Fréttablaðið - 31.12.2022, Síða 56

Fréttablaðið - 31.12.2022, Síða 56
extra.is Quality Street Konfekt 2kg 2.899 EXTRA ÓDÝRT kr.stk. Rodeo Joe's Jalapeno Flamers 1,2kg 2.699 kr.stk. Rodeo Joe's Mozzarella Sticks 1,2kg 2.299 kr.stk. Ben & Jerry’s Ís 899 kr.stk. EXTRA ÓDÝRT við komum með til þín við komum með til þín Gleðilegt ár! Afgreiðslutími um áramótin Barónsstígur Akureyri & Reykjanesbær Opið 8:00-24:00 Opið 8:00-24:00 Opið 24/7 Opið 24/7 31. des. Gamlársdagur 1. jan. Nýársdagur 31. des. Gamlársdagur 1. jan. Nýársdagur Óvirkar rannsóknarheimildir í Costco Lögreglan verður, venju sam- kvæmt, í sviðsljósinu á árinu og upplýsingagjöf lögreglu til almennings og fjölmiðla mun taka svo stórtækum framförum að ítrekað verður boðað til blaðamannafunda um ótrúlegustu mál og í hugum al- mennings verða Halla Bergþóra Björnsdóttir, Grímur Grímsson og Margeir Sveinsson hið nýja þríeyki. Hryðjuverkamálið svokallaða verður áfram áberandi á nýju ári enda mun þjóðin þurfa að bíða lengur eftir því að í það fáist sannfærandi niðurstaða. Undir lok árs verður lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson eina ferðina enn á forsíðum vef- miðlanna þar sem hann heldur því enn fram að lögreglan og ákæruvaldið hafi „gengið allt of langt“. Hann verður sérstaklega fúll þegar hættustig vegna hryðju- verka verður hækkað enn frekar, nú vegna þess að skjólstæð- ingur hans „lækaði“ færslu Páls Vilhjálmssonar ekki Baugsmiðils og sjálfskipaðs rannsakanda Samherjamálsins. Þessu tengt verður Guðjón Valdimarsson, pabbi ríkislög- reglustjóra, áfram í kastljósinu en þó fyrir aðrar sakir en 2022. Þó ekki alveg óskildar þar sem vopnaviðskipti koma enn við sögu þótt aðeins reynist um leikfangabyssur í Costco að ræða. Glöggir vegfarendur sjá til Guðjóns í Kauptúni fylla lítinn sendibíl af byssukössum og tilkynna yfirvöldum, fram hjá ríkislögreglustjóra, sem verður til þess að málið vindur hratt og örugglega upp á sig. Rannsókn lögreglu á samfélagsmiðlum í krafti óvirkra rannsóknarheim- ilda verður í framhaldinu til þess að grunur um undirbúning hryðjuverka fellur á stjórnendur Facebook-hópsins Costco gleði og nokkurs fjölda þeirra sem þar hafa sig mest í frammi í at- hugasemdum. Fólkið má síðan dúsa í gæsluvarðhaldi fram eftir haustinu sem ærir enn frekar þegar óstöðugan Svein Andra. Dugnaður og framtakssemi lögreglu verður því til þess að áfram verður örtröð í dóm- sölum árið 2023. Völvan sér áhrifavalda, stjórnmálafólk, rithöfunda, sjónvarpsfólk og bankamenn koma við á hinum ýmsu dómstigum vegna marg- víslegra brota, allt frá skattsvik- um til óspekta á almannafæri. Veraldarvafstur þjóðkirkjunnar Miklar væringar halda áfram innan þjóðkirkjunnar á árinu 2023 þar sem deilt verður um allt milli himins og jarðar. Eins og venjulega þó aðallega um hið veraldlega þar sem fjármálin eru efst á geislabaugi. Þá standa mörg spjót á Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi sem margir vilja bola úr embætti. Biskup verst fimlega og slær vopnin úr höndum andstæðinga sinna þegar henni tekst mjög óvænt að fá Reykjahlíðar- kirkju í Mývatnssveit sam- þykkta á heimsminjaskrá. Reykjahlíðarkirkja komst á ótrúlegan hátt hjá því að verða undir hraunstraumn- um í Mývatnseldum á þriðja tug 18. aldar þegar hann rann beggja vegna kirkju- byggingarinnar. Heimamenn töldu þá öruggt að þar hefði hönd Guðs almáttugs gripið í hrauntaumana. Þrátt fyrir það sem virðist vera snilldarbragð Agnesar kemur þó babb í kirkjuskipið er í ljós kemur að Reykja- hlíðarkirkju hefur verið breytt í mathöll með áherslu á eldsteiktan grillmat. Fara þá kirkjunnar þjónar og svart- stakkar aftur í hár saman og margir máta sig leynt og ljóst við biskupshempuna. Fremst þar í flokki er kvenprestur einn af höfuðborgarsvæðinu sem slær í gegn með því að sitja um grunnskólabörn og hrópa að þeim ritningarorð. En sá hlær best sem síðast hlær og séra Agnes rís upp þegar hún fer yfir málin í sjónvarpsmessu á jóladag. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands RÚV spreðar Það hlakkar í RÚV-urum fyrir þessi áramót enda er útvarps- gjaldið að hækka og gert er ráð fyrir að RÚV fái 5,71 milljarð. Þegar auglýsinga- tekjur bætast við lætur nærri að RÚV hafi úr 8,1 milljarði að spila árið 2023. Innanhúss er byrjað að teikna upp kosningaárið 2023 og mun RÚV senda fólk um allar trissur til þess að senda í beinni út myndir af forsíðum blaðanna í viðkomandi landi og tala ensku við innfædda. Þó verður sett spurningar- merki við ferðalag frétta- manna RÚV til Argentínu þar sem verður kosið í október. Greiðendur afnotagjaldanna sjá ekki alveg tilganginn enda ráðgert að senda TikTok-fréttamann RÚV á vettvang og greina aðeins frá kosningunum á þeim miðli. Þá fær fólk endanlega nóg af bruðlinu í Efstaleiti án þess þó að nokkuð breytist á þeim ohf-bænum. RÚV sendir TikTok-fréttamann til Argentínu á árinu. N4 yfirtekur fréttamarkaðinn Samruni Kjarnans og Stundar- innar verður til þess að ýmsir aðrir forkólfar fjölmiðla fara að tala saman. Samkeppni við RÚV er enda vonlaus í þessu umhverfi og árferði þannig að fjölmargir miðlar renna saman á árinu. Útvarp Saga gengur inn í K100 og verður þar dagskrárliður á sunnudögum. Merkilegt nokk mun sá dagskrárliður, símatím- inn Skrúfan er laus, slá í gegn. Umfangsmesti samruninn verður þó um mitt ár þegar N4, með fulla vasa af peningum skattborgara, kaupir Frétta- blaðið og Hringbraut, Birting, Austurgluggann, Fjarðarfréttir og Eiðfaxa til þess að geta sent út eitthvað sem með réttu má kalla fréttir og uppfylla þannig örugglega skilyrðið fyrir hinni rausnarlegu aukafjárveitingu hins opinbera. Framsóknar- maðurinn Stefán Vagn Stefáns- son verður gerður að aðal- ritstjóra og fær hann titilinn Njórinn. N4 er með fulla vasa fjár eftir að hafa fengið góðan og gleðilegan styrk frá ríkisvaldinu. Über alles Torfæruakstur leigubílstjóra virðist engan enda ætla að taka á árinu. Óplægður snjór á götum landsins leiðir til þess að þeir verða af miklum viðskiptum og ekki bætir úr skák þegar fyrsta íslenska hundasleðaleigan lítur dagsins ljós. Óhjákvæmilegt strandhögg Über bætir gráu ofan á mal- bikssvart og líkir formaður Bandalags íslenskra leigubif- reiðastjóra meðferð íslensku þjóðarinnar á stéttinni við helförina. Átakið Römpum upp Ísland veitir öðru rampaverkefni innblástur á árinu. Þar er þó ekki unnið að bættu aðgengi fyrir fólk með fötlun að hinum ýmsu stofnunum heldur eru ramparnir hugsaðir sem lausn á umferðarteppum borgarinnar. Í stað umferðarljósa á gatna- mótunum við Kringluna verður feiknastórum rampi komið þar fyrir. Ökumenn á Miklubraut þurfa þar að ná ógnarhraða til þess að ná stökkinu yfir bílana á Kringlumýrarbrautinni en þurfa þó ekki að bíða eftir grænu ljósi. Tilraunakennt verkefnið endar með fyrirsjáanlegum ósköpum og er lagt af stuttu síðar. Óplægður snjór er allt annað en vatn á myllu bílstjóra. 44 Lífið 31. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.