Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 60
Sérfræðingur
í fjármálum
Laust starf hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) leitar að metnaðarfullum
einstaklingi til að starfa í fjármálateymi stofnunarinnar. Um er að
ræða fjölbreytt starf sem lýtur að fjármálum og rekstri stofnun-
arinnar ásamt verkefnum tengdum Húsnæðissjóði.
Helstu verkefni tengjast rekstrar- og frávikagreiningum,
vaxtamunar- og fjárstreymisgreiningum, umsjón með stýringu
skulda og lausafjár og úrvinnslu tölulegra upplýsinga. Um fullt starf
er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Fjárhagslegar greiningar s.s. fjárstreymisgreiningar
og gerð kostnaðarmats
• Áætlana- og skýrslugerð um fjármál og rekstur HMS
og Húsnæðissjóðs
• Rekstrar- og frávikagreining og eftirfylgni með áætlunum
• Vaxtamuna- og sjóðstreymisgreiningar ásamt umsjón með
skuldastöðu og lausafé
• Úrvinnsla tölulegra upplýsinga fyrir stjórnendur
• Innleiðing nýrra verkefna og verklags
• Eftirlit með framkvæmd samninga
• Samskipti við innri og ytri eftirlitsaðila
Þekking og hæfni:
• Háskólamenntun í viðskiptafræði, rekstrarhagfræði eða sambærilegu
• Þriggja til fimm ára reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Reynsla af fjármálum, fjárhagslegum greiningum og áætlunargerð
• Reynsla af greiningartólum s.s. Power BI, þekking á virkni gagnagrunna og
hæfni til að miðla tölfræðilegum upplýsingum
• Góð tölvufærni og þekking, s.s. í Excel
• Þekking á lánastarfsemi er kostur
• Þekking og reynsla af opinberum rekstri og lögum um opinber fjármál er
kostur
• Þekking og reynsla af Navision og Oracle, bókhaldskerfi ríkisins, er kostur
• Þekking og reynsla af uppgjöri og bókhaldi er kostur
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
• Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hóp
Um mannvirkjaskrá HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er leiðandi stjórnsýslustofnun í þjónustu
við almenning með það að marki að lágmarka sóun tíma, fjármuna og
annarra gæða með skilvirkri stjórnsýslu, framúrskarandi þjónustu og
vandaðri áætlanagerð. Við leitum því að fjármálasérfræðingi sem er
tilbúinn til að styðja við gildi stofnunarinnar og þjónustuloforð okkar um
að vera leiðandi í opinberri þjónustu.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess www.hms.is.
hms.isBorgartúni 21, 105 Reykjavík - Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki - Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Umsóknarfrestur er til 19. desember 2022
Nánari upplýsingar veita:
Ólafur Þór Þorláksson, fjármálastjóri (olafur.thorlaksson@hms.is) og Soffía
Guðmundsdóttir, teymisstjóri innri þjónustu (soffia.gudmundsdottir@hms.is)
í síma 440 6400 og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá
og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi
sem nýtist í starfi. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og
við komandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir
til að sækja um störfin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknar-
frestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Við leiðum
fólk saman
hagvangur.is