Fréttablaðið - 31.12.2022, Page 54

Fréttablaðið - 31.12.2022, Page 54
Senuþjófnaður Samherja Ísland verður áberandi á er- lendum streymisveitum árið 2023. Landslýður er að farast úr spenningi fram eftir árinu eftir að Netflix boðar tíu þátta spennutrylli byggðan á Samherjaskandalnum. Þættirnir eru að miklu leyti teknir upp í Namibíu og á Írlandi og vekja síðan heimsathygli og áhorfsmetin falla víða þegar Christopher Walken stelur senunni í hlut- verki sínu sem Þorsteinn Már. Á Íslandi ætlar hins vegar allt um koll að keyra þegar í ljós kemur að Samherji er einn helsti meðframleiðandi þáttanna sem reynast sann- kallaður hvítþvottur á braski fyrirtækisins á vettvangi alþjóða. Brynjar Níelsson lýsir því yfir á Facebook að svona sé þetta bara og segir þættina komast miklum mun nær raunveruleikanum en Ver- búð, sællar minningar. Nostalgíurúnkið í Stranger Things nær nýjum og nú íslenskum hæðum þegar eitís-krúttin taka Emmess íshopp út í næstu búð. Þá birtist stikla fyrir nýj- ustu myndina um ökuþórana í The Fast and the Furious þar sem Vin Diesel í hlut- verki Dominic Torretto sést reykspólandi á Bíladögum á Akureyri. Í kjölfarið verða akur- eyrskar pylsur með frönskum undir að alþjóðlegu æði og flykkjast erlendir ferðamenn í pílagrímsferð norður í land frekar en á Bæjarins beztu til að gæða sér á „orginalnum“. Síðan tekur því vitaskuld varla að láta þess getið að Hildur Guðnadóttir vinnur sín önnur Óskarsverðlaun árinu. En ekki hvað? Vin Diesel og félagar heim- sækja Ísland á ný. Vilhjálmur mun opinbera allt á nýju ári. Eftirköst Kúmensins Nafnabreyting Stjörnutorgs í Kúmen leiðir til þess að fleiri rammíslenskir staðir gangast undir andlitslyftingu til þess að bregðast við alþjóðlegum þrýstingi. Plokkfiskurinn og kjötsúpan á Múlakaffi fá að víkja fyrir vegan dumplings og eggjanúðlum á hinum nýnefnda Mulan Café. Ferðamennirnir flykkjast að í hrönnum til þess að fá sér IPA og hreindýraborgara á Light– house Brewery, áður Vitabar. Akureyringar eiga erfitt með að þekkja Bautann sem heitir nú Anís. Og Drekkingarhylur á Þingvöllum trendar á Insta- gram undir nýju nafni sínu, Þing Lagoon. Umbreyting Stjörnutorgs á eftir að hafa frekari eftirmál í ís- lenskum veitingaiðnaði þar sem offramboð á veitingakjörnum leiðir til þess að fyrsta mathöll- in leggur upp laupana og skellir í lás. Ekki liggur fyrir hvaða mat- höll það verður af þeim tugum sem risið hafa á undanförnum árum en fastagestirnir verða því miður að leita annað í von um að geta fengið hádegisverð á þrjú þúsund og fimm hundruð krónur. Fleiri munu elta Kúmen og taka upp rammíslensk nöfn. Laugardalsvöllur víkur Reykjavíkurborg með sína milljarða í mínus endar föst í skafli þegar kemur að uppbyggingu íþróttamann- virkja í Laugardal og hleypir nágrannasveitafélögum að borðinu. Garðabær stekkur á nýjan þjóðarleikvang og Mosfells- bær tekur við frjálsum íþróttum. Hafnarfjörður fær að reisa þjóðarhöll fyrir hand- boltann en því fylgir skandall. Stjórn FH stelur nánast öllum peningunum sem átti að fara í nýja þjóðarhöll og heldur til Danmerkur í innkaupaleið- angur fyrir tuðrusparkið. FH verður með rosalegt lið í Bestu deildinni en Ísland verður áfram heimilislaust í handboltanum og áfram deilt um þjóðarhöllina svokölluðu. Borgin segir bless við Laugardal. Upplýst mygla Siðanefnd Háskóla Íslands verður kölluð til þegar mygla kemur, eina ferðina enn, upp í ónefndum grunnskóla lands- ins. Aðkoma nefndarinnar að málinu er tilkomin þar sem myglan hefur fengið að grass era það lengi að hún er orðin viti borin. Ákvörðun um hvernig skuli átt við hina fornu en gáfuðu myglu verður siðferðis- legt álitamál sem opinberir starfsmenn hvorki mega né eru færir um að skera úr um, enda ekki jafn greindir og myglan. Myglunni er að lokum komið fyrir í stöðu upplýsingafulltrúa hjá Reykjavíkurborg. Myglan er komin til að vera. Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r ét t t il l eið ré tti ng a á sl íku . A th . a ð v er ð g et ur b re ys t á n fyr irv ar a. 595 1000 www.heimsferdir.is 80.450 Flug & hótel frá Fyrir 2 á mann BÓKAÐU SÓL ALLUR PAKKINN TenerifeDraumaean 25. JANÚAR Í 7 NÆTUR Sunneva Eir Einarsdóttir mun eiga einkar hamingjuríkt ár. Skápafjör og framhjáhald Eftir ár gleði og sorgar tekur nýr veruleiki við hjá bresku konungsfjölskyldunni árið 2023. Allt verður vitlaust í apríl og maí þegar Karl konungur lætur loksins krýna sig þann 6. maí. Krúnan verður sökuð um yfir- gengilegt bruðl með almannafé í kringum það prjál allt saman en Kalli kóngur mun ekki gefa neitt eftir og færa fyrir því rök að það sé mikilvægt að þjóðhöfðingi 21. aldar sé kynntur til leiks með sem mestum glæsibrag. Sveppasoðnir draugar fram- tíðar upplýsa völvuna um að krónprinsinn Vilhjálmur muni koma krúnunni til bjargar á mjög óvæntan hátt og að heimsbyggðin muni standa á öndinni í miðjum júnímánuði þegar prinsinn segir skilið við Katrínu sína Middleton. Allt verður í hers höndum í kjölfarið en lætin ganga fljótt niður þegar í ljós kemur að Vilhjálmur hefur um árabil átt í ástarsam- bandi við fyrrverandi einkaþjón ömmu sinnar, Elísabetar II. heitinnar. Vilhjálmur kemur út úr skápnum í löngu viðtali við BBC og samúð almennings með prinsinum verður svo mikil að öll reiði gegn honum fyrir fram- hjáhaldið sem og reiðin gegn Karli mun hverfa eins og dögg fyrir sólu. Völvan sér ekki mikið í kortunum hjá Harry og Meghan annað en að þau munu halda áfram að vekja á sér athygli fyrir að vera tilgerðarleg og leiðinleg með æ minni árangri þar sem áhugi breskra götu- blaða á forréttinda- blindum barlómi þeirra dofnar hratt eftir að sannleik- urinn um Vilhjálm kemur í ljós. Róstur í heimi samfélagsmiðlastjarna Aukin harka mun færast í heim samfélagsmiðlastjarna á árinu. Völvan sér fyrir sér að sífellt fleiri fyrrverandi glæpamenn muni hasla sér völl á vettvangi samfélagsmiðlanna, meðal annars á Instagram og Twitter. Fyrrverandi handrukkarar munu stofna vinsælt hlaðvarp sem mun reyna á siðferðisleg þol- mörk þjóðarinnar. Kristján Einar Sigurbjörnsson verður ekki alveg í kleinu þetta árið og mun finna ástina að nýju. Það verður engin venjuleg kona ef marka má kristalskúlu völvunnar. Á öðrum vettvangi mun reyna mikið á LXS-píurnar við tökur á annarri seríu raunveruleikaþátta þeirra. Nýr fram- leiðandi, fyrrver- andi gagnrýnandi Ríkisútvarpsins, mun leggja til dramatískar breytingar á handritinu og fer fram á raun- veruleg vinslit vegna þess að það standist ekki kröfur samtímans að fólk rífist í þykjustunni með einhverjum leikaraskap. Þetta verður til þess að allt springur í loft upp og þessar vinsælustu skvísur landsins munu halda hver í sína áttina að lokinni Þjóðhátíð í Eyjum. Þriðja auga völvunnar sér þó þau gleðitíðindi að barn sé í kortunum hjá Sunnevu Einars- dóttur og Benedikt Bjarna- syni. Meðgangan mun gera parið enn nánara og hamingjan verður allsráðandi á heimili ættföðurins Bjarna Benedikts- sonar fjármálaráðherra. Völvan telur ljóst að um stúlkubarn sé að ræða, að henni verði gefið nafnið Katrín og að hún verði jafn brosmildur gleðigjafi og nafna hennar þannig að ósættið við vinkon- urnar í LXS gleymist fljótt. Frú Ayawazka í skógarrjóðri í Hvalfirðinum nýstigin úr svetti þar sem árið 2023 birtist henni ljóslifandi. 42 Lífið 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.