Fréttablaðið - 31.12.2022, Page 2

Fréttablaðið - 31.12.2022, Page 2
Ég er brjáluð, það sýður á mér – og ég get hreinlega ekki sofið á nóttunni yfir hlut- skipti mannsins míns. Magnea Erludóttir Jómfrúin þakkar viðskiptavinum sínum og velunnurum fyrir árið 2022 Hlökkum til 2023 Kom glad! Í tæka tíð fyrir óveðrið Höfuðborgarbúar voru hvattir til að klára erindi sín í gær vegna fyrirséðs óveðurs á gamlársdag. Þar á meðal að kaupa raketturnar eins og fólk gerði hjá Flug­ eldasölu Landsbjargar við Öskjuhlíðina. Fréttablaðið/Ernir Eiginkona aldraðs sjúklings á Landakoti kveðst vera brjáluð vegna þrengsla og lélegs aðbúnaðar á sjúkrastofunni sem honum er ætluð. Fólki með heilabilun sé hent eins og rollum á milli staða. ser@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Aldrað fólk með heilabilun og aðrir langveikir lands- menn á efri árum eru fluttir hreppa- flutningum um höfuðborgarsvæðið að mati aðstandenda eins þeirra sem sendur var af Vífilsstöðum yfir á Landakot í haust. Stjórnvöld ættu að skammast sín fyrir aðbúnaðinn sem þar er í boði. „Ég er brjáluð, það sýður á mér – og ég get hreinlega ekki sofið á nóttunni yfir hlutskipti mannsins míns,“ segir Magnea Erludóttir, umræddur aðstandandi, en eigin- maður hennar, sem glímir við heila- bilun á áttræðisaldri, var að hennar sögn farinn að una hag sínum sæmi- lega á Vífilsstöðum, fyrr á þessu ári, enda einn í herbergi á þeim spítala. Nú hafi sjúklingar verið sendir þaðan burt til að rýma fyrir einka- rekinni læknastofu – og viðbrigðin, að sögn Magneu eru mikil. „Sjúklingum er troðið inn á stofurnar á Landakoti,“ lýsir Magn- ea, en að minnsta kosti þrír séu í hverju herbergi, aðeins breiddin sem nemur einu náttborði sé á milli rúma og engin skilrúm eða tjöld sem skilji rúmin að. „Þetta er ekki boðlegt,“ segir hún. „Í mínum huga er þetta engu betra en þegar olnbogabörnum samfélagsins var komið fyrir í geymsluhúsnæði vöggustofanna í gamla daga,“ segir Magnea og bætir við: „Fólki með heilabilun er hent eins og rollum á milli staða. Við stundum gripaf lutninga á lang- veiku fólki til að taka á svokölluðum fráflæðisvanda á meðan viðvarandi skortur á hjúkrunarrýmum hamlar mannsæmandi þjónustu.“ Tíðar og endurteknar fréttir hafa verið f luttar af yfirfullri bráða- móttöku Landspítalans í Fossvogi á þessu ári, sem valdið hefur svo miklu álagi á starfsfólk að margt af því hefur látið af störfum, en flesta daga ársins hafa allt að helmingi fleiri sjúklingar dvalist þar á göng- um og í geymslum en gert er ráð fyrir að móttakan geti annað. Magnea segist vissulega hafa samúð með starfsfólki þar og þá ekki síður sjúklingunum sem búa við ómannsæmandi aðstæður. En ástandið sé víðar með sama hætti og það þurfi líka að vekja athygli á því. „Maður getur ekki annað en farið að gráta innra með sér þegar horft er inn um dyragættina á sjúkra- stofunni sem manninum manns er boðið upp á. Það er nú ekkert öðru- vísi,“ segir Magnea Erludóttir. n Líkir aðbúnaði á Landakoti við brot á mannréttindum Á einni sjúkrastofunni á Landakoti þar sem þremur sjúklingum er boðið að liggja þétt hver við annan með ekkert skilrúm á milli rúma. MYnD/aðsEnD kristinnpall@frettabladid.is VEtuR „Kuldinn í dag (í gær) og á gamlársdag gerir það að verkum að það er líklegt að þetta verði næst- kaldasti desembermánuðurinn í heila öld þó að það sé ekki öruggt enn þá,“ segir Sigurður Þór Guðjóns- son veðuráhugamaður sem hefur verið titlaður veðursagnfræðingur í íslenskum fjölmiðlum. Spurningin er hvort mánuðurinn verði kaldari en desember árið 1973 en þá yrði þetta kaldasti desember- mánuður frá 1918. Sigurður, sem hélt úti bloggsíðu um veðurfar og hefur fylgst með því áratugum saman, segir að metið yfir kaldasta mánuðinn frá upphafi haggist ekki. „Þetta er ekki sá kald- asti frá upphafi, það er enn langt í frá að hann nái desembermánuði 1880.“ n Gæti orðið sá kaldasti í öld Fossvogurinn er frosinn. Fréttablaðið/sigtrYggur ari ser@frettabladid.is atVInnuLíf Tekjuaukning nýsköp- unarfyrirtækisins Controlant á þessu ári er sem næst hundrað prósent. Stefnt er á hlutafjárútboð félagsins á næsta ári. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi sem forráðamenn Controlant sendu hluthöfum félags- ins í gærdag, en þar er líka lögð áhersla á hvað viðskiptavinum þess hefur fjölgað mikið í ár. Viðskiptasaga fyrirtækisins, sem einbeitir sér að dreifingartækni á milli landa og heimsálfa, meðal annars á lyfjum og lækninga- vörum, hefur verið ævintýri líkust frá því það var stofnað árið 2007, en hjá fyrirtækinu starfa nú á fimmta hundrað manns í fimm löndum. Miklu veldur um vöxtinn á síð- ustu árum að Controlant annaðist dreifingu á bóluefnum fyrir lyfja- risann Pfizer á tímum Covid-heims- faraldursins, en það sést best á því að velta fyrirtækisins jókst um 929 prósent á milli áranna 2020 og 2021 þegar veltan fór úr 865 milljónum króna í 8,9 milljarða króna. n Vöxtur Controlant hundrað prósent Gísli Herjólfsson, forstjóri Control­ ant. MYnD/aðsEnD 2 Fréttir 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.