Leikhúsmál - 01.06.1950, Síða 41

Leikhúsmál - 01.06.1950, Síða 41
Leikhúsmál 41 Óperan. Frá vinstri: Folke Jonsson, frú Allard, Gösta Björling*, Sigurd Björling, frú Görlin, Joel Berglund, óperustjóri, Hjördis Schymberg. þjóð. Sinfóníuhljómsveitm okkar, undir stjórn Kurt Bendix, sem nú í fyrsta sinn lék undir, við stórt og vandasamt óperuverk, stóð sig svo vel, að við gátum verið stoltir af, enda naut hún stjórnar ágæts hljómsveitarstjóra, þar sem Kurt Bendix var. Hann stjórnaði hljómsveitinni af mjög mikilli kunnáttu, ná- kvæmni og hárfínum smekk. Eric Lowen Áberg og Yngvi Thorkelsson voru leiksviðs- stjórar. Ljósameistarar: Hans Nilsson og H. Backmann. Leikhúsgestir tóku þessari fyrstu óperusýningu hérlendis, með hljóðlátri, al- varlegri aðdáun í byrjun frumsýningarinn- ar, menn fundu auðsýnilega að hér var að fara fram þýðingarmikill og sérstæður við- burður í menningarlífi íslenzku þjóðarinnar, en þegar leið á sýninguna snérist þessi stemning í hrifningu, sem smá óx eftir því sem á leið, og í leikslok flæddi stórkostleg hrifning leikhúsgesta eins og voldug flóð- bylgja inn yfir leiksviðið og leikendurna, svo fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna; loks eftir 11 framkallanir gátu leikhússtjóri, og formaður leikhúsráðs flutt ávörp sín á leik- sviðinu til hinna ágætu listamanna, ásamt lárviðarsveig. Þeim bárust einnig fagrar blómakörfur og rósavendir. En óperustj. færði leikhúsinu fagran lárviðarsveig frá kgl. óper- unni í Stokkhólmi. Gert var ráð fyrir 6 sýningum, en vegna geysilegrar aðsóknar var höfð ein aukasýn- ing. Leiktjöld og búningar voru frá sænsku Loftur Guðmundsson: Síðasta sýning Leikfélagsins í Iðnó. J5I. VA IvÁPAN * Óperetta í 3 þátlum með forleik eftir Walter og Willy Kollo. Leikstjóri: Haraldur Björnsson. L. R. sýndi í vetur óperettuna „Bláa kápan“ 1 Iðnó, við eindæma góða aðsókn. Að vissu leyti mátti telja þetta kveðjuleik félags- ins, því að þótt svo fari, að það haldi áfram störfum í „gamla staðnum", verður það með öðru starfsliði og sennilega öðrum hætti. Fer að vísu vel á því, að það kveður Iðnó með léttum og skemmtilegum söngleik, en gaman hefði nú verið, ef það hefði séð sér fært að sýna þar til dæmis „Nýársnóttina“ tvisvar til þrisvar sinnum í Iðnó, skömmu áður en sýningar á þeim sama leik hófust í Þjóðleik- húsinu. Þá hefðu áhorfendur fengið enn betra tækifæri til samanburðar. Ekki þar fyrir, að í Iðnó hefur íslenzk leiklist orðið það, sem óperunni. í því sambandi má til gamans geta þess, að sagt var út um bæinn, að leiktjöldin hefðu hvergi komizt inn í húsið og orðið hefði að saga þau sundur í smáparta, til þess að þau kæmust inn. Sum blöðin voru meira að segja svo ógætin, að birta þessa fjarstæðu, sem enginn fótur var fyrir. Þetta er óneitanlega mjög vel af stað farið. Fullkomin óperusýning, frá einni beztu óperu álfunnar, hefur verið sýnd í hinu nýja, fagra leikhúsi íslands, með íslenzkri sinfóníuhljóm- sveit. Þetta hefur verið mikill listrænn sigur fyrir leikhúsið, og leikhússtjórann, fyrir gest- ina, og ómetanlegur lista- 'og menningarvið- burður fyrir leikhúsgesti. Þetta, og fleira, sem skeð hefur þessa síðustu mánuði, bendir í þá átt sem ber að stefna. Til að þroska lista- smekk fólksins, og veita því andlegan unað er það bezta — það allra bezta ekki of gott.

x

Leikhúsmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1739

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.