Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 76

Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 76
Það er gott að taka græn skref í átt að jólunum, en á sama tíma sýna sér mildi og leyfa sér að taka bara eitt grænt skref í einu. Við getum líklega öll gert betur þegar kemur að grænu skrefunum í lífi okkar. Hér má finna nokkur dæmi og ráð um skref sem fólk getur stigið í aðdraganda jóla, um jólin og eftir þau. Græn skref að umhverfisvænum jólum Kamila og Andrý reka frísskápinn við Bergþórugötuna í Reykjavík. Þangað er hægt að fara með mat. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Lovísa Arnardóttir lovisa @frettabladid.is Matur Það er svo gott að borða góðan mat. En matarsóun er á sama tíma eitt stærsta um- hverfisvandamál okkar tíma. Um jólin er því gott að huga að því magni sem við eldum miðað við þann fjölda sem borðar. Það er gott að vera skipulagður og plana það vel sem á að vera í matinn og fara í búðina með innkaupalista. Svo er gott að kíkja í skápana áður en farið er út í búð því sumt af því sem borðað er um jólin geymist vel og er jafnvel enn til frá síðustu jólum. Áður en mat er hent er gott að nota nefið og smakka. Best fyrir dagsetningar þýða einfaldlega best fyrir. Bakstur Gott er að baka aðeins það sem á að borða. Byrja á einni týpu eða jafnvel tveimur og svo gera meira ef það klárast. Það fjölgar á sama tíma samverustund- unum. Það er svo hægt að gera baksturinn umhverf- isvænni með því að kaupa lífrænt eða baka vegan. Gjafir Það er ýmislegt hægt að gera til að gera gjafirnar umhverfisvænni. Það er auðvitað hægt að sleppa því að gefa þær en það þarf ekki endi- lega að vera lausnin. Gott er að hugsa um það sem fólk kaupir, hver þörfin er og hvort það er kannski hægt að kaupa það notað í Góða hirð- inum eða í hinum fjölmörgu hringrásarhagkerfis- verslununum eins og Barnaloppunni, Hring- ekjunni, Gullinu mínu og Extraloppunni. Þá getur líka verið umhverfisvænt að gefa gjafabréf eða gjafir frá hjálparsamtökum eins og Hjálparstarfi kirkjunnar, UN Women eða öðrum. Pökkun Það er umhverfisvænt og gott að klára það sem maður á. Ef þú átt gjafapappír sem þú hefur ekki enn notað þá skaltu nota hann en ekki endilega kaupa nýjan, og ef þú gerir það þá er gott að hugsa út í þær merkingar sem eru á honum. Hvert má henda honum og hvort það sé jafnvel bara hægt að geyma hann og nota hann aftur. Þá er hjá mörgum verslunum sem sérhæfa sig í umhverfis- vænum varningi hægt að kaupa endurnýtanlegan gjafapappír, pakkaskraut úr tré eða pappír, sem einnig er hægt að nota aftur. Afgangar Það er svo gott um jólin að geta fengið sér afganga í morgunmat. En stundum er ein- faldlega of mikið af þeim. Þá getur verið gott að hugsa út í pláss í frystinum sem er hægt að koma matnum í. Eða jafnvel reyna að nota afgangana í aðra rétti eins og tarta- lettur eða súpur. Það er ýmislegt hægt að finna á netinu með því að setja inn matar- tegund og hugmyndir að uppskrift. Það er til dæmis hægt að gera góðar samlokur með afgangskjöti og sósu og jóladagshangikjötinu er alltaf hægt að skella í tartalettu með öllu meðlætinu. Svo er líka hægt að skella kartöflum og grænmetisafgöngum í góða súpu. Annað sem hægt er að gera er að gefa afgangana. Bæði er hægt að fara með þá til ýmissa úrræða eins og Kvennaathvarfsins, Konukots og neyðarskýla fyrir heimilislausa en nú er einnig að finna á höfuðborgarsvæðinu þrjá frísskápa sem hægt er að skilja mat eftir í fyrir hvern sem er. Sums staðar er aðeins ísskápur en á öðrum stöðum, eins og við Hjálpræðisherinn, er einnig frystir. Klæðnaður Það vilja fæstir fara í jólaköttinn en ef við hugsum út í það hefur jóla- kötturinn örugglega þurft að aðlagast loftslagsvánni eins og aðrir. Það er því allt í lagi að fara í föt sem við höfum notað áður. En ef fólki hugnast það ekki er hægt að fá lánað hjá öðrum eða jafnvel að kaupa sér notuð föt í hringrásarhagkerfisverslununum eins og Barnalopp- unni, Hringekjunni, Gullinu mínu og Extraloppunni. Þá er það einnig nýtilkomið að hægt er að leigja sér föt hjá fataleigunni Spjöru. 40 Helgin 17. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.