Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.12.2022, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 31.12.2022, Qupperneq 8
Frá og með 8. janúar á næsta ári verður ferðatengdum sóttvarnareglum í Kína aflétt. Nokkur ríki munu krefja kínverska ferðalanga um kórónaveirupróf við landa­ mæri sín. Íslendingur sem býr í Sjanghaí segir auðveldara að telja ósmitaða en smitaða. helgisteinar@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA Embætti land­ læknis hefur ekki enn tekið ákvörð­ un um það hvort grípa þurfi til sér­ stakra ráðstafana í tengslum við ferðalög fólks frá Kína til Íslands eftir áramót. Að sögn kínverskra yfirvalda smitast um fimm þúsund manns á hverjum degi en sérfræðingar segja að raunveruleg tala sé mun hærri. Guðrún Aspelund sóttvarna­ læknir segir í tölvupósti til Frétta­ blaðsins að hún fylgist með ástand­ inu og þá sérstaklega í gegnum Sóttvarnastofnun Evrópu og Evr­ ópusambandsins (ECDC). „Það hafa ekki verið teknar neinar ákvarðanir hér um sérstakar aðgerðir vegna ástandsins í Kína,“ skrifar Guðrún. Kínversk yfirvöld greindu nýlega frá því að erlendir farþegar myndu ekki lengur þurfa að sæta sóttkví við komuna til landsins eftir 8. janúar á næsta ári. Að sama skapi muni kín­ verskir ríkisborgarar fá að ferðast til útlanda á ný. Kínversk stjórn­ völd hafa ekki greint nákvæmlega frá því hvenær það yrði en segja að kínverskum ferðamönnum verði hleypt úr landi „með skipulögðum hætti“. Myndbönd hafa birst á kínversk­ um samfélagsmiðlum sem sýna yfirfull líkhús og langar biðraðir aðstandenda eftir dánarvottorðum. Samkvæmt fréttamiðlinum BBC eru spítalar komnir að þolmörkum og eiga margir erfitt með að verða sér úti um hversdagsleg lyf. Valur Blomsterberg, Íslendingur sem starfar í Sjanghaí, segir að tíu af ellefu starfsmönnum á skrif­ stofu hans hafi smitast. Hann segir að bæði hann, kona hans og f lestir vinir séu annaðhvort með veiruna eða hafi nýlega jafnað sig á henni. „Það er auðveldara að telja hverjir eru ekki búnir að greinast en hverjir hafa greinst,“ segir Valur og bætir við að margar ríkisstofn­ anir séu enn lokaðar. „Við vinnum mjög mikið með bönkum og ríkisstofnunum og það var algjört stopp á því í síðustu viku. Flest bankaútibú voru lokuð og eins og stendur þá eru f lestar ríkisstofnanir lokaðar líka. Við erum í beinum samskiptum við fólkið þar og einu skilaboðin sem við fáum eru að það séu einfaldlega ekki nógu margir ósmitaðir til að halda starfseminni gangandi,“ segir Valur. Hann segir aftur á móti að ástandið sé töluvert betra en það var í mars á þessu ári þegar allri Sjanghaí var skellt í lás. Það sé eng­ inn matarskortur í verslunum og þjónustugreinar þrauki þrátt fyrir erfiðleika. Í ljósi aðstæðna í Kína hafa nokk­ ur lönd gripið til sérstakra ráðstaf­ ana við landamæri sín. Bandaríkin, Ítalía, Japan, Taívan og Indland hafa öll ákveðið að krefja alla ferðalanga sem koma frá Kína um kórónaveirupróf. Þeir sem greinast jákvæðir verða sendir í sóttkví. n Aung San Suu Kyi er 77 ára. Hvað græðir þjóðin á því ef við öll ákveðum bara að leggjast niður og deyja? Yuliya Scorobohata, viðskiptafræð- ingur í Lvív Það hafa ekki verið teknar neinar ákvarð- anir hér um sérstakar aðgerðir vegna ástandsins í Kína. Guðrún Aspelund, sóttvarnar- læknir Engin ákvörðun tekin um Íslandsferðir Kínverja Fjöldi þjóða hefur tekið ákvörðun um að krefja kínverska ferðalanga um neikvæð kórónaveirupróf við landamæri sín. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fjölbreytt Fjölbreyttfjölskylda fjölskylda Þú færð fjölskyldupakkana á næsta flugeldamarkaði björgunarsveitanna. helgisteinar@frettabladid.is AlÞJÓÐAmál Aung San Suu Kyi, Nóbelsverðlaunahafi og fyrrver­ andi ríkisleiðtogi Mjanmar, var í gær dæmd af herdómstól í sjö ára fangelsi. Mannréttindasamtök full­ yrða að um sýndarréttarhöld hafi verið að ræða en hún hafði setið í stofufangelsi frá því í febrúar í fyrra eftir að herforingjar tóku aftur völd í landinu. Hún var meðal annars dæmd fyrir að hafa leigt þyrlu fyrir ráð­ herra innan ríkisstjórnar hennar, brotið kórónaveirureglur, f lutt inn talstöðvar án leyfis og rofið lög um ríkisleyndarmál. Suu Kyi sat í fangelsi í 15 ár en árið 2010 var henni svo sleppt úr haldi. Tveimur árum síðar var hún kosin í neðri deild þingsins og árið 2015 vann f lokkur hennar 85 prósent atkvæða og 58 prósent sæta á lands­ þinginu í Mjanmar. Mannréttindasamtökin Amnesty International segja þessar enda­ lausu lagalegu árásir á Suu Kyi vera skýrt dæmi um það hvernig her­ stjórnin beiti dómstólum í póli­ tískum tilgangi til að ráðast gegn andstæðingum sínum. n Dæmd í sjö ára fangelsi af hernum Aung San Suu Kyi er dóttir Aung San, sjálfstæðishetju Mjanmar, sem var myrtur árið 1947. helgisteinar@frettabladid.is áRAmÓT Yuliya Scorobohata, við­ skiptafræðingur í úkraínsku borg­ inni Lvív, segir að það verði fátækleg hátíðarhöld hjá henni og fjölskyld­ unni í ár. Hún hefur ekki efni á jólatré og öll fjölskylda hennar hafi ákveðið að góður kvöldmatur muni nægja sem fullkomin jólagjöf fyrir alla. Hátíðarnar í Úkraínu fara öðru­ vísi fram en hér á Íslandi. Aðfanga­ dagur Úkraínumanna samkvæmt júlíanska tímatalinu er til dæmis 7. janúar og skiptast jólin oft líka eftir því hvort einstaklingur býr í vestur­ eða austurhluta landsins. „Ég ólst upp í austurhluta Úkra­ ínu þannig að við vorum ekki eins trúuð. Fyrir okkur er gamlárskvöld í raun aðfangadagskvöld,“ segir Yuliya. Hún bætir við að pakkaaf­ hending gerist yfirleitt á degi heil­ ags Nikulásar sem er 19. desember en í ár hafi sú hátíð verið færð til 6. desember. Yuliya segir að fyrir jólin hafi verið gerðar skoðanakannanir í Úkraínu þar sem fólk var spurt hvort þjóðin ætti yfir höfuð að vera að halda upp á jólin í ljósi þess sem er að gerast í landinu. „Ég er ekki sammála. Hvað græðir þjóðin á því ef við öll ákveðum bara að leggjast niður og deyja? Það er ekki eins og við séum að sóa pening í einhverjar skrúðgöngur eða risa­ stór jólatré. Mér finnst að við ættum að geta haldið upp á jólin og ég vona að strákarnir í skotgröfunum fái að gera það líka.“ Yuliya er komin með forrit í sím­ ann sinn sem sýnir henni hvenær hún megi búast við að hafa rafmagn til afnota á heimili sínu. Hún segist hafa verið f ljót að aðlagast nýja skipulaginu og er þakklát fyrir það sem hún hefur. „Satt að segja ég er svo ótrúlega ánægð að vita hversu mikið af hlýju og góðu fólki ég hef í kringum mig. Það er sorglegt að ég þurfti stríð til átta mig á hversu gott ég hef það.“ n Þurfti stríð til að átta sig á gæfunni Yuliya hefur ekki efni á jólatré í ár en segist ætla að föndra lítið tré úr pappír. mynd/AÐsend 8 Fréttir 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.