Leikhúsmál - 01.06.1950, Side 42

Leikhúsmál - 01.06.1950, Side 42
42 Leikhúsmál Annette í 1. þætii (Sigrún Magnúsdóttir). hún er, og bæði áhorfendur og leikarar mega minnast þeirra húsakynna með þakklæti, þrátt fyrir allt. En það var „Bláa kápan.“ Ég geri varla ráð fyrir, að leikhússgestir almennt hafi gert sér ljóst hvílíkt listrænt afrek þeir menn hafa unnið, sem hafa forustu á hendi um undir- búning og framkvæmd þessarar sýningar. Enda þótt þessi söngleikur geri að vísu ekki stórfelldar kröfur til leiksviðstækni, eru þær mun meiri heldur en hægt er að verða við í Iðnó, nema þar séu hálfgerðir töframenn að verki. Og það eru þeir einmitt, Haraldur Björnsson og Lárus Ingólfsson. Það er raun- ar ekki í fyrsta skiptið sem þeir sýna það og sanna í bardaganum við örðugleikana í Iðnó. Leikstjórn Haraldar er hnitmiðuð, örugg og smekkleg. Ekkert fálm, engin ákvæðisvinna, eða virðingarleysi fyrir smáatriðum. Leik- tjöld Lárusar mjög falleg og hreinasta undur hvað hann getur gert litla leiksviðið stórt. Ljósin voru ágæt hjá H. Backmann, enda hefur honum stundum boðizt brattara. Þegar minnzt er á leikendur, verður að hafa það hugfast, að þeir eru, sumir hverjir, fyrst og fremst valdir í hlutverkin sem söngv- arar, og því ekki unnt að gera til þeirra sömu kröfur og sviðvanra leikara. Sé þessa gætt, er furðulegt hve heildarsvipur leiksins er vel mótaður, og má auðvitað fyrst og fremst þakka það elju leikstjórans og nákvæmni. Bjarni Bjarnason lék Walter kaupmann, Jörgen Walter (Bjarni Bjarnason).

x

Leikhúsmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1739

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.