Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 74

Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 74
Miðasala við innganginn og á tix.is - Miðaverð kr. 3.500 / 2.500 Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ Mozart við kertaljós í 30 ár Camerarctica Hafnarfjarðarkirkju mánudag 19. des. kl 21.00 Kópavogskirkju þriðjudag 20. des. kl 21.00 Garðakirkju miðvikudag 21. des. kl 21.00 Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudag 22. des. kl 21.00 Kammertónlist á aðventu 2022 starri@frettabladid.is Á morgun, sunnudaginn 18. desember, verður boðið upp á nýjung í jólatónleikahaldi Hall- grímskirkju, sem nefnist Syngjum jólin inn. „Að syngja jólin inn er vel þekkt hefð, til dæmis á Englandi og víða á Norðurlönd- unum,“ segir Björn Steinar Sólbergs- son, organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju, sem leikur á orgel á tónleikunum á morgun. „Kirkju- gestum gefst þá kostur á að undir- búa jólahátíðina með því að syngja marga af ástsælustu jólasálmunum auk þess að hlýða á fallegan kórsöng. Þá taka allir gestir þátt: kórarnir, organistarnir, prestarnir og síðast en ekki síst söfnuðurinn, sem syngur svo mikið að það heyrist varla í orgelinu!“ Á tónleikunum mun kór Hall- grímskirkju syngja nokkur lög undir stjórn Steinars Loga Helga- sonar, en auk hans mæta góðir gestir frá Breiðholti, en kór Breið- holtskirkju mun syngja nokkur lög undir stjórn Arnar Magnússonar og kór Neskirkju í Reykjavík mun einnig syngja nokkur lög undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Fjöldi þekktra laga „Kórarnir munu flytja jólalög sem flestir gesta ættu að þekkja, til dæmis Fögur er foldin, Bjart er yfir Betlehem, Nóttin var sú ágæt ein og Guðs kristni í heimi, svo einhver séu nefnd.“ Fyrir utan að syngja hver í sínu lagi munu kórarnir þrír mynda í sam- einingu um 100 manna kór sem Björn segir að muni án efa heilla kirkjugesti. Prestar safnaðanna taka þátt í tónleikunum með lestrum úr ritningunni og biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, blessar söfnuðinn í lok tónleikanna. Fyrr um daginn, eða kl. 11, verður einnig fjölskylduguðsþjón- usta og jólaball í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 17 á morgun, sunnudag, í Hallgríms- kirkju. Aðgangur er ókeypis. n Nánar á hallgrimskirkja.is. Jólin sungin inn í Hallgrímskirkju Það verður notaleg jóla- stund í Hall- grímskirkju á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Þorbjörg Svana Gunnars­ dóttir byrjaði að nota Protis® kollagen fyrir ári og hefur fundið fyrir miklum jákvæðum breytingum á húðinni og hárinu, en einn­ ig hafa liðverkir minnkað til muna. Þessar breytingar hafa hjálpað henni við bata eftir slys sem sendi hana í veik­ indaleyfi fyrir þremur árum. Þorbjörg Svana Gunnarsdóttir er lærð hárgreiðslukona, útstillinga- hönnuður og hundaþjálfari, en hún hefur verið í veikindaleyfi vegna slyss sem olli henni vægum heilaskaða fyrir þremur árum. Hún er að vinna í bata og segir að kollagenið frá Protis hafi hjálpað sér gríðarlega við að jafna sig á ýmsu sem misfórst eftir slysið. „Vinkona mín benti mér á að prófa kollagenið og ég byrjaði að taka það inn fyrir ári síðan. Hún talaði ofboðslega vel um þetta og ég hafði séð þetta hjálpa henni mikið og sjálf er ég búin að leita allra ráða til að verða aftur ég eftir slysið, þannig að ég prófaði,“ segir Þorbjörg. „Ég er rosa þakklát fyrir ábendinguna, því ég er búin að prófa ýmislegt sem hefur verið mælt með án teljandi árangurs og margt af því er miklu dýrara, en fæðubótarefnin frá Protis eru æði. Ég er mjög þakklát fyrir að finna svona gæðavöru á góðu verði.“ Áhrifin komu á óvart „Ég finn rosalegan mun á mér og satt að segja kom það mér á óvart hvað þetta breytti miklu, því ég hef prófað kollagen frá öðrum fram- leiðendum sem hjálpaði mér ekki eins mikið,“ segir Þorbjörg. „Eftir slysið fór allt kerfið mitt í klessu en ég finn núna mikinn mun á hárinu, húðinni og er mun betri, finn ég, af liðverkjum. Ég hef alltaf verið íþróttakona en eftir slysið varð ég mjög veik og lið- irnir veiktust svo mikið að ég gat ekkert gert. En síðasta hálfa árið hef ég getað byrjað að hreyfa mig aftur,“ segir Þorbjörg. „Nú get ég stundað líkamsrækt aftur, ekki mikið að vísu, en ég finn mun, sem er frábært.“ Húðin ekki lengur eins þurr „Ég hef alltaf glímt við exem og verið með mjög þurra húð svo ég hef þurft að bera á mig krem, body lotion og skrúbba hælana, en eftir að ég byrjaði að nota kollagenið þarf ég ekki lengur body lotion og finn mun á hælunum líka, því ég er ekki lengur eins þurr í húðinni,“ segir Þorbjörg. „Núna finnst mér hún hafa miklu meiri gljáa og hreinlega glansa, án þess að vera feit. Húðin er miklu meira lifandi, ferskari og hún bara glóir. Þannig að ég finn hvað þetta hjálpar henni mikið.“ Hárið þykkara og heilbrigðara „Ég vann sem hárgreiðslukona fyrir slysið svo ég spái mikið í hári. Ég hef tekið eftir því að það kemur rosamikill gljái í hárið og mér finnst það síkka hraðar, það er þykkara og það er falleg hreyfing og miklu meira líf í því,“ segir Þorbjörg. „Það er bara algjör snilld. Allir vilja hafa fallegt hár og konur sækjast sér- staklega eftir því að fá gljáa í hárið og þetta er undraefni fyrir það. Ég hef líka séð mikinn mun á hári vinkonu minnar sem benti mér á þetta. Hárið hennar var í vondu ástandi áður en hún byrjaði að nota kollagenið, það var mjög fíngert og síkkaði aldrei því það brotnaði svo auðveldlega,“ útskýrir Þorbjörg. „En nú er það orðið fal- legt og heilbrigt og ég hef aldrei séð hana með svona sítt hár. Það er magnað hvað álag, áföll og streita hefur mikil áhrif á hárið. Eftir slysið tók ég eftir miklum neikvæðum áhrifum á hárið mitt en eftir að ég byrjaði á kollageninu hefur það lagast mikið. Þetta er bara geggjuð vara og algjört töframeðal, enda er ég í hálfgerðri áskrift,“ segir Þorbjörg að lokum. Um Protis® kollagen Kollagen er náttúrulegt prótín og eitt helsta byggingarefni líkamans. Gott að vita um Protis® kollagen: n Mikið magn virkra efna n Engin aukefni n Sýnilegur árangur á 30 dögum n Íslenskt hugvit og framleiðsla n Ekkert gelatín eða sykur Protis® kollagen er framleitt úr íslensku fiskroði. Varan er einstök blanda af bestu innihaldsefnum sem öll styðja við styrkingu á húð, hári og nöglum. Kollagen úr fiski er áhrifaríkara en kollagen úr landdýrum þar sem upptaka úr meltingarvegi er betri. Helstu innihaldsefni: n SeaCol® er blanda af vatns- rofnu kollageni úr íslensku fiskroði og vatnsrofnu þorskprótíni úr íslenskum þorski. SeaCol® tekur þátt í að styrkja vefi líkamans og viðhalda teygjanleika n C-vítamín tekur þátt í myndun kollagens í líkamanum n Hýaluron-sýra er eitt mest rakagefandi efni náttúrunnar og viðheldur meðal annars raka húðarinnar n Kóensím Q10 er að finna í nær öllum frumum líkamans. Það er mikilvægt fyrir endurnýjun fruma eins og húðfruma n B2- og B3-vítamín, sink, kopar og bíótín fyrir hárvöxt, endur- nýjun húðar og vöxt nagla Protis® Kollagen fæst í næsta apóteki, heilsuvöruverslun og stórverslun. Nánar á protis.is. Protis kollagen gaf húðinni og hárinu gljáa Þorbjörg Svana Gunnarsdóttir segir að kollagenið frá Protis sé algjört töframeðal. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Kolla- genið frá Protis er komið í nýjar umbúðir með nýtt og ferskt útlit. 4 kynningarblað A L LT 17. desember 2022 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.