Fréttablaðið - 31.12.2022, Síða 27
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 31. desember 2022
Það ríkir ávallt mikil gleði í Gamlárs-
hlaupi ÍR.
gummih@mbl.is
Eitt skemmtilegasta hlaup ársins
verður haldið í dag en það er
Gamlárshlaup ÍR. Þetta er einn
stærsti hlaupaviðburður landsins
og hefur verið haldinn á þessum
síðasta degi ársins allar götur frá
árinu 1976.
Gamlárshlaupið er þekkt fyrir
skemmtilega áramótastemningu
og mikla gleði en auk hefðbund
inna keppnisbúninga mæta fjöl
margir hlauparar íklæddir grímu
búningum. Á meðan sumir leggja
kapp á að bæta sinn besta tíma á
flatri hlaupabraut þá berjast aðrir
um að vinna til verðlauna fyrir
frumlega og fallega búninga.
Tvær vegalengdir í boði
Auk 10 kílómetra hlaups er boðið
upp á 3 kílómetra skemmtihlaup
sem er tilvalið fyrir byrjendur sem
og börn.
Í 3 kílómetra hlaupinu er hlaup
ið austur Sæbraut 1,5 kílómetra og
snúið við til baka að Hörpunni. Í 10
kílómetra hlaupinu er hlaupið eftir
syðri akrein austur að Holtavegi.
Við Holtaveg er tekinn snúningur á
akreininni og sama akrein hlaupin
áfram að gatnamótum Sæbrautar
og Sægarða, en þar er skipt yfir á
norðurakreinina í átt að Hörpu.
Tekin er lykkja niður Kletta
garða og aftur upp á nyrðri akrein
Sæbrautar í mark við Hörpuna.
Ræst verður í hlaupið stundvís
lega klukkan 12 á Sæbrautinni.
fyrir utan Hörpuna. n
Stuð og stemning í
Gamlárshlaupi ÍR
Skála á áramótum og fagna nýju ári
Það horfa allir Íslendingar á áramótaskaupið og margir skjóta síðan upp flugeldum. En
hvað verður í matinn og hvernig verður áramótadressið? Við spurðum nokkra þekkta
Íslendinga um hvernig þeir hyggjast halda áramót að þessu sinni.
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir nýtur áramótanna í botn og skreytir mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
sjofn@frettabladid.is
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir,
markaðsstjóri og ein aðaltísku
fyrirmynd landsins, er áramóta
barn alla leið og elskar glimmer,
pallíettur og glingur. Svo er hún
líka mikill ástríðukokkur og full
komnar kalkúninn á gamlársdag,
fer jafnvel yfir í Wellingtonsteik
ina.
Hvernig verða áramótin þín?
„Áramótin mín verða haldin á
Íslandi í ár, en seinustu áramót
unum eyddum við fjölskyldan
erlendis. Ég er algjört áramótabarn
og mikil spenna í kringum þetta
kvöld hjá mér. Í æsku tengdist
þetta oft því að foreldrar mínir
voru með áramótaskaupið og
því alltaf mikil spenna í loftinu
þetta kvöld. Ég og maðurinn minn
höfum haft það sem reglu að halda
partí þetta kvöld þar sem vinir
okkar og fjölskylda eru velkomin
í mat og oftar en ekki hefur verið
ansi fjölmennt í húsinu, sem er
dásamleg tilfinning. Við vorum
held ég 24 talsins þegar mest var,
sem er góður fjöldi miðað við
stærðina á stofunni. Við verðum
aðeins færri í ár.
Við búum í Ártúnsholti, alveg
við Elliðaárdalinn, þannig að á
miðnætti förum við yfir í brekk
una fyrir framan húsið þar sem
útsýnið er ævintýralegt yfir
borgina en þar sprengjum við
flugeldana. Svo förum við inn og
skálum fyrir nýju ári.“
Hvað verður í matinn í kvöld?
„Ég hef verið ansi vanaföst með
mat á gamlárskvöld í gegnum
tíðina og þá hafa fylltar kalkúna
bringur orðið fyrir valinu en ég hef
valið þær því þær klikka ekki hjá
mér og eru einfaldar í matreiðslu.
Mestur undirbúningurinn fer í
meðlæti og fyllingu og þess háttar.
Í ár er ég samt að spá í að breyta til
og hafa annaðhvort heilsteiktan
kalkún eða Wellingtonsteik. Ég
er mikill ástríðukokkur og vil
gera þetta allt frá grunni, hef ekki
smakkað betri Wellington en
heimatilbúna þannig að ég kaupi
hana ekki tilbúna heldur geri hana
sjálf.
Ég geri alltaf pavlovu í eftirrétt
og svo hugsa ég að ég geri ítalska
Hjálpræðisherinn
á Íslandi sendir
landsmönnum
öllum óskir um
gleðileg jól og
farsæld á
komandi ári