. gr.
Sjóðurinn tekur við gjöfum og áheitum.
Eigi má veita styrki úr honum fyrr en hann
er orðinn 40.000.00 krónur, og þá aldrei meira
en nemur % ársvaxta höfuðstólsins. Fé sjóðs-
ins skal varðveita í ríkistryggðum verðbréf-
um eða á annan jafntryggan hátt að dómi
sjóðsstjórnar.
3. gr.
Tilgangur sjóðsins er að veita þeim, er
starfa við Þjóðleikhúsið styrki, sem leita
vilja sér frekari menntunar í starfi sínu.
4. gr.
Stjórn sjóðsins skipa: Þjóðleikhússtjóri,
sem jafnframt er formaður sjóðsstjórnar og
einn fulltrúi kjörinn af fastráðnum starfs-
mönnum við Þjóðleikhúsið, og einn kosinn
af meðstofnendum sjóðsins, en þeir teljast
allir, sem skráð hafa nöfn sín og gefið þegar
stofnskráin er birt. Kjör meðstjórnenda gildir
um fjögur ár í senn.
5. gr.
Stjórn sjóðsins ber ábyrgð á fjárreiðum
hans. Hún skal árlega birta reikninga sjóðs-
ins í Lögbirtingablaði, eftir að þeir hafa ver-
ið endurskoðaðir af tveim endurskoðendum,
er fastir starfsmenn leikhússins kjósa til f jög-
urra ára í senn.
6. gr.
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið.
Fréttatilkynning
frá Bandalagi íslenzkra leikfélaga
Að undirlagi þeirra Ævars R. Kvarans
leikara, Lá:rusar Sigurbjörnssonar rithöfund-
ar og Þorsteins Einarssonar íþróttafulltrúa,
var boðað til undirbúningsfundar 12. júní s.l.
til að stofna bandalag með leikfélögum og
öðrum félögum, sem hafa á starfsskrá sinni
að sýna sjónleiki á landi hér. Á þeim fundi
mættu fulltrúar frá 10 leikfélögum, 9 ung-
mennafélögum, 1 íþróttafélagi, 1 stúku og 1
héraðssambandi ungmenna- og íþróttafélaga.
Var samþykkt að boða til stofnfundar Banda-
lags íslenzkra leikfélaga (skammstafað: B.Í.-
L.) eigi síðar en um miðjan ágúst og kosin
undirbúningsnefnd til að ganga frá frum-
varpi til laga fyrir bandalagið. í nefndinni
áttu þessir fulltrúar sæti: Ævar R. Kvaran
formaður, Lárus Sigurbjörnsson ritari, Helgi
S. Jónsson (U.M.F. Keflavíkur), Sigrún Magn-
úsdóttir (Leikfél. ísafjarðar), Þóra Jónsdóttir
(Stúkan Framsókn, Siglufirði), Sigurður
Gíslason (Leikfél. Hafnarfjarðar) og Pétur
Sumarliðason (U.M.F. Þórsmörk, Fljótshlíð).
Nefndin samdi lagafrumvarp, sem var sent
út með fundarboði til stofnfundar 12. ágúst.
Á laugardaginn var, komu samkvæmt þessu
saman í Baðstofu iðnaðarmanna í Reykjavík,
fulltrúar frá 15 leikfélögum, 10 ungmennafé-
lögum, 2 stúkum, 1 íþróttafélagi og 1 héraðs-
sambandi ungmennafélaga.
Helztu greinar samþykktra laga eru þessar:
Tilgangur bandalagsins er, að vinna að efl-
7. gr.
Leita skal staðfestingar forseta íslands á
skipulagsskrá þessari og breytingum, er á
henni kunna að verða gerðar.
8. gr.
Skipulagsskrána skal birta í B-deild Stjórn-
artíðinda.
Reykjavík, 20. apríl 1950.
Bráðabirgðastjórn Menningarsjóðs
Þjóðleikhússins.