Fréttablaðið - 31.12.2022, Side 40
19. nóvember
Hálfdán Árnason
Hálfdán Árnason lenti í bílslysi árið 2006,
hann blindaðist af sól og keyrði á unga stúlku
sem lést. Hálfdán var lengi að átta sig á að
um slys var að ræða og að hann bæri ekki
ábyrgð á dauða hennar. Honum fannst hann
ekki eiga skilið að lifa en er nú hamingju-
samur.
1. október
Ásdís Laxdal
Jóhannesdóttir
Ásdís Laxdal Jóhannesdóttir eign-
aðist fjögur börn á 20 ára tímabili
sem voru öll vistuð á Mánabergi,
úrræði Barnaverndar, en sögurnar
eru ólíkar. Ásdís, sem bjó á götunni
og óskaði þess að hver skammtur
væri sá síðasti, er dæmi um að
hægt er að rísa upp. Saga Ásdísar
er lituð fíkn og sorgum en einnig er
hún saga stórra samfélagsbreyt-
inga, þegar kemur að stuðningi við
afvegaleidda foreldra.
27. ágúst
Hrafn Jökulsson
Hrafn Jökulsson stefndi
íslenska ríkinu fyrir harkalega
frelsissviptingu og lækna-
mistök á meðan hann barðist
upp á líf og dauða við illvígt
krabbamein. Meinið, sem var
æxli í hálsi, kallaði hann Surtlu.
Hrafn ræddi veikindin, lífið og
dauðann í einlægu viðtali en
hann lést þann 17. september
aðeins 56 ára gamall.
23. júlí
Bjarni Snæbjörnsson
Bjarni Snæbjörnsson leikari flutti lag Hin-
segin daga í ár. Hann hvatti alla til að taka
þátt í hátíðinni, fagna fjölbreytileikanum
og sýna hinseginsamfélaginu stuðning af
heilindum. Bjarni segir nauðsynlegt að halda
baráttunni áfram, sér í lagi í ljósi þess bak-
slags sem vart varð á árinu.
30. apríl
Agnieszka Ewa
Ziolkowska
Agnieszka Ewa Ziolkowska,
varaformaður Eflingar, var reið
yfir orkunni sem farið hafði í
baráttu við formanninn Sólveigu
Önnu Jónsdóttur. Hún sagði frá
niðurlægingu, einelti, útilokun
og undarlegum vinnubrögðum
í viðtali við helgarblað Frétta-
blaðsins. Agnieszka hefur alltaf
unnið láglaunastörf og brennur
fyrir málefnum síns fólks.
26. febrúar
Elísabet Ormslev
Söngkonan Elísabet Ormslev
vakti athygli á Twitter í febrúar
þar sem hún opnaði sig um
samband sitt við tónlistarmann
sem hófst þegar hún var aðeins
16 ára en hann 38 ára. Það sem
fékk Elísabetu til að opna sig um
málið eru ítrekaðar komur hans
fyrir utan heimili hennar sem
vakið hafa hjá henni óhug. Í við-
tali við Fréttablaðið fór Elísabet
yfir samband sitt við manninn og
afleiðingar þess.5. febrúar
Vítalía Lazareva
Vítalía Lazareva sagði í einlægu
viðtali frá þeim ólíku tilfinn-
ingum sem hún upplifði frá því
hún sagði sögu sína í hlaðvarpi
í upphafi ársins. Í hlaðvarpinu
sagði Vítalía frá sambandi sínu
við giftan mann og ofbeldi sem
hún varð fyrir. Í Fréttablaðinu
segist Vítalía ekki sjá eftir því
að hafa sagt sína sögu. Hún hafi
fundið fyrir miklu þakklæti í sinn
garð en einnig vonleysi og hún á
erfitt með að treysta fólki.
L A U G A R D A G U R 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 2
Heitustu
eldhústrendin
Innanhússarkitektinn Sólveig
Andrea rýnir í eldhústískuna
árið 2022. ➤ 24
Tók sjálf á móti
barninu
Berglind Anna var í Covid-ein-
angrun þegar dóttirin ákvað
að koma í heiminn. ➤ 28
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 5 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R
Vítalía Lazareva hefur upplifað
margar og ólíkar tilfinningar
síðan hún sagði sögu sína
í hlaðvarpi í upphafi árs.
Hún á erfitt með að
treysta fólki og segir
mikilvægt að vinna
í sjálfri sér. ➤ 20
Hafði
fengið mig
fullsadda
ég ætla að
hlaupa meira
Fjölbreytt úrval snjallúra og heyrnartóla
sem hjálpa þér að ná þínum markmiðum
flyPLAY.com14.900 KR.
New York
L A U G A R D A G U R 3 0 . A P R Í L 2 0 2 2
Konur lenda oftar
í vanda með svefn
Erla Björnsdóttir ræðir hvers
vegna við sofum og niður-
stöður nýrra rannsókna. ➤ 34
Syngur betur en
nokkru sinni
Rufus Wainwright ætlar að
halda tónleika hér á landi og
vill kynnast Íslendingum. ➤ 32
Ég var
útilokuð
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Agnieszka Ewa Ziolkowska,
varaformaður Eflingar, er
reið yfir orkunni sem farið
hefur í baráttu við formanninn
Sólveigu Önnu. Hún segir frá
niðurlægingu, einelti, útilokun
og undarlegum vinnubrögðum.
➤ 26
8 4 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R
síminn sem gerir
alla daga epíska
Sjáðu úrvalið á elko.is
Galaxy S22 | S22+
L A U G A R D A G U R 2 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 2
Galdur norrænu
glæpasögunnar
Ragnar Jónsson, lögreglumað-
ur og blóðferlasérfræðingur,
brennur fyrir skáldskap. ➤ 32
Hef ekki verið að
trana mér fram
Kolbeinn Arnbjörnsson sló í
gegn áratug eftir útskrift úr
Leiklistarskólanum. ➤ 34
Þetta var
aldrei ást
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
„Ég hef oft hugsað um að segja
mína sögu en alltaf fundið
ástæðu til að gera það ekki. En
núna fékk ég nóg,“ segir söng-
konan Elísabet Ormslev sem
opnar sig um sjúkt samband
sem hún átti við þekktan
tónlistarmann í um áratug.
Sambandið hófst þegar
hún var á lokaári í grunn-
skóla en hann tæplega
fertugur. ➤ 28
4 0 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R
Orlando
17.900 KR.
frá
flyPLAY.com
24 ára afmæli
Frábær afmælistilboð í gangi
L A U G A R D A G U R 2 3 . J Ú L Í 2 0 2 2
Forsetafrú
Úkraínu
Nærmynd af Olenu Selensvku,
forsetafrú Úkraínu. ➤ 24
Nám fyrir alla
á Flateyri
Í Lýðskólanum á Flateyri er
boðið upp á óhefðbundið
framhaldsskólanám. ➤ 22
Fögnum
með gleðina
að vopni
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Bjarni Snæbjörnsson
leikari flytur lag Hinsegin
daga í ár. Hann hvetur alla
til að taka þátt í hátíðinni,
fagna fjölbreytileikanum og
sýna hinsegin samfélaginu
stuðning af heilindum. ➤ 18
1 4 9 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R
Grillaðu
gómsætan
eftirrétt í
sumar!
úrvalið er hjá okkur
Allt fyrir skólann
L A U G A R D A G U R 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 2
Konan sem leiðir
Bræðralagið
Hver er Giorgia Meloni sem
verður líklega næsti forsætis-
ráðherra Ítalíu? ➤ 34
Um helmingur
kvenna sefur illa
Meirihluti kvenna upplifir
svefntruflanir á breytinga-
skeiði og að því loknu. ➤ 38
Þessar sögur
enda oftast
ekki vel
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ásdís Laxdal Jóhannesdóttir eign-
aðist fjögur börn á 20 ára tímabili
sem voru öll vistuð í Mánabergi,
úrræði Barnaverndar, en sögurnar
eru ólíkar. Ásdís sem bjó á götunni
og óskaði þess að hver skammtur
væri sá síðasti er dæmi um að
hægt er að rísa upp. ➤ 28
2 1 9 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R
Haustfundur
4. október
Skráning á
landsvirkjun.is
er kominn tími
á uppfærslu?
Nýjustu Apple úrin eru komin í ELKO
Fannst ég ekki
eiga skilið
að lifa
Hálfdán
Árnason lenti
í slysi árið 2006.
Hann lifði af en ekki
stúlkan sem hann keyrði á.
Hann kenndi sjálfum sér um en
hefur nú fundið hamingjuna. ➤ 26
L A U G A R D A G U R 1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2
Enn langt í land
Sima Sami Bahous, fram-
kvæmdastýra UN Women,
ræðir fyrsta árið í starfi,
áskoranir og jafnrétti. ➤ 36
Mikilvægt að eiga
fyrirmynd
Björgvin Páll Gústavsson úti-
lokar ekki forsetaframboð og
gefur út barnabók. ➤ 30
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 5 4 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R
81.995
Samsung galaxy
watch5 pro lte
Kaupauki: Galaxy Buds Live þráðlaus heyrnartól
SKIPTU
YFIR Í
STUÐIÐ
L A U G A R D A G U R 2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 2
Slök vinnubrögð
Linda Gunnarsdóttir gagn-
rýnir lögreglu og dómstóla
fyrir vinnubrögð í vinnslu
kæru vegna ofbeldis. ➤ 26
Næmari en áður
Árin í Afríku og veikindi vinar
opnuðu augu Stefáns Jóns
Hafstein fyrir ógnvænlegri
stöðu mannkyns. ➤ 28
Ég ákæri
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hrafn Jökulsson stefnir
íslenska ríkinu á meðan
hann berst upp á líf
og dauða við illvígt
krabbamein en veit
ekki hvort hann
muni lifa það að sjá
réttlætinu fullnægt.
➤ 22
1 9 4 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R
afsláttur af
völdum weber
grillumætlar þú að njóta
þín við grillið?
10% til 15% afsláttur af völdum Weber grillum
KEMUR Í BÚÐIR
EFTIR HELGI
Frásagnir sem
hreyfðu við okkur
Helgarblað Fréttablaðsins hefur yfir árið birt viðtöl við fjölmarga ein-
staklinga sem snert hafa hjörtu landsmanna. Viðtölin eru jafn misjöfn
og viðmælendurnir eru margir og sögur þeirra allra eru sérstakar og
áhrifamiklar. Hér eru nokkur dæmi um viðtöl sem slógu í gegn á árinu
og hreyfðu við lesendum.
28 Helgin 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttABLAðið