Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 20

Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 20
stjörnur andstæðinganna. Svo sjá menn þegar líður á leikinn hvernig skal stela sigrinum,“ segir Einar Hann segir í raun ómögulegt að segja til um hvernig leikurinn þróast og fer, þarna séu tvö jöfn lið að mætast. „Þegar þú ert kominn í úrslitaleikinn þá áttu að geta sagt fyrir leik að það séu tvö lið sem fyllilega verðskulda að verða heimsmeistarar og það sé í raun 50/50 hvort liðið verði heimsmeist- ari. Maður fékk ekki þá tilfinningu fyrir fjórum árum, maður taldi þá Króatana sprungna þegar það kom að úrslitaleiknum. Maður horfir núna á bæði þessi lið, að þau gætu bætt einu lóði ofan á og sýnt okkur einhverja töfra.“ Augnablikið hans Messi Messi er að spila á sínu síðasta Heimsmeistaramóti, þetta er hans síðasti séns að fara af sviðinu sem goðsögn í heimalandinu og fara á sama stall og Diego Maradona þar í landi. „Þetta er klárlega risaaugna- blik fyrir Messi og fótboltann, að geta lagt til hvílu þá eilífðarum- ræðu um hver sé bestur í sögunni. Það er búið að tönnlast á því í tólf ár að Messi verði að vinna þennan titil til að teljast sá besti í sögunni. Það er bæði mjög skiljanleg umræða en líka pínu skrýtin, hann hefur áður farið í úrslitaleikinn. Það fór ekki vel 2014, en hann virkar allt öðru- vísi núna en áður með argentínska liðinu,“ segir Einar Örn. „Hann er meðvitaður um það að þetta er hans síðasti séns og með- vitaður um að hann getur látið þetta gerast, hann er í miklu meira aðalhlutverki hjá Argentínu á þessu Heimsmeistaramóti en hann hefur áður verið. Þetta er meira gert í kringum hann og hann er að grípa það tækifæri og hlaupa með það hingað til. Hann hefur komið að átta mörkum í keppninni. Það hversu mikla þýðingu leikur- inn hefur fyrir Messi og alla þjóðina þá gæti augnablikið orðið yfirþyrm- andi. „Það er hætta á því, hann er mennskur eins og allir aðrir. Hann meðtekur stærð augnabliksins fyrir sig og það þarf ekkert að segja honum það hvaða þýðingu þetta hefur fyrir fólkið heima í Argent- ínu, það þarf ekki að segja honum þá sögu alla. Þetta getur verið stórt og erfitt augnablik fyrir hann. Hann er aðeins lemstraður og er tæpur aftan í lærinu, hann æfði ekki á fimmtudag. Hann er pínu tæpur en ég hugsa að aldurinn og reynslan vinni með honum frá því fyrir átta árum. Allt sem hann er búinn að lifa og sjá, hann veit að þetta er síðasti sénsinn,“ segir Einar um stöðuna á þessum magnaða íþróttamanni. Mbappe gæti klárað þetta Hjá Frakklandi snýst leikurinn um hinn 23 ára gamla Mbappe. Um hann snýst leikur Frakklands og sögubækurnar fara vel með hann ef þeir frönsku fara með sigur af hólmi. „Þá erum við loksins búin að finna einhvern sem gæti jafnað eða skákað þessu meti Pele, sem vann þetta þrisvar. Maður hélt að það væri óhugsandi í nútíma fótbolta. Mbappe er ótrúlegur leikmaður, og eins og Messi hinum megin þá gæti hann unnið þetta upp á sitt eins- dæmi. Það eru veikleikar í franska liðinu eins og hjá Argentínu. Ég ætla ekkert að gefa Frökkunum það að þeir séu eitthvað líklegri til sigurs,“ segir Einar Örn, en hvernig spáir hann úrslitaleiknum? „Ég spái 2-1 sigri Argentínu og það er út frá því að ég spáði þeim sigri í mótinu áður en það hófst, ég get ekki skipt um skoðun núna.“ n Fótboltaveislan tekur enda í Katar á sunnudag þegar leikið verður til úrslita, innan vallar hefur mótið heppnast frábærlega og það endar á stórleik þar sem Argentína og Frakkland eigast við á hinum glæsilega Lusail velli sem tekur tæplega 90 þúsund áhorfendur í sæti. hoddi@frettabladid.is hm 2022 Öll augu heimsins verða á Lionel Messi, þessum fremsta knattspyrnumanni í heimi undan- farin ár, á sunnudag. Draumur hans um að verða heimsmeistari á ferl- inum gæti orðið að veruleika, Messi var í þessum sömu sporum árið 2014 þegar Argentína lék til úrslita en tapaði gegn Þýskalandi. Messi er 35 ára gamall og er meðvitaður um að þetta er hans síðasti séns til að ná í titilinn sem alla í Argentínu dreymir um. Maðurinn sem ætlar að koma í veg fyrir það að Messi verði heims- meistari er liðsfélagi hans hjá PSG í Frakklandi. Kylian Mbappe er 23 ára gamall en gæti á sunnudaginn hafa afrekað það að verða í tvígang heimsmeistari, en Frakkar eiga titil að verja á sunnudag. Ljóst er að Mbappe getur skrifað sig í sögu- bækur fótboltans og orðið einn besti knattspyrnumaður sögunnar þegar fram líða stundir. Einar Örn Jónsson mun lýsa leiknum á RÚV og bíður spenntur eftir því að setjast fyrir framan míkrófóninn. „Það kemur alltaf spenna, ég hef lýst nokkrum stór- leikjum áður. Það er farið að venjast að lýsa stórviðburðum. HM í fót- bolta hefur sérstakan sess í hjarta margra," segir Einar Örn. Hræddur um lokaðan leik Augnablikið á sviði fótboltans verður ekki stærra en úrslitaleikur Heimsmeistaramótsins, Einar Örn óttast það að liðin muni ekki gefa mörg færi á sér framan af leik. „Von- andi fáum við f lugeldasýningu, en ég er pínu hræddur um að þetta verði smá varkárni, ég átti reyndar von á því sama fyrir fjórum árum þegar Frakkland lagði Króatíu. Það var f lugeldasýning, ég hugsa að bæði lið séu mjög meðvituð um að byrja leikinn á að stoppa helstu Mbappe ógnar því að draumur Messi rætist Leiðin í úrslitaleikinn: Leið Frakklands í úrslitaleikinn n 4-1 sigur á Ástralíu n 2-1 sigur á Danmörku n 1-0 gegn Túnís n 3-1 sigur á Póllandi n 2-1 sigur á Englandi n 2-0 sigur á Marokkó Leið Argentínu í úrslitaleikinn n 2-1 tap gegn Sádi-Arabíu n 2-0 sigur á Mexíkó n 2-0 sigur á Póllandi n 2-1 sigur á Ástralíu n 6-5 sigur á Hollandi í víta- spyrnukeppni n 3-0 sigur á Króatíu Lionel Messi á sér þann draum að vinna stærstu verðlaun fótboltans. Fréttablaðið/Getty Messi er mennskur eins og allir aðrir. Hann meðtekur stærð augnabliksins. Einar Örn Jóns- son, íþrótta- fréttamaður á RÚV. Ný bók eftir metsöluhöfundana Donaldson og Scheffler sem skrif uðu einnig hinar vinsælu bækur Greppikló og Greppibarnið GÓÐ GJÖF Kötturinn malaði, kerlingin söng, á kústi í rokinu ferðin var löng Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA 20 Íþróttir 17. desember 2022 LAUGARDAGURÍþRóttiR Fréttablaðið 17. desember 2022 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.